Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.02.2018, Blaðsíða 45

Læknablaðið - 01.02.2018, Blaðsíða 45
LÆKNAblaðið 2018/104 105 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson Nýtt stéttarfélag lækna leit dagsins ljós á Læknadögum þegar haldinn var stofnfundur Félags sjúkrahúslækna miðvikudaginn 17. janúar. Stofnun fé- lagsins kemur í kjölfar mikilla breytinga á skipulagi Læknafélags Íslands sem samþykktar voru á síðasta aðalfundi og kynntar hafa verið rækilega hér í blað- inu. Hið nýja félag á að rúma alla þá lækna sem starfa á sjúkrahúsum og opinberum stofnunum og skarast þannig að nokkru leyti við Félag almennra lækna en eins og fram kom á fundinum er ekkert sem hindrar þá er vilja að vera félagar í báð- um félögum eða þess vegna fleirum. Sjúkrahúslæknar voru áður í Læknafélagi Reykjavíkur en það verður héðan í frá stéttarfélag sjálfstætt starfandi lækna og getur því orðið skörun þar á milli ef lækn- ir starfar bæði sjálfstætt og á sjúkrahúsi. Viðbúið er að einhverjar breytingar verði á lögum Læknafélags Reykjavíkur á aðal- fundi nú í vor vegna þessa. Að Læknafélagi Íslands standa því nú fjögur félög: Félag sjúkrahúslækna, Félag almennra lækna, Læknafélag Reykjavíkur og Félag heimilislækna. Öll munu þau eiga tvo fulltrúa í stjórn LÍ og fara með atkvæði sinna félagsmanna á aðalfundi LÍ. Þeir félagar sem velja að vera í fleiri en einu félagi geta skipt atkvæði sínu til helminga á milli tveggja en þó ekki fleiri, þó sá möguleiki sé sannarlega hugsanlegur að einn og sami læknirinn geti verið félagi í öllum fjórum aðildarfélögum LÍ. Formenn þessara félaga eiga sæti í stjórn LÍ en auk þess kýs aðalfundur hvers félags einn fulltrúa úr sínum röðum til stjórnarsetu í LÍ en formaður LÍ er kosinn beinni rafrænni kosningu allra félaga í LÍ. Allt eru þetta breytingar sem unnið hefur verið að frá því snemma á síðasta ári og verður endanlega frá þeim gengið á næsta Stofnfundur Félags sjúkrahúslækna Fyrsta stjórn Félags sjúkrahúslækna, skipuð á Læknadögum, 17. janúar 2018. Frá vinstri: Ólafur Helgi Samúelsson gjaldkeri, Ragnheiður Baldursdóttir meðstjórnandi, María Gunnbjörnsdóttir formaður, Sunna Snædal ritari og Hjörtur Friðrik Hjartarson varaformaður. aðalfundi LÍ sem haldinn verður í lok október. Á stofnfundi Félags sjúkrahúslækna kynnti Dögg Pálsdóttir lögfræðingur LÍ lög hins nýja félags og eftir smávægilegar breytingar á einstökum greinum voru lögin borin upp til atkvæðis og samþykkt samhljóða. Ekki var minni samstaða um kosningu fyrstu stjórnar félagsins en til- laga undirbúningsnefndar að stjórn var samþykkt einum rómi og var ný stjórn því sjálfkjörin við dynjandi lófaklapp. Í hinni nýju stjórn sitja María Gunnbjörnsdóttir formaður, Hjörtur Friðrik Hjartarson vara- formaður, Ólafur Helgi Samúelsson gjald- keri, Sunna Snædal ritari og Ragnheiður Baldursdóttir meðstjórnandi. Nokkrar umræður urðu um félagsgjald og voru fundarmenn aðallega að velta fyrir sér hvort það kæmi að einhverju leyti í stað þess félagsgjalds sem þeir greiða til LÍ. Svo er ekki enda munu aðildarfé- lögin fjögur ekki bera neinn kostnað af launum formanna sinna heldur er það LÍ sem greiðir þau og sagði Dögg Pálsdóttir að helsti kostnaðurinn sem hið nýja félag mætti gera ráð fyrir, væri við ferðir stjórn- armanna þar sem líklegt væri að einn eða fleiri þeirra kæmu af sjúkrastofnunum utan af landi. Var félagsgjald samþykkt 5000 krónur. Í stuttu ávarpi í lok fundarins þakkaði nýi formaðurinn fundarmönnum traustið og sló svo á létta strengi og kvaðst hafa vonað að fram kæmi mótframboð því undirbúningsnefndin hefði hitt á sig í kæruleysiskasti og hún því játað því að gefa kost á sér. Af meiri alvöru sagði hún framundan vera gerð nýs kjarasamnings fyrir sjúkrahúslækna og nyti hún þar góðs af samstarfi við Sigurveigu Pétursdóttur formann samninganefndar LÍ í síðustu samningalotu við ríkisvaldið. Sjúkrahúslæknar á Akureyri voru einnig viðstaddir stofnfundinn með rafrænum hætti þar sem fundinum var streymt til þeirra og gátu þeir því tekið fullan þátt í samhljóða atkvæðagreiðsl- unum öllum við mikil fagnaðarlæti beggja megin. Það kom þó fram að allir sem ganga í félagið á þessu fyrsta starfsári þess munu teljast til stofnfélaga og er gert ráð fyrir að þetta verði eitt stærsta stéttarfélag lækna innan Læknafélags Íslands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.