Læknablaðið - 01.02.2018, Blaðsíða 45
LÆKNAblaðið 2018/104 105
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
Nýtt stéttarfélag lækna leit dagsins
ljós á Læknadögum þegar haldinn var
stofnfundur Félags sjúkrahúslækna
miðvikudaginn 17. janúar. Stofnun fé-
lagsins kemur í kjölfar mikilla breytinga
á skipulagi Læknafélags Íslands sem
samþykktar voru á síðasta aðalfundi og
kynntar hafa verið rækilega hér í blað-
inu.
Hið nýja félag á að rúma alla þá lækna
sem starfa á sjúkrahúsum og opinberum
stofnunum og skarast þannig að nokkru
leyti við Félag almennra lækna en eins
og fram kom á fundinum er ekkert sem
hindrar þá er vilja að vera félagar í báð-
um félögum eða þess vegna fleirum.
Sjúkrahúslæknar voru áður í Læknafélagi
Reykjavíkur en það verður héðan í frá
stéttarfélag sjálfstætt starfandi lækna og
getur því orðið skörun þar á milli ef lækn-
ir starfar bæði sjálfstætt og á sjúkrahúsi.
Viðbúið er að einhverjar breytingar verði
á lögum Læknafélags Reykjavíkur á aðal-
fundi nú í vor vegna þessa.
Að Læknafélagi Íslands standa því nú
fjögur félög: Félag sjúkrahúslækna, Félag
almennra lækna, Læknafélag Reykjavíkur
og Félag heimilislækna. Öll munu þau eiga
tvo fulltrúa í stjórn LÍ og fara með atkvæði
sinna félagsmanna á aðalfundi LÍ. Þeir
félagar sem velja að vera í fleiri en einu
félagi geta skipt atkvæði sínu til helminga
á milli tveggja en þó ekki fleiri, þó sá
möguleiki sé sannarlega hugsanlegur að
einn og sami læknirinn geti verið félagi í
öllum fjórum aðildarfélögum LÍ.
Formenn þessara félaga eiga sæti í
stjórn LÍ en auk þess kýs aðalfundur hvers
félags einn fulltrúa úr sínum röðum til
stjórnarsetu í LÍ en formaður LÍ er kosinn
beinni rafrænni kosningu allra félaga í LÍ.
Allt eru þetta breytingar sem unnið hefur
verið að frá því snemma á síðasta ári og
verður endanlega frá þeim gengið á næsta
Stofnfundur Félags sjúkrahúslækna
Fyrsta stjórn Félags sjúkrahúslækna, skipuð á Læknadögum, 17. janúar 2018. Frá vinstri: Ólafur Helgi Samúelsson
gjaldkeri, Ragnheiður Baldursdóttir meðstjórnandi, María Gunnbjörnsdóttir formaður, Sunna Snædal ritari og
Hjörtur Friðrik Hjartarson varaformaður.
aðalfundi LÍ sem haldinn verður í lok
október.
Á stofnfundi Félags sjúkrahúslækna
kynnti Dögg Pálsdóttir lögfræðingur LÍ
lög hins nýja félags og eftir smávægilegar
breytingar á einstökum greinum voru
lögin borin upp til atkvæðis og samþykkt
samhljóða. Ekki var minni samstaða um
kosningu fyrstu stjórnar félagsins en til-
laga undirbúningsnefndar að stjórn var
samþykkt einum rómi og var ný stjórn því
sjálfkjörin við dynjandi lófaklapp. Í hinni
nýju stjórn sitja María Gunnbjörnsdóttir
formaður, Hjörtur Friðrik Hjartarson vara-
formaður, Ólafur Helgi Samúelsson gjald-
keri, Sunna Snædal ritari og Ragnheiður
Baldursdóttir meðstjórnandi.
Nokkrar umræður urðu um félagsgjald
og voru fundarmenn aðallega að velta
fyrir sér hvort það kæmi að einhverju leyti
í stað þess félagsgjalds sem þeir greiða
til LÍ. Svo er ekki enda munu aðildarfé-
lögin fjögur ekki bera neinn kostnað af
launum formanna sinna heldur er það LÍ
sem greiðir þau og sagði Dögg Pálsdóttir
að helsti kostnaðurinn sem hið nýja félag
mætti gera ráð fyrir, væri við ferðir stjórn-
armanna þar sem líklegt væri að einn eða
fleiri þeirra kæmu af sjúkrastofnunum
utan af landi. Var félagsgjald samþykkt
5000 krónur.
Í stuttu ávarpi í lok fundarins þakkaði
nýi formaðurinn fundarmönnum traustið
og sló svo á létta strengi og kvaðst hafa
vonað að fram kæmi mótframboð því
undirbúningsnefndin hefði hitt á sig í
kæruleysiskasti og hún því játað því að
gefa kost á sér. Af meiri alvöru sagði hún
framundan vera gerð nýs kjarasamnings
fyrir sjúkrahúslækna og nyti hún þar góðs
af samstarfi við Sigurveigu Pétursdóttur
formann samninganefndar LÍ í síðustu
samningalotu við ríkisvaldið.
Sjúkrahúslæknar á Akureyri voru
einnig viðstaddir stofnfundinn með
rafrænum hætti þar sem fundinum var
streymt til þeirra og gátu þeir því tekið
fullan þátt í samhljóða atkvæðagreiðsl-
unum öllum við mikil fagnaðarlæti beggja
megin. Það kom þó fram að allir sem
ganga í félagið á þessu fyrsta starfsári þess
munu teljast til stofnfélaga og er gert ráð
fyrir að þetta verði eitt stærsta stéttarfélag
lækna innan Læknafélags Íslands.