Læknablaðið - 01.02.2018, Blaðsíða 21
LÆKNAblaðið 2018/104 81
stundir á viku“ við spurningunni „hversu margar klukkustundir æfir
þú íþróttir eða stundar líkamsrækt í venjulegri viku?“
Tölfræðiúrvinnsla
Munur á hlutföllum milli hópa í flokkabreytum úr spurningalista
var kannaður með Kí-kvaðrat prófi, til dæmis munur á íþrótta-
þátttöku milli kynja. Tvíhliða dreifigreining var notuð til að bera
saman meðaltal svefns og hreyfingar (samfelldar breytur mældar
með hreyfimælum) með pöruðum samanburði milli skóladaga og
frídaga annars vegar og samanburði milli drengja og stúlkna hins
vegar. Þá voru víxlhrif milli skóladaga/frídaga og kyns könnuð.
Tvíhliða dreifigreining var einnig notuð til að bera saman með-
alhreyfingu mælda með hreyfimælum eftir þátttöku í íþróttum
og hreyfingu samkvæmt spurningalista. Einhliða dreifigreining
var notuð til að bera saman meðaltal svefnbreyta mældum með
hreyfimælum milli flokkabreyta úr spurningalista. T-próf var not-
að til að bera saman svefn mældan með hreyfimælum við þátt-
töku í íþróttum og hreyfingu samkvæmt spurningalista. Notuð
voru Tukey eftir-á-próf til að kanna mun milli hópa (þar með talin
sérhver samsetning á skóla/frídögum og stúlkum/drengjum) með
Bonferroni-leiðréttingu.
Pearson-fylgnistuðull var notaður til að kanna tengsl milli
hreyfingar, svefns og dagsbirtu. Marktektarmörk voru skilgreind
við p-gildi 0,05 eða minna. Tölfræðileg úrvinnsla fór fram með
forritunum Excel og Rstudio (útgáfa 0.99.482).
Niðurstöður
Í töflu I er einkennum úrtaksins lýst. Í rannsókninni voru 266
einstaklingar með gild hreyfi- og svefngildi úr hreyfimælum,
gildir dagar fyrir hreyfingu voru að meðaltali 6,1 ± 0,6 og gild-
ar nætur fyrir svefn voru 7,1 ± 0,7. Meðalaldur þátttakenda var
15,8 ± 0,3 ár. Meðallengd dagsbirtu yfir rannsóknartímabilið var
17,6 ± 1,8 klst, stystur dagur var 15,1 klukkustund og lengstur 20,5
klukkustundir. Engin tengsl fundust milli dagsbirtu og hvíldar-
tíma. Hins vegar fundust tengsl milli dagsbirtu og hreyfingar
(3D-slög/dag/mín) yfir vikuna hjá öllum þátttakendum (r=0,18,
p=0,004), stúlkum (r=0,22, p=0,005) en ekki hjá drengjum.
Tafla II sýnir niðurstöður úr spurningalistum. Marktækt hærra
hlutfall drengja en stúlkna stundaði íþróttir eða líkamsrækt í 6
tíma eða meira á viku, eða 52,8% drengja á móti 36,9% stúlkna
(p=0,01). Einnig sagðist hærra hlutfall drengja en stúlkna mæðast
eða svitna verulega 6 sinnum í viku eða oftar. Ekki var munur
milli kynja á því hversu oft þátttakendur töldu sig sofa nóg.
Tafla III sýnir hreyfingu og svefn vikunnar samkvæmt
hreyfimælum. Ekki var marktækur munur á hreyfingu stúlkna
og drengja alla daga vikunnar eða skóladaga, hins vegar var víxl-
verkun milli skóladaga/frídaga og kyns, stúlkur hreyfðu sig mark-
R A N N S Ó K N
Tafla III. Niðurstöður úr hreyfimælum, skipt eftir kyni og dögum. Samanburður á milli skóladaga miðað við frídaga og á drengjum miðað við stúlkur. Víxlhrif milli
skóladaga/frídaga og kyns.
Drengir meðaltal ± SD) Stúlkur (meðaltal ± SD) Skóla/frídagar
p
Drengir/Stúlkur
p
Víxlhrif
p
Hlutlægar breytur Skóladaga Frídaga Alla daga Skóladaga Frídaga Alla daga
Hreyfing
Hreyfing (3D-slög/mín/
dag)
2215,2 ±
493,0
1645,8 ±
537,3
1991,8 ±
463,4
2180,4 ±
520,5
1857,4 ±
506,6
2049,4 ±
474,3
<0,001 0,13 <0,001*
Svefn
Hvíldartími (klst/dag) 7,04 ± 0,79 8,45 ± 1,36 7,77 ± 0,70 7,07 ± 0,79 8,43 ± 1,07 7,56 ± 0,68 <0,001 0,981 0,72
Svefntími (klst/dag) 6,17 ± 0,72 7,3 ± 1,2 6,6 ± 0,67 6,2 ± 0,70 7,4 ± 0,96 6,63 ± 6,2 <0,001 0,566 0,814
Svefnnýting (%) 87,9 ± 4,5 86,7 ± 4,2 87,5 ± 3,9 87,8 ± 4,5 87,9 ± 5,1 87,8 ± 4,4 0,07 0,294 0,017
Hvíldust >= 8 klst n (%) 8 (5,0) 73 (68,9) 23 (21,7) 21 (19,8) 105 (65,6) 38 (23,8) <0,001 0,744 0,21
Sváfu >= 8 klst n (%) 1 (0,6 ) 27 (25,5 ) 2 (1,9 ) 0 (0,0 ) 38 (23,8 ) 3 (1,9 ) <0,001 0,624 0,887
Tafla IV. Huglægt mat borið saman við hlutlægt mat á hreyfingu.
Hlutlægt mat á hreyfingu úr hröðunarmæli (3D-slög/mín/dag)
Drengir Stúlkur Allir Já/Nei Drengir/ Stúlkur Víxlhrif
Já Nei Já Nei Já Nei p p p
Huglægt mat á hreyfingu
Stundar íþróttir með íþróttafélagi 2099,4 ±
438,9
1643,3 ±
363,2
2160,4 ±
474,0
1818,8 ±
386,9
2134,3 ±
459,1
1761,8 ±
385,9
<0,001 0,097 0,359
Íþróttaiðkun eða hreyfing >6 klst/viku 2134,7 ±
398,3
1831,8 ±
482,3
2171,1 ±
481,2
1978,3 ±
457,8
2153,4 ±
441,3
1929,8 ±
469,6
<0,001 0,099 0,343
Reynir á þig þannig að þú svitnir eða mæðist
>6 daga/viku
2148,6 ±
434,7
1888,9 ±
455,8
2240,2 ±
475,6
1970,1 ±
452,6
2197,0 ±
456,5
1940,7 ±
454,2
<0,001 0,14 0,931
3D-slög/mín/dag meðaltal af slögum á mínútu á dag.