Læknablaðið - 01.02.2018, Blaðsíða 41
LÆKNAblaðið 2018/104 101
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
Tónlist átti þó eftir að hljóma meira á
Læknadögunum því Óttar Guðmunds-
son ásamt Karlakórnum Fóstbræðrum og
Hildigunni Einarsdóttur sópransöngkonu
fluttu dagskrá helgaða tónskáldinu og
lækninum Sigvalda Kaldalóns á þriðju-
dagskvöldinu. Var það endurtekinn
flutningur frá fyrra ári sem segir sitt um
vinsældirnar. „Þetta var svo flott dagskrá
að það var eiginlega synd að RÚV var ekki
á staðnum til að taka upp og flytja síðar í
sjónvarpinu,“ segir Sólveig.
Áhorfendur troðfylltu Norðurljós og
þeirra á meðal var Auðólfur Gunnarsson
læknir. Hann sendi Læknablaðinu eftirfar-
andi frásögn og vísu af þessu tilefni:
Vísan varð til á fögru sumarkvöldi, þegar við Unnur kona
mín gistum, ásamt Jóni G. Stefánssyni og Helgu Hann-
esdóttur geðlæknum, í læknisbústað Sigvalda Kaldalóns
að Árnesi á Snæfjallaströnd, sem þá hafði verið gerður upp
nýlega fyrir bændagistingu. Eigandi jarðarinnar hafði farist
veturinn áður í hræðilegu flugslysi í Ljósufjöllum á Snæfells-
Ólafur Guðlaugsson
smitsjúkdómalæknir
talaði um land og lýð
í spænsku veikinni
1918. Nútíminn var
þá kominn með ann-
an fótinn til landsins
með kvikmynda-
húsum og blaða- og
tímaritaútgáfu og
þá var þessi mynd
til dæmis í bíó í
Reykjavík: Hearts
Afire með stórstjörn-
unni Clara Kimball
Young. Hann ræddi
líka almennt um
flensur og ýmis fár,
og þann viðbúnað
sem til er hérlendis
ef slík vá kæmi upp
aftur.
Björn Hjálmarsson, Ingibjörg Eva Þórisdóttir, Katrín Davíðsdóttir, Eyjólfur Örn Jónsson og Óli Örn Atlason –
frummælendur á þinginu um skjánotkun barna og unglinga, og Katrín stýrði fundi. Efnið var bæði ógnvekjandi og
áhugavekjandi, - nær því hvert mannsbarn er öllum stundum á netinu, - hvaða afleiðingar hefur það í alvörunni?
Upplýsingar um mæðradauða og keisaraskurði á heimsvísu, úr gögnum WHO sem
Costello sýndi afmælisgestum.
Fimmtán læknar voru gerðir
að heiðursfélögum Læknafélags
Íslands á stóru 100 ára afmæl-
ishátíðinni í Eldborg: Tryggvi Ás-
mundsson, Tómas Zoëga, Sveinn
Magnússon, Þorbjörn Jónsson,
Páll Ásmundsson, Sigurður V.
Sigurjónsson, Katrín Fjeldsted,
Sigurður Guðmundsson, Jón Sig-
urðsson, Guðmundur Björnsson,
Birna Jónsdóttir, Guðmundur I.
Eyjólfsson, Guðmundur Odds-
son, Haukur Heiðar Ingólfsson og
Jóhann Heiðar Jóhannsson.