Læknablaðið - 01.02.2018, Blaðsíða 40
100 LÆKNAblaðið 2018/104
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
B. Eggertsson var einn frummælenda. Skjánotkun barna vakti
áhuga margra og var hver stóll setinn. Einnig nýtur gagnvirka
málþingið um tilfelli af Barnadeild Landspítalans sívaxandi
vinsælda og var fullt útúr dyrum. Vinnubúðir þar sem fjöldi
þátttakenda var takmarkaður fyllt ust strax og biðlistar mynd-
uðust en að lokum komust þó nær allir að sem vildu.
Það sem setti þó sterkastan svip á Læknadagana í ár var 100
ára afmæli Læknafélags Íslands sem fagnað var með veglegri
afmælishátíð í Eldborgarsalnum á opnunardeginum. Var hátíð-
in opin almenningi og dagskráin fjölbreytt; fróðleg og fagleg
erindi um læknisfræði og lýðheilsu auk kynningar á starfsemi
samtakanna Læknar án landamæra. Bretinn Anthony Costello
barnalæknir hjá WHO hélt frábæra tölu um heilsufar, mengun,
loftslagsbreytingar og misskiptingu auðs, - hún var snjöll, vel
flutt og sannarlega hrollvekjandi. Andri Snær Magnason flutti
hugvekju um samspil heilsufars og náttúru eins og honum
einum er lagið og síðan tók við glæsileg tónlistardagskrá þar
sem Sigríður Thorlacius, Sigurður Guðmundsson og Valdimar
ásamt hljómsveit leiddu áheyrendur í gegnum syrpu þekktra ís-
lensk sönglaga frá liðnum áratugum. „Þetta var einstaklega vel
heppnað og aðsókn fór framúr björtustu vonum okkar,“ segir
Sólveig framkvæmdastjóri.
Brynjólfur Mogensen, Þórar-
inn Arnórsson, Lúðvík Ólafs-
son og Magni Jónsson.
Magnús Gottfreðsson ritstjóri Læknablaðsins flutti afburða skelegga tölu um spænsku
veikina 1918 á þingi Félags áhugamanna um sögu læknisfræðina.
Páll Ásmundsson var gerður að heiðursfélaga LÍ á Læknadögum. Hann var um skeið ritstjóri Læknablaðsins og hefur verið velgjörðamaður þess ár og síð. Blaðið samfagnar með
honum og fjölskyldu hans.