Læknablaðið - 01.02.2018, Blaðsíða 47
LÆKNAblaðið 2018/104 107
M I N N I N G A R O R Ð
„Mér er sama hvert þið ætlið að fara, ég
kem með.“ Þessa afdráttarlausu yfirlýs-
ingu gaf Margrét Guðnadóttir á fundi
okkar samstúdentanna frá MR árið 1949,
þegar við löngu síðar fórum að skipu-
leggja sameiginlegar ferðir, innanlands
og utan. Margrét stóð sannarlega við sín
orð, eins og hún gerði jafnan, því ekki nóg
með að hún færi með í allar ferðir heldur
mætti hún alltaf á mánaðarlega fundi
þessa hóps.
Margrét kom sveitastelpa í bæinn og
ég kynntist henni fyrst þegar við sát-
um saman í 1. bekk í Gagnfræðaskóla
Reykvíkinga við Vonarstræti, sem þá var
eins og unglingaskólar á okkar dögum,
undirbúningsskóli fyrir menntaskólana.
Þar sá ég ekki bara hvað hún var mikill
framúrskarandi námsmaður, glósaði af ná-
kvæmni öll þessi undarlegu orð í dönsku
og ensku sem við nýgræðingar vorum
að kljást við, heldur líka hvað hún var
óvenjulega heilsteypt manneskja. Eftir á að
hyggja held ég að það orð lýsi henni einna
best: Hún var heilsteypt. Svo skildu leiðir,
því í MR fór Margrét í stærðfræðideild,
sú mikla raunvísindakona sem hún var,
en ég fór í máladeild. Á milli okkar hafði
þó þegar myndast góð vinátta sem hélst
alla tíð, enda Margrét óvenjulega traust í
alla staði og í raun höfðum við í grunninn
svipaða afstöðu til lífsins.
Samskipti okkar urðu svo stopulli eftir
útskrift og framhaldsnám. Við misstum
hvor af annarri á miðjum aldri, vissum
samt alltaf hvað hvor okkar var að sýsla
hverju sinni í málefnum þjóðfélagsins,
hvor á sínum kanti, ég í leikhúsinu og hún
í rannsóknunum, en reglulegt samband
hófst svo að nýju þegar stúdentaárgangur-
inn frá 1949 fór að hittast reglulega, sem
hann hefur verið einstaklega iðinn við, og
Margrét lét sig aldrei vanta.
Ég var svo lánssöm, í síðustu utan-
landsferð okkar, til York á Englandi, að
ég var henni samferða í gegnum hið
merkilega læknaminjasafn sem þar er.
Margrét var auðvitað þarna á heimavelli
og viskubrunnur, en það var ógleymanlegt
augnablik þegar hún benti allt í einu á
veggspjald og sagði stundarhátt: „Þarna er
hann, bandormurinn! Ég kom upp í hon-
um hjá Niels Dungal!“. Við árgangssystkin
sem höfðum elt hana um safnið vorum þá
fljót að rifja upp að það var á því prófi sem
hún hafði náttúrlega brillerað með slíkri
frammistöðu að prófdómarinn, Björn Sig-
urðsson á Keldum, sem vildi gefa henni 10
fyrir frammistöðuna, hafði hringt í hana á
eftir og boðið henni vinnu við rannsóknir
á Keldum. Það reyndist afdrifaríkt því
Keldur og svo framhaldsrannsóknir á veir-
um urðu starfsvettvangur og starfssvið
langrar starfsævi Margrétar Guðnadóttur.
Eftir fræðslustundina með Margréti um
þennan sögulega bandorm í York, töldum
við öll, aldnir samstúdentar hennar, okkur
fær í flestan sjó um hegðun hans og at-
gervi. Það segir mest um kennarahæfileika
Margrétar, enda var hún rómaður kennari
í læknadeildinni í áratugi.
Mér er líka í fersku minni langt samtal
okkar Margrétar í síðustu ferð árgangsins,
sem var til Grindavíkur. Þá vorum við
aftur upp á nýtt sessunautar og í ljósi þess
hvar við vorum staddar spurði ég hana
um lífið á Vatnsleysuströndinni fyrr á
árum og hvert fólkið hefði sótt í kaupstað.
Þá sagði hún mér að faðir hennar hefði
farið ríðandi til Keflavíkur og sennilega
einhvern tíma til Grindavíkur og við
fylgdum honum í huganum eftir þeirri leið
sem við töldum að hann hefði farið. Áður
vissi ég að hann hafði misst fyrri konu
sína á Rangárvöllum, þaðan sem hann var
ættaður, flutt hingað á suðvesturhornið
og fór aldrei austur aftur. Margrét – sem
við skólasystkin kölluðum alltaf Möggu
Guðna – átti minningar um litríkt mann-
lífi á Vatnsleysuströnd í uppvexti sínum.
Þar hefðu allir hjálpast að, samstaða og
samhjálp hefði ríkt þar á milli bæjanna,
og einnig var athyglisverð lýsing hennar á
því hversu menntun var þar mikils metin.
Ég skildi að Margrét var alin upp við þá
skoðun að menntun væri eitt það besta
sem hægt væri að hugsa sér, og skýrir að
hluta þá vegferð með vísindunum sem
Margrét kaus sér. Þetta var ógleymanlegt
samtal.
Það er óhætt að segja að fundir okkar
samstúdenta frá 1949 verði fábrotnari nú
þegar Margrét Guðnadóttir er fallin frá.
Við söknum góðs vinar í stað, og sjálf kveð
ég góða, hlýja og trausta vinkonu. Um
vísindaleg afreksverk hennar mætti hafa
mörg orð og enginn vafi á því að orðstír
hennar á því sviði mun lengi uppi. Þar var
hún þjóðarsómi og fyrir það ber að þakka.
Vigdís Finnbogadóttir
Margrét Guðnadóttir - minning
Myndin af þeim stallsystrum var tekin á Læknadögum árið 2009 þar sem Margrét var heiðursgestur.