Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.02.2018, Blaðsíða 50

Læknablaðið - 01.02.2018, Blaðsíða 50
110 LÆKNAblaðið 2018/104 Kristófer Þorleifsson formaður öldungadeildar LÍ kristofert@simnet.is Ný stjórn Öldungadeildar Læknafélags Íslands var kjörin á síðasta aðalfundi í maí 2017 til tveggja ára, en fráfarandi stjórn hafði setið í tvö kjörtímabil, eða í fjögur ár. Fráfarandi stjórn eru þökkuð frábær og öflug störf. Öldungadeild Læknafélags Íslands hefur nú slitið barnskónum, enda liðin tæp 24 ár frá stofnun hennar, en deildin var stofnuð 19. mars árið 1994. Með árun- um hefur starf öldungadeildar mótast og starfið verið í nokkuð föstu formi síðustu árin. Í lögum félagsins er tilgangur þess skilgreindur: Að gæta hagsmuna aldraðra lækna og stuðla að auknum samskiptum meðal þeirra, svo og að efla samskipti lækna almennt, félagslega og faglega. Starf félagsins hefur talsvert breyst með árun- um. Á fyrstu árunum voru félagsfundir strjálir, en með árunum hefur starfið eflst. Þannig hafa verið haldnir mánaðarlega fræðslufundir frá október og fram í maí og farnar hafa verið ferðir bæði innanlands og út fyrir landsteinana. Starfið í vetur hefur verið með hefð- bundnum hætti. Fræðslufundir hafa verið haldnir mánaðarlega frá því í október fyrsta miðvikudag hvers mánaðar. Fund- irnir hafa verið vel sóttir og á milli 55 og 65 félagar mætt á fundina. Efni fræðslu- fundanna hafa verið breytileg. Þannig fjölluðu Birna Jónsdóttir læknir og Dr. Bruno Frohlich mannfræðingur um „Múmíur“ eða Mummies í október, Jón Alfreðsson læknir um Ögmund Pálsson síðasta kaþólska biskupinn í Skálholti í nóvember og Gísli Einarsson læknir flutti í desember erindi sem hann nefndi „Ef Guð lofar“, en þar sagði hann frá dvöl sinni í Katar. Halldór Baldursson læknir flutti erindið „Þegar fylgdarskipið fórst“ í janúar og á febrúarfundinn kemur Svavar Gests- son fyrrv. ráðherra og sendiherra og mun flytja fyrirlestur sem hann nefnir „Gullni söguhringurinn í Dölum vestur“. Dagskrá funda í mars-maí mun svo liggja fyrir á næstunni. Allir þeir fyrirlestrar sem hafa verið fluttir í vetur hafa verið frábærir, fræðandi og skemmtilegir. Vegna breytinga á fundarsal læknafé- laganna hafa allir fundir félagsins verið haldnir í húsi Atlanta að Hlíðasmára 3 nema októberfundurinn. Líkur er á að frá og með mars verði fundirnir á ný í húsa- kynnum læknafélaganna að Hlíðasmára 8. Stefnt er að tveggja daga ferð í haust vestur í Dali á söguslóð Sturlunga og Lax- dælu. Einnig er stefnt að utanlandsferð, en enn hefur ekkert verið ákveðið í þeim efnum. Eins og kveðið er á um í lögum öldungadeildar á félagið að gæta hags- muna aldraðra lækna, svo sem varðandi lífeyrismál og fleira. Það kom mörgum læknum 70 ára og eldri í opna skjöldu þegar þeir fengu ekki að taka þátt í rafrænu kjöri á nýjum for- manni LÍ á síðasta ári. Í því sambandi var vitnað í 11. gr. laga LÍ þar sem kveðið var á um það að læknar 70 ára og eldri væru undanþegnir félagsgjaldi. Jafnframt var kveðið á um það að þeir einir sem staðið hefðu í skilum með félagsgjöld hefðu kosn- ingarétt. Þannig var hvergi kveðið á um það að læknar 70 ára og eldri hefðu ekki kosningarétt. Þeir eru ekki í vanskilum enda undanþegnir félagsgjaldi sem ég hef talið að væri gert til að létta greiðslubyrði en ekki til að svipta mannréttindum. Á síðasta aðalfundi LÍ í október 2017 bar ég upp tillögu um að læknar 70 ára og eldri hefðu full félagsréttindi, það er væru kjörgengir og með kosningarétt. Sú tillaga fékk engan hljómgrunn og voru á fundin- um gerðar breytingar á 11. gr. laga LÍ varð- andi 70 ára og eldri. „Félagsmaður sem er orðinn sjötugur og sem ekki starfar lengur samkvæmt kjarasamningi ríkisins og LÍ getur ákveðið að greiða ekki lengur félags- gjöld til LÍ. Ákveði félagsmaður að hætta greiðslu félagsgjalds nýtur hann hvorki kjörgengis né atkvæðisréttar í LÍ og fær ekki Læknablaðið nema gerast áskrifandi að því sérstaklega.“ Ekki fékk það heldur hljómgrunn að 70 ára og eldri yrðu áfram fullgildir en þyrftu ekki að greiða fullt ár- gjald heldur til dæmis 30-50% af árgjaldi. Þeir einir sem eru 70 ára og eldri og gerðir hafa verið að heiðursfélögum í LÍ samkv. 4. gr. laga LÍ greiða ekki félagsgjöld til LÍ en njóta allra sömu réttinda og greiðandi félagsmenn. Við setningu 100 ára afmælishátíðar LÍ í Eldborg í Hörpu mánudaginn 15. janúar 2018 gat formaður LÍ þess að félagar í LÍ væru milli 1300-1400, en innan öldunga- deildar væru rúmlega 270. Eru þá öldungarnir utan LÍ? Af sjónarhóli formanns öldunga Stjórn Öldungadeildar Kristófer Þorleifsson formaður, Jóhannes M. Gunnarsson ritari, Guðmundur Viggósson gjaldkeri. Kristrún Benediktsdóttir, Margrét Georgsdóttir. Öldungaráð Bergþóra Ragnarsdóttir, Hörður Alfreðsson, Magnús B. Einarson, Reynir Þorsteinsson, Snorri Ingimarsson, Þórarinn E. Sveinsson. Umsjón síðu Páll Ásmundsson Vefsíða: http://innri.lis.is/oldungadeild-li Ö L D U N G A D E I L D
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.