Morgunblaðið - 24.04.2018, Page 23

Morgunblaðið - 24.04.2018, Page 23
UMRÆÐAN 23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2018 Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma Stjórn Fimleika- félags Hafnarfjarðar, FH, telur sig knúna til þess að koma á framfæri nokkrum staðreyndum er varða aðstöðumál knattspyrnudeildar félagsins sem af ein- hverjum mjög und- arlegum og í raun óskiljanlegum ástæð- um hafa verið skrum- skældar af ýmsum aðilum hér í bæ. Fimleikafélag Hafnarfjarðar hóf framkvæmdir í Kaplakrika á árinu 1968 og hafa því fram- kvæmdir þar staðið yfir nú í um 50 ár. Forystumenn félagsins á þeim tíma voru dugmiklir hug- sjónamenn með djarfa framtíð- arsýn sem segja má að lýsi sér í hinum glæsilegu mannvirkjum sem nú eru risin í Kaplakrika. Vissulega höfum við FH-ingar ekki staðið að þessu einir heldur átt gott samstarf við stjórnendur Hafnarfjarðarbæjar, en bærinn hefur með tíð og tíma aukið fram- lag sitt til uppbyggingar íþrótta- mannvirkja eins og önnur sveit- arfélög í landinu. Öllum er orðið ljóst að þróttmikið barna- og unglingastarf íþróttafélaganna er lykilatriði nú á tímum. Framlag FH til uppbyggingarinnar hefur verið mishátt á þessum fimm ára- tugum eða frá því að vera 100% í upphafi niður í 10% nú á allra síðustu árum. Framlag þetta á upphafsárum og reyndar fram til dagsins í dag var og er að mestu óeigingjörn sjálfboðaliðsvinna FH-inga og gjafir frá fyr- irtækjum og einstaklingum. Ómetanlegt í raun en þetta gerir það að verkum að eignarhlutur Fimleikafélags Hafnarfjarðar í mannvirkjum í Kaplakrika er vel á annan milljarð króna. FH hefur aldrei fengið fjárframlög úr Bæj- arsjóði Hafnarfjarðar til greiðslu vanskila vegna rekstrar deilda, öll fjárframlög bæjarsjóðs til fim- leikafélagsins hafa verið vegna mannvirkjauppbyggingar. Hafnarfjarðarbær lét nýverið fara fram óháða athugun á að- stöðuvanda knattspyrnunnar í Hafnarfirði yfir vetrarmánuðina. Niðurstaða þarfagreiningar þess- arar er skýr. Aðstöðuvandinn í Kaplakrika er verulegur, raunar með ólíkindum að fréttaflutn- ingur fjölmiðla skuli ekki snúa að þessum vanda. Skv. þarfagrein- ingunni er vöntunin í Kaplakrika fullstór knattspyrnuvöllur með þeim tækjum og tólum sem til þarf vegna vetrariðkunar. Aðal- stjórn FH hefur átt gott samtal við bæjaryfirvöld vegna þessa og með það í farteskinu að framkvæmd þessi er efst á forgangslista ÍBH hafa bæjaryf- irvöld tekið okkur vel og sýnt vilja til lausnar á málinu. Forráðamenn knatt- spyrnunnar í FH hafa ávallt leitað hag- kvæmustu lausna og má segja að Risinn, knatthús, beri þess merki. Ódýr í bygg- ingu og rekstri. Með sömu mark- mið að leiðarljósi hefur FH óskað eftir byggingu á stóru knatthúsi í Kaplakrika, ódýru húsi með lág- um rekstrarkostnaði, KNATT- SPYRNUSKJÓLI. Knatthús þetta yrði jú þriðja knatthúsið í Kaplakrika en FYRSTA knatt- húsið sem byggt yrði af Hafn- arfjarðarbæ. Knatthúsin sem fyr- ir eru, Dvergurinn (2015) og Risinn (2005), voru byggð af FH og rekstur þeirra er á hendi FH. Leigusamningur um Risann sem Hafnarfjarðarbær og FH gerðu í aðdraganda byggingar hússins er ein aðalástæða þess að reist var hagkvæmasta íþróttamannvirki á Íslandi. Enginn samningur hefur enn verið gerður um Dverginn, bygging og rekstur hússins alfar- ið verið á hendi FH. Bygging Dvergsins var félaginu erfið, en nauðsynleg. Án aðkomu Hafn- arfjarðarbæjar. Að fjármagna, byggja og reka íþróttamannvirki er jafnvel sveitarfélagi erfitt, hvað þá íþróttafélagi, en nauðsyn skapar lausnir. Barna- og ung- lingaráð knattspyrnudeildar (BUR) kom að málinu á afger- andi en sérstakan hátt; í miklu samráði við fjöldann allan af for- eldrum iðkenda náðist samstaða á afar fjölmennum félagsfundi um leigugreiðslu BUR vegna aðstöð- unnar. Foreldrar iðkenda greiða í raun að stórum hluta fyrir íþróttaaðstöðu barna sinna, eins- dæmi á Íslandi. Aðalstjórn FH vill þakka BUR og þá sérstaklega foreldrum iðkenda fyrir framlagið og þann mikla skilning sem þau hafa sýnt á málefninu. Dvergurinn og Risinn voru byggð og eru rekin af dótt- urfélagi Fimleikafélags Hafn- arfjarðar og knattspyrnudeildar félagsins, FH-knatthúsum ehf., en félagið er að jöfnu í eigu að- alstjórnar og knattspyrnudeildar og hefur verið það frá stofndegi félagsins. Aðstaða þessi er frá- bær að mörgu leyti en við FH- ingar höfum dregist aftur úr öðr- um félögum varðandi fullstóran knattspyrnuvöll. Allt tal um að aðstaða þessi sé orsök þess að knattspyrnudeild FH hafi innan sinna vébanda langflesta iðk- endur íþróttadeildar í Hafnarfirði er einfaldlega rangt, deildin var langstærsta íþróttadeild í Hafn- arfirði áður er knatthúsin voru tekin í notkun og hefur haldið því. Fjöldi iðkenda í íþróttadeild er vitanlega að mestu í takt við gæði, áhuga og árangur starfsins innan íþróttadeilda og þar hefur knattspyrnudeild FH verið í for- ystu alla þessa öld eins og til að mynda þjálfaramenntunarstyrkur ÍBH/RIO TINTO/Hafnarfjarð- arbæjar hefur sýnt á und- anförnum árum. Aðalstjórn FH hefur ekki tekið þátt í einhverri sagnfræði um greiðslur til uppbyggingar á ýms- um íþróttasvæðum í Hafnarfirði. Það að taka út einhver ákveðin ár og bera hlutina þannig saman er að okkar mati algjörlega út í hött og engum til framdráttar, sér- staklega ekki þegar sú sagnfræði er röng og verulega háum greiðslum til einstakra íþrótta- félaga sleppt. Aðalstjórn FH tel- ur að Hafnarfjarðarbæ hafi tekist ágætlega til með uppbyggingu íþróttamannvirkja á síðustu árum og vill óska bænum sérstaklega til hamingju með nýjasta mann- virkið, æfingahús fyrir körfu- bolta, Ólafssal, á Ásvöllum. Að síðustu viljum við fordæma þá neikvæðu og tilhæfulausu um- ræðu og jafnvel árásir sem fram hafa komið um þátt formanns knattspyrnudeildar FH í bygg- ingu knatthúsa félagsins í Kapla- krika. Því er grímulaust haldið fram að sá einstaklingur vinni með eigin hagsmuni að leiðarljósi. Raunveruleiki þessa er að vegna reynslu og kunnáttu formannsins, reynslu og kunnáttu sem félagið hefur getað nýtt sér án endur- gjalds í áratugi, hafa risið í Kaplakrika tvö og innan skamms þrjú hagkvæmustu knatthús landsins, hvort heldur sem litið er til byggingarkostnaðar eða rekstrar. Það skal sagt hér að fé- lagið fordæmir þær persónulegu árásir sem formaður knatt- spyrnudeildar hefur mátt þola vegna þessa máls. Hafnarfirði 18. apríl 2018 f.h. stjórnar Fimleikafélags Hafnarfjarðar. Að gefnu tilefni til upplýsing- ar fyrir Hafnfirðinga Eftir Viðar Halldórsson » Aðalstjórn FH hefur ekki tekið þátt í ein- hverri sagnfræði um greiðslur til uppbygg- ingar á ýmsum íþrótta- svæðum í Hafnarfirði. Viðar Halldórsson Höfundur er formaður Fimleika- félags Hafnarfjarðar. Á ráðstefnu sem Sjúkraliðafélag Ís- lands stendur fyrir þann 26. apríl næst- komandi um málefni aldraðra er velt upp þeirri spurningu hvort þörf sé á