Morgunblaðið - 24.04.2018, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 24.04.2018, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Árni Sæberg Útivist Fólk sækir í skóginn allt árið. Samstarfshópur úr skógargeiranum gengst fyrir sameiginlegum skógar- degi, er ber nafnið „Líf í lundi“, sem haldinn verður 23. júní, eða á Jóns- messunni. Deginum er ætlað að virkja samtakamátt þeirra sem starfa að skógrækt, en fjölmargir að- ilar skipuleggja árlega stóra og smáa viðburði í skógum landsins yfir sum- arið. Samkvæmt upplýsingum frá Jóni Ásgeiri Jónsyni, skógfræðingi hjá Skógræktarfélagi Íslands, hafa um 20 viðburðir þegar verið skráðir hjá aðilum vítt og breitt um landið. Hann segir líklegt að fleiri bætist við þegar líður á vorið. Jónsmessan sé hálfgerð skógarhátíð víða í Norður-Evrópu og með það í huga hafi menn viljað bjóða almenningi upp á hlaðborð við- burða í skógi hérlendis á þessum degi. Markmið dagsins er að hvetja al- menning til að njóta samveru, stunda hreyfingu, fræðast um og upplifa skóga og náttúru landsins. Í kynn- ingu á verkefninu segir m.a.: Skógarmenning myndast „Nú er svo komið að víða um land og við flest bæjarfélög er að finna úti- vistarskóga af öllum stærðum og gerðum. Meðfram þessari þróun er að myndast skógarmenning og al- menningur nýtir sér skógana til úti- vistar í æ meira mæli. Með samstilltu átaki er Lífi í lundi ætlað ná eyrum og augum enn fleiri landsmanna. Kynna enn betur þá útivistarmögu- leika sem eru í boði og bjóða út í skóg á skemmtilega viðburði.“ aij@mbl.is Fjölbreytt „Líf í lundi“ á Jónsmessu FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2018 HEELYS FYRIR SUMARIÐ 12.995 Við erum á facebook Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Blússur Verð 5.990.- Str. S-XXL 4 litir BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Fátt bendir til að skorti á smærri og ódýrari íbúðum miðvæðis á höfuð- borgarsvæðinu verði eytt á næstu misserum. Nýjar íbúðir sem eru að koma á markað eru enda of dýrar. Um þetta eru tveir sérfræðingar á húsnæðismarkaði sem Morgunblað- ið ræddi við sammála. Tilefnið er að fyrstu íbúðirnar í nýju hverfi í Vatnsmýri fóru í sölu. Haft var eftir Brynjari Harðarsyni, framkvæmdastjóra Vals, í fréttum Stöðvar 2 sl. laugardag að íbúðirnar hentuðu fyrstu kaupendum. Verð íbúðanna er 39,8 til 72,9 milljónir. Meðalstærð þeirra er um 71 fermetri og meðalverð á fermetra er um 666 þúsund krónur. Þá má nefna að í mars komu nýjar íbúðir í Bríetartúni 9-11 í sölu en þær kosta frá 40,9 milljónum. Sama verð er á ódýrustu íbúðunum í nýju fjöl- býlishúsi á Frakkastíg. Allur gangur er á því hvort bíla- stæði fylgja nýjum íbúðum á þétting- arreitum í borginni. T.d. er hægt að kaupa bílastæði í kjallara með ódýr- ustu íbúðunum á Frakkastíg. Framboð fylgir ekki eftirspurn Elvar Orri Hreinsson, sérfræðing- ur hjá Greiningu Íslandsbanka, segir að síðustu áratugi hafi framboð á íbúðum ekki rímað við eftirspurn. „Lýðfræðileg þróun síðustu ára- tuga hefur aukið eftirspurn eftir smærri íbúðum. Á sama tímabili hefur verið byggt hlutfallslega meira af stærri íbúðum, sem eru 110 fer- metrar eða stærri. Það eru ekki íbúðir sem ætla má að fyrstu kaup- endur séu alla jafna að horfa til.“ Elvar Orri segir þessa þróun hafa skapað skort á smærri eignum, 30-60 fermetra, sem eru á viðráðanlegu verði fyrir fyrstu kaupendur. „Þá á ég við smærri íbúðir sem kosta undir 30 milljónum. Ég held að fyrstu kaupendur séu ekki endilega að horfa til íbúða sem eru 60 fer- metrar eða stærri. Það væru eflaust margir tilbúnir að fara úr foreldra- húsum og í íbúðir sem eru minni en 60 fermetrar,“ segir Elvar Orri og bendir á að mikil eftirspurn eftir litlum íbúðum í skammtímaleigu til ferðamanna hafi dregið úr framboði smærri og ódýrari íbúða. Eykur skuldsetninguna Elvar Orri bendir á að fyrstu kaupendum standi til boða að taka húsnæðislán fyrir allt að 90% kaup- verðsins. Miðað við að íbúðir kosti tæpar 40 milljónir þýði það verulega skuldsetningu. Lífeyrissjóðir bjóði nú hagstæð lánakjör en setji mun strangari skilyrði en bankarnir. Elvar Orri telur aðspurður að ódýrustu íbúðirnar í umræddu fjöl- býlishúsi við Hlíðarenda leysi ekki vandann eins og hann blasir við fyrstu kaupendum. Íbúðirnar séu of dýrar. Þá spyr hann hvernig seljandi ætli að tryggja að kaupendur séu að kaupa sína fyrstu íbúð. Ari Skúlason, sérfræðingur hjá Landsbankanum, segir hugtakið íbúð fyrir fyrstu kaupendur vera ný- tilkomið. „Í gamla daga var íbúð fyr- ir fyrstu kaupendur kjallaraíbúð eða risíbúð í hverfi sem var tiltölulega ódýrt. Þar gat fólk komið sér fyrir og eignast eitthvað. Væntanlega getur fólk það í einhverjum tilvikum enn þá en þó í minna mæli en áður.