Morgunblaðið - 24.04.2018, Side 13

Morgunblaðið - 24.04.2018, Side 13
Fjölskyldan Adda og Magnús með syni sína þrjá, Friðrik, Daða og Braga. Myndin er tekin af fjölskyldunni á Hótel Vestmannaeyjum sem hjónin keyptu fyrir sjö árum og reka í dag. kemur í ár ásamt konu sinni, Aldísi Arnardóttur. The Puffin Run-hlaupið Nú höfum við sem stöndum að Vestmannaeyjahlaupinu ákveðið að koma með nýtt utanvegahlaup, The Puffin Run (i. Lundahlaupið), sem er 20 km, hlaupið verður í fyrsta sinn í Eyjum á laugardaginn. Hlaupið verður að mestu á göngustígum og hlaupaleiðin er á ystu brúnum Heimaeyjar án þess að hlaupið sé á fjöll. The Puffin Run eða Heimaeyjarhringurinn er falleg og skemmtileg leið. Við prufuðum hringinn um síðustu helgi og líkaði þeim sem tóku þátt í prufuhlaupinu leiðin vel,“ segir Magnús, sem bendir á að boðið verði upp á einstaklings- keppni, tvímenningskeppni og fjög- urra manna boðhlaup. „Lundinn hefur mikið aðdráttar- afl. Hann er nú sestur upp, eins og við segjum. Það gerði hann um síð- ustu helgi og þá kom sumarið hjá okkur í Eyjum. Tímasetning hlaups- ins, 28. apríl, er í beinum tengslum við komu lundans. Það er hægt að sjá lunda á mörgum stöðum á leiðinni sem hlaupin er í The Puffin Run,“ segir Magnús sem vonast til þess að sem flestir taki þátt í hlaupinu, ekki síst þeir sem koma langt að. Hægt er að skrá sig á hlaup.is. Magnús segir að ferðamönnum sem sæki Vest- mannaeyjar heim og hafi áhuga á úti- vist og hreyfingu fari fjölgandi og áhugi á fjallahlaupum aukist sífellt. „Á sama tíma og við erum að undirbúa The Puffin Run-hlaupið er- um við að leggja gönguleiðir sem all- ir geta notið góðs af.“ Hlaup veitir vellíðan Magnús og Adda hafa tvisvar hlaupið í Gautaborgarhálfmaraþon- inu, sem er fjölmennasta hálf- maraþon í heimi. Þau hlupu árin 2010 og 2011 meðal 54 þúsund hlaupara. „Það er gífurlega gaman að taka þátt í maraþonhlaupum. Það er svo gott andrúmloft og allir eru sigur- vegarar. Í hlaupum eru keppendur ekki í samkeppni við aðra, þeir eru að keppa við sjálfa sig,“ segir Magn- ús en þau Adda hafa einnig tekið þátt í Berlínarmaraþoninu. „Að hlaupa gefur mér mikla vel- líðan. Ég hef verið að glíma við krankleika og hlaupin hafa hjálpað. Hlaupin gefa okkur hjónunum einnig samverustund, sem við þurfum reyndar ekki á að halda þar sem við erum saman öllum stundum í vinnunni,“ segir Magnús hlæjandi. Hann segir að það sé gott að fara út að hlaupa. „Ef ég er illa fyrirkallaður getur verið mikið átak að koma sér af stað en eftir nokkra kílómetra sé ég oft að það sem ég var að ergja mig yfir eru smámál.“ Magnús segir mikilvægt að hafa reglu á hlaupunum og hlaupa að minnsta kosti þrisvar til fjórum sinn- um í viku. „Veður er engin afsökun fyrir því að komast ekki út að hlaupa. Það er hægt að klæða af sér veðrið og í rokrassgatinu Eyjum er alltaf hægt að breyta um stefnu eftir því sem vindar blása.“ Innkoma Garðars Heiðars Magnús segir að Garðar Heiðar Eyjólfsson, sem kom til baka til Eyja í fyrra, hafi eflt hlaupmenninguna í Eyjum. „Garðar Heiðar stofnaði Eyja- skokkhópinn sem nú telur yfir hundrað félagsmenn. Hann hefur hjálpað okkur með skipulögðum æf- ingum og lyft okkur sem hlaupurum upp á hærra plan.“ Magnús segir miklar breytingar hafa átt sér stað á undanförnum 30 árum varðandi hreyfingu utanhúss. „Ef einhver sást úti að ganga eða hlaupa fyrir 30 til 35 árum var tekið eftir því og reiknað með að við- komandi væri hugsanlega nýkominn úr brjósklosaðgerð eða hefði fengið hjartaáfall. Í dag þykir skrýtið ef fólk hreyfir sig ekki,“ segir Magnús og ítrekar hversu góð hlaup eru fyrir andlega heilsu. „Í hlaupum sigrar þú sjálfan þig. Hlaup eru eins og góður jógatími og á hlaupunum ertu algerlega í núinu.“ Hlauparar Kári Steinn Karlsson, Eva Skapaas, Magnús Bragason og Adda Jóhanna Sigurð- ardóttir glöddust þegar Vestmannaeyjahlaupið var valið besta hlaup ársins 2017 af hlaup.is. The Puffin Run- hlaupaleiðin. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2018 Nú er tækifærið til þess að taka upp pensilinn á ný eða láta langþráðan draum um að mála með vatnslitum rætast. Loftbarinn á Loft Hostel hefur boð- ið upp á aðstöðu fyrir fólk til þess að hittast á vatnslitakvöldum á þriðju- dögum. Eitt slíkt verður haldið í kvöld klukkan 20. Íris María veitir ráðgjöf og kennslu fyrir þá sem vilja og í boði verða vatnslitir og pappír fyrir þá sem það þiggja. Að sjálfsögðu er þátttak- endum heimilt að koma með eigin liti og pappír. Vatnslitakvöld á Loft eru ekki hefðbundið námskeið. Þau eru líkari kaffihúsastemmingu þar sem ljúfur andi svífur yfir vötnum. Aðgangseyrir að vatnslitakvöldum er enginn. Hver og einn kemur á sín- um forsendum hvort sem fólk er að byrja að mála með vatnslitum, er lengra komið eða hefur ákveðið að taka upp pensilinn og listsköpunina á ný. Það er aldrei að vita hvort á Vatnslitakvöldum á Loft leynist lista- maður sem á eftir að láta að sér kveða. Vatnslistamenn framtíðarinnar Listamenn Á vatnslitakvöldum á Loftbarnum á Loft Hostel gætu leynst upp- rennandi vatnslitamenn eða þá að gamlir taktar gætu tekið sig upp hjá öðrum. Þægilegt andrúmsloft og sköp- un á Vatnslistakvöldi á Loftbar DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is DUX PASCAL SYSTEM Sérsniðna gormakaerfið Líkamar allra eru einstakir. Þess vegna býður Pascal de Luxe yfirdýnan upp á sérsniðin þægindasvæði sem gerir tveimur einstaklingum kleift að velja fullkomnu stillinguna fyrir axlirnar, neðra bakið og fótleggina þeirra. Pascal kerfið er í boði fyrir öll DUX rúm, annað hvort sem fellt inn í rúmið eða sem sérstök yfirdýna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.