sértækum hjúkrunarheimilum fyrir fólk með geðfötl- un. Gegnum tíðina hafa málefni fólks með geð- fötlun setið á hakanum, jafnvel hef- ur gætt fordóma og fólk með geð- fötlun hefur ekki náð fram sínum réttindum þrátt fyrir gildandi lög þar um. Dæmi var um fólk sem hafði búið á Kleppi árum og ára- tugum saman eftir að hafa lokið meðferð en ekki verið útskrifað vegna þess að búsetuúrræði skorti. Árið 2001, eftir mikinn þrýsting frá hagsmunasamtökum og með nýrri stefnu í geðheilbrigðis- málum, var ákveðið að þetta fólk skyldi útskrifast af spítalanum og flytja í búsetuúrræði þar sem það gæti lifað sjálfstæðu lífi, með stuðningi og þjónustu. Fyrsti bú- setukjarninn fyrir fólk með geð- fötlun á höfuðborgarsvæðinu varð að veruleika og var opnaður þann 1. apríl 2001 að Sléttuvegi 9 í Reykjavík. Þetta búsetuúrræði reyndist mjög vel og árið 2005 var gert átak í húsnæðismálum fólks með geðfötlun þegar „Straum- hvarfaverkefninu“ var ýtt úr vör en söluandvirði Símans var nýtt að hluta til þess. Á þessum tíma til- heyrðu málefni fatlaðs fólks ríkinu en yfirfærsla málaflokksins til sveitarfélaga var árið 2011. Í dag, þegar 17 ár eru liðin frá opnun fyrsta búsetukjarnans, eru búsetukjarnar fyrir fólk með geð- fötlun á vegum Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar einungis 18. Það er því enn langt í land og bið- listinn eftir búsetuúrræðum tæm- ist ekki. Þörfin er ekki einungis fyrir fólk sem er að útskrifast af geðdeildum eða úr endurhæfingu heldur er einnig þörf á sértækum hjúkrunarheimilum fyrir fólk með geðfötlun til lengri eða skemmri tíma. Það er óhætt að fullyrða að betri heilsa og aukin lífs- gæði eigi sinn þátt í að lífaldur fólks með geðfötlun fer hækk- andi og í frekari þörf nú en áður fyrir hjúkrun. Þegar bú- setukjarnarnir voru opnaðir á sínum tíma var litið á þá sem heimili fólks en ekki stofnun og því ekki talin þörf á heilbrigð- ismenntuðu starfsfólki í búsetu- þjónustunni. Í upphafi var heldur ekki tekið með í reikninginn að not- endur búsetuþjónustunnar myndu eldast og vera í þörf fyrir hjúkrun síðar á lífsleiðinni. Staðan er þann- ig í dag að margir notendurnir eru orðnir aldraðir og í mikilli þörf fyr- ir sérhæfða hjúkrun og vöntun á heilbrigðismenntuðu starfsfólki í búsetuþjónustunni er mjög mikil. Þó stefnan sé að aldraðir eigi að geta búið sem lengst heima og not- ið heimahjúkrunar ef þörf krefur hentar húsnæðið oft mjög illa vegna aðgengis. Reynslan hefur því sýnt að mikil þörf er á sértækum hjúkrunar- heimilum fyrir fólk með geðfötlun. Hjúkrun þess þarf að vera sértæk og taka mið af andlegri og lík- amlegri heilsu, því er nauðsynlegt að á slíkum heimilum starfi geð- heilbrigðismenntað starfsfólk. Köllun er eftir opinberri stefnu í meðferð og þjónustu við fólk með geðfötlun og krafa um að uppbygg- ing búsetuúrræða og hjúkrunar- heimila fylgi eftir þörfinni. Eftir Jónu Jóhönnu Sveinsdóttur Jóna Jóhanna Sveinsdóttir »Dæmi var um fólk sem hafði búið á Kleppi árum og áratug- um saman eftir að hafa lokið meðferð en ekki útskrifað vegna þess að búsetuúrræði skorti. Höfundur er sjúkraliði með BS í sál- fræði og starfandi forstöðumaður í búsetuþjónustu fyrir fólk með geð- fötlun í Reykjavík. Er þörf á sértækum hjúkrunarheimilum fyr- ir fólk með geðfötlun? ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS HVAR ER NÆSTA VERKSTÆÐI?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.