Læknablaðið - 01.02.2018, Page 50
110 LÆKNAblaðið 2018/104
Kristófer Þorleifsson
formaður öldungadeildar LÍ
kristofert@simnet.is
Ný stjórn Öldungadeildar Læknafélags
Íslands var kjörin á síðasta aðalfundi í maí
2017 til tveggja ára, en fráfarandi stjórn
hafði setið í tvö kjörtímabil, eða í fjögur
ár. Fráfarandi stjórn eru þökkuð frábær og
öflug störf.
Öldungadeild Læknafélags Íslands
hefur nú slitið barnskónum, enda liðin
tæp 24 ár frá stofnun hennar, en deildin
var stofnuð 19. mars árið 1994. Með árun-
um hefur starf öldungadeildar mótast og
starfið verið í nokkuð föstu formi síðustu
árin. Í lögum félagsins er tilgangur þess
skilgreindur: Að gæta hagsmuna aldraðra
lækna og stuðla að auknum samskiptum
meðal þeirra, svo og að efla samskipti
lækna almennt, félagslega og faglega. Starf
félagsins hefur talsvert breyst með árun-
um. Á fyrstu árunum voru félagsfundir
strjálir, en með árunum hefur starfið eflst.
Þannig hafa verið haldnir mánaðarlega
fræðslufundir frá október og fram í maí og
farnar hafa verið ferðir bæði innanlands
og út fyrir landsteinana.
Starfið í vetur hefur verið með hefð-
bundnum hætti. Fræðslufundir hafa verið
haldnir mánaðarlega frá því í október
fyrsta miðvikudag hvers mánaðar. Fund-
irnir hafa verið vel sóttir og á milli 55 og
65 félagar mætt á fundina. Efni fræðslu-
fundanna hafa verið breytileg. Þannig
fjölluðu Birna Jónsdóttir læknir og Dr.
Bruno Frohlich mannfræðingur um
„Múmíur“ eða Mummies í október, Jón
Alfreðsson læknir um Ögmund Pálsson
síðasta kaþólska biskupinn í Skálholti í
nóvember og Gísli Einarsson læknir flutti í
desember erindi sem hann nefndi „Ef Guð
lofar“, en þar sagði hann frá dvöl sinni í
Katar. Halldór Baldursson læknir flutti
erindið „Þegar fylgdarskipið fórst“ í janúