Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.02.2018, Blaðsíða 46

Læknablaðið - 01.02.2018, Blaðsíða 46
106 LÆKNAblaðið 2018/104 M I N N I N G A R O R Ð Kennarar skilja eftir sig ýmiss konar minningar í hugum nemenda. Kennslu- hæfileikar eru engan veginn öllum gefnir. Engu að síður eiga flest okkar auðvelt með að nefna þá kennara frá barnaskóla til háskóla sem við teljum okkur skuldbund- in og minnumst til æviloka. Þau atriði sem sitja eftir í huga okkar eru þekking kennarans á námsgreininni og hæfileikinn til að koma inntaki hennar til skila. Þessir eiginleikar eru nauðsynlegir en ekki nægi- legir til að öðlast ævilangan sess í hugum nemenda. Til þurfa að koma umhyggja og virðing fyrir þeim og merkjanlegur áhugi á því, að fræðigreinin skili sér til nem- enda, sem þá eru fljótir að átta sig á gæð- um kennslunnar. Flest eigum við minn- ingar um kennara sem þannig er farið um, og þessi tilfinning fylgir okkur alla ævi. Í huga undirritaðs er Margrét Guðna- dóttir (7. júlí, 1929-2. janúar, 2018) ein þeirra kennara sem fylgja honum til ævi- loka. Ekki var ljóst sumarið 1954, að leiðir okkar ættu eftir að liggja svo saman, sem raun varð. Næstu sex áratugina, eða ríflega það, voru samskiptin tíð og náin, sérstaklega frá upphafi tíunda áratugar síðustu aldar. Margrét, í síðasta hluta læknanáms, kom fyrrnefnt sumar fyrst til starfa á Tilraunastöð Háskólans í meina- fræði á Keldum, sem á þeim tíma heyrðu til Mosfellssveitar í Gullbringu- og Kjós- arsýslu. Undirritaður var sex ára þennan júlímánuð, óráðinn um framtíðina, en man engu að síður vel þessi fyrstu kynni. Þetta sumar hófst vísindaferill Margrétar undir handleiðslu forstöðumanns Keldna, Björns Sigurðssonar (1913-1959). Björn hreifst strax af hæfileikum og dugnaði hennar, studdi og greiddi götu hennar til fram- haldsnáms í Bretlandi (London School of Hygiene) og Bandaríkjunum (Comm- unicable Disease Center í Montgomery, Alabama, og Yale University í New Haven, Connecticut). Björn fylgdist frá upphafi náið með ferli Margrétar og vænti mikils af vísindavinnu hennar. Að sérnámi loknu árið 1960 kom Mar- grét aftur að Keldum og starfaði þar til ársins 1969 er hún tók við starfi prófessors í sýklafræði við læknadeild Háskóla Ís- lands. Heil kynslóð íslenzkra lækna naut kennslu hennar næstu þrjá áratugina, þar til við tók eftirlaunaaldur árið 1999. Hún var skipulagður kennari, lét sér annt um læknanema, gaf hins vegar ekkert eftir væru þeir með uppsteyt. Samhliða kennslu stofnaði Margrét um miðjan áttunda áratuginn rannsóknastofu í veirufræði við Landspítalann og stjórn- aði stofnuninni næstu tuttugu árin. Þessir tímar voru oft erfiðir, ekki sízt við tilkomu alnæmisveirunnar um miðjan níunda áratug síðustu aldar. Auk almennrar þjónustu við greiningu veirusjúkdóma kannaði Margrét meðal annars árangur bólusetningar við rauðum hundum, eink- um meðal þungaðra kvenna. Margrét hélt áfram grundvallarrann- sóknum á hæggengum veirusýkingum, fyrst og fremst visnu/mæði, sem hún hafði hafið um miðjan sjötta áratuginn undir handleiðslu Björns Sigurðssonar. Þeim rannsóknum hélt hún áfram nánast til dauðadags, þótt komin væri því sem næst tvo áratugi fram yfir eftirlaunaaldur, bæði á landareign sinni á Vatnsleysuströnd og í samstarfi við vísindamenn á Kýpur. Það eru þessar rannsóknir, sem fleytt hafa nafni Margrétar á bækur hins alþjóðlega vísindasamfélags þar sem vænta má að hún verði þekkt um langa framtíð. Margrét eignaðist tvö börn, Guðna Franzson (f. 1961) og Eydísi Franzdóttur (f. 1963). Bæði börn Margrétar eru vel þekkt klassískt tónlistarfólk. Barnabörn eru sex og barnabarnabörn fjögur. Á þessum tímamótum minnast íslenzk- ir læknar prófessors Margrétar Guðna- dóttur með virðingu og þakklæti. Jóhannes Björnsson fyrrverandi ritstjóri Læknablaðsins Margrét Guðnadóttir, prófessor Margrét Guðnadóttir (7. júlí 1929 - 2. janúar 2018).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.