Læknablaðið - 01.02.2018, Blaðsíða 20
80 LÆKNAblaðið 2018/104
Mælingar á svefni og hreyfingu með hröðunarmæli
Actigraph GT3X+ hröðunarmælar (ActiSleep by Actigraph Inc.
Pensacola Florida, USA) voru notaðir til mælinga á hreyfingu og
svefni þátttakenda. Þessir hröðunarmælar mæla og vista hreyf-
ingu (slög/mín) í þremur plönum (triaxial). Mælarnir eru hann-
aðir fyrir rannsakendur og hafa ekkert notendaviðmót. Mælarnir
eru litlir (3,8 cm x 3,7 cm x 1,8 cm) og léttir (27 g) kubbar festir
með ól og bornir líkt og úr. Þátttakendur báru hröðunarmæli á
úlnlið víkjandi handleggs samfellt í 7 sólarhringa. Hreyfibreyt-
ur og svefnbreytur voru reiknaðar í Actilife forritinu (6.13.0) frá
Actigraph. Hreyfing var reiknuð sem meðaltal slaga á mínútu á
dag (3D-slög/mín/dag) yfir vökutíma vikunnar. Þá nema mælarnir
birtustig og því má fylgjast með breytingum á dagsbirtu yfir rann-
sóknartímabilið með þeim.
Við útreikninga á hvíldartíma, svefnlengd og svefnnýtingu var
notast við reikniformúlu Sadeh og félaga, sérstaklega þróaðri fyrir
ungmenni.16 Réttmæti og áreiðanleiki Actilife við svefnrannsókn-
ir hefur verið borinn saman við svefnrita (polysomnography, PSG)
hjá öðrum aldurshópum og mælt er með að staðsetja mælana á
úlnið.19 Ungmennin fylltu út svefndagbók þá viku sem þau báru
hröðunarmælinn og var dagbókin notuð til að staðfesta svefntíma
reiknaðan af Actilife og leiðrétta skekkjur á svefnmati forritsins
ef þurfti.
Hvíldartími, sá tími sem ráðleggingar um svefnlengd (8-10
klukkustundir) eru miðaðar við,4 var reiknaður í klukkustund-
um og mínútum frá þeim tíma sem viðkomandi lagðist til hvílu
að kvöldi og þar til hann stóð upp að morgni. Svefnlengd er skil-
greind sem sá tími sem þátttakandi sefur í klukkustundum og
mínútum en svefnnýting (sleep efficiency) er skilgreind sem hlutfall
svefnlengdar af hvíldartíma í prósentum.
Hröðunarmælarnir voru fyrirfram stilltir á upphafspunkt mæl-
inga og hófust mælingar nokkrum klukkustundum eftir ásetn-
ingu mælis, þar sem talið var að þátttakendur væru meðvitaðir
um hreyfingu sína fyrstu klukkustundina. Niðurstöður úr mæl-
unum töldust gildar ef þátttakendur báru mælana í að minnsta
kosti 14 klukkutíma á dag, í þrjá skóladaga og einn frídag. Lengsta
svefnlota einstaklings dag hvern var skilgreind sem nætursvefn
og aðrar svefnlotur sem daglúrar. Sadeh-reikniformúlan greinir
svefn út frá 11 mínútna glugga þar sem 5 lotur aftur í tímann og
næstu 5 lotur fram á við eru viðmið um hreyfingu eða kyrrsetu
viðkomandi. Daglúrar voru ekki teknir með í útreikninga á svefn-
lengd þar sem einungis 15 manns töldust hafa sofnað að deginum,
í alls 19 skipti.
Mælingar á hreyfingu og svefni með spurningalistum
Þátttakendur svöruðu spurningalista á spjaldtölvu um ýmsa þætti
tengda heilsu, þar á meðal hreyfingu, þátttöku í íþróttum og lík-
amsrækt og svefnvenjur. Samantekt úr spurningalista varðandi
líkamlega áreynslu og svefn má sjá á mynd 1.
Sem viðmið um að hreyfiráðleggingum Embættis landlæknis
væri náð var notast við svar möguleikann „meira en 6 klukku-
Mynd 1. Samantekt svarmöguleika úr spurningalista.
R A N N S Ó K N
Tafla I. Lýsandi tölfræði.
Drengir (n=106) Stúlkur (n=160) Allir (n=266)
Meðaltal ± SD Meðaltal ± SD Meðaltal ± SD
Aldur (ár) 15,8 ± 0,3 15,9 ± 0,3 15,8 ± 0,3
Hæð (cm) 178,4 ± 18,3 166,9 ± 14,4 171,5 ± 8,1
Þyngd (kg) 69,1 ± 12,8 62,0 ± 11,3 64,9 ± 11,0
LÞS (kg/m2) 21,7 ± 3 22,2 ± 3,2 22,0 ± 3,1
Skammstafanir: n, fjöldi þátttakenda. LÞS, líkamsþyngdarstuðull. SD= Standard
deviation = staðalfrávik.
Tafla II. Niðurstöður úr spurningalista. Fjöldi (hlutfall).
Hlutlægar breytur Drengir (n=106) Stúlkur (n=160) Allir (n=266) Samanburður milli kynja p-gildi (χ2 próf)
Hreyfing
Stundar íþróttir með íþróttafélagi 81 (76,4) 108 (67,5) 189 (71,1) 0,15
Íþróttaiðkun eða hreyfing >6 klst/viku 56 (52,8) 59 (36,9) 115 (43,2) 0,01
Reynir á þig þannig að þú svitnir eða mæðist >6
daga/viku
42 (39,6) 47 (29,4) 89 (33,5) 0,11
Sefur þú nóg?
Ég sef of mikið 2 (1,9) 1 (0,6) 3 (1,1) 0,78
Ég sef oftast nóg 53 (50,0) 83 (51,9) 136 (51,1)
Ég sef nóg um helming nótta 28 (26,4) 39 (24,4) 67 (25,2)
Ég sef mjög sjaldan nóg 23 (21,7) 37 (23,1) 60 (22,6)
Skammstafanir: n, fjöldi þátttakenda. P-gildi er reiknað með χ2 prófi milli kynja.
Spurning Samantekt svarmöguleika
Hversu margar klukkustundir æfir þú íþróttir
eða stundar líkamsrækt í venjulegri viku?
≤ 6 klst í viku
≥ 6 klst í viku
Hversu oft reynir þú á þig líkamlega þannig að
þú mæðist verulega eða svitnir?
≤ 6x í viku
≥ 6x í viku
Stundar þú íþróttir?
Já
Nei
Sefur þú nóg?
Ég sef of mikið
Ég sef oftast nóg
Ég sef nóg um helming nátta
Ég sef mjög sjaldan nóg