“ Ari telur aðspurður að nýju íbúð- irnar í Arnarhlíð séu alla jafna of dýrar fyrir fyrstu kaupendur. „Það eru væntanlega mjög fáir fyrstu kaupendur sem ráða við þetta án að- stoðar. Það tekur mörg ár að spara fyrir eiginfjárframlaginu,“ segir Ari. Hjallinn er orðinn hærri Hann telur aðspurður að eignir fyrir fyrstu kaupendur á höfuð- borgarsvæðinu hafi kostað töluvert minna fyrir nokkrum áratugum. Þá bendir hann á að áður var hægt að kaupa íbúðir sem ekki voru full- byggðar, t.d. tilbúnar undir tréverk. „Það var algengt að fólk byggi í íbúðum án hurða, gólfefna og svo framvegis í nokkur ár meðan það var að ná andanum. Það er eiginlega ekki í myndinni lengur. Þessi hjalli er orðinn mun hærri en áður.“ Spurður um nýju íbúðirnar á Hlíðarenda bendir Ari á að þær hafi verið lengi í þróun. „Það liggur mikill bundinn kostnaður í verkefninu. Væntanlega hafa Valsmenn haft væntingar um að geta klárað þetta verkefni mun fyrr. Verðlagningin endurspeglar að kostnaðurinn er orðinn mikill,“ segir Ari. Eldri eignirnar ódýrari Gunnar Bjarni Viðarsson, sér- fræðingur á greiningardeild Arion banka, segir erfitt að áætla hversu margir fyrstu kaupendur geti keypt íbúð á um 40 milljónir. „Verð tekur eðlilega mið af stað- setningu og byggingarári. Ég myndi ætla að það væri auðveldara að kaupa eldri eign og eign utan mið- borgar. Við birtum fasteignaskýrslu í febrúar. Þar kom fram að vísbend- ingar eru um að megnið af nýjum íbúðum miðsvæðis í Reykjavík séu dýrari íbúðir, margar þeirra lúxus- íbúðir, og að meðalstærð þeirra sé aðeins minni en meðalfjölbýliseign sem er í byggingu á höfuðborgar- svæðinu,“ segir Gunnar Bjarni. Nýju íbúðirnar of dýrar  Sérfræðingar hjá bönkunum telja 40 milljónir hátt verð fyrir fyrstu kaupendur  Verðið kalli á mikla skuldsetningu  Hátt hlutfall nýrra íbúða í borginni dýrar Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun.is/Birt með leyfi Fjölbýli á Hlíðarenda Mikið er lagt upp úr hönnun Arnarhlíðar 1. Arnarhlíð 1 – dæmi um lántökukostnað *Meðaltal mánaðargreiðslna fyrstu 5 ár lánstímans; samtals afborgun af höfuðstól, áfallnir vextir og verðbætur (ef um verðtryggt lán er að ræða) auk greiðslukostnaðar m.v. verðbólgu skv. breytingu á vísitölu neysluverðs síðastliðna 12 mánuði. Lánsupphæð Íbúðir númer Verð 85% lán 90% lán 203, 205, 206, 208, 209, 212, 213 39.800.000 33.830.000 35.820.000 Kostnaður á mánuði* við óverðtryggt lán 180.406 191.010 við blandað lán 161.394 170.872 við verðtryggt lán 142.122 150.474 Íbúðir númer 301, 302, 306, 308, 310, 313, 315 40.900.000 34.765.000 36.810.000 Kostnaður á mánuði* við óverðtryggt lán 185.388 196.286 við blandað lán 165.847 175.588 við verðtryggt lán 146.046 154.629 Heimild: Íslandsbanki. Mynd: Fasteignaljósmyndun.is. Njörður Sigurðsson, bæjarfulltrúi og sviðsstjóri í Þjóðskjalasafni Ís- lands, skipar efsta sæti framboðs- lista Okkar Hveragerðis. Í öðru sæti á listanum er Þórunn Péturs- dóttir, landfræðingur og sérfræð- ingur á þróunarsviði Landgræðsl- unnar, Friðrik Örn Emilsson, söngvari og sálfræðinemi, skipar þriðja sætið, Sigrún Árnadóttir grunnskólakennari fjórða sæti og Hlynur Kárason húsasmiður fimmta sæti. Í tilkynningu segir að megin- áherslumál Okkar Hveragerðis séu m.a. að efla atvinnu í sveitarfé- laginu, koma upp húsnæðisleigu- félagi sem sé rekið án hagnaðar- sjónarmiða, endurreisa hvera- svæðið til fyrri vegs og virðingar, innleiða 36 tíma vinnutíma hjá starfsfólki Hveragerðisbæjar og standa vörð um gróðurhúsin í bæn- um. Framboð Frambjóðendur Okkar Hvera- gerðis fyrir sveitarstjórnakosningarnar. Okkar Hveragerði birtir framboðslista 2018

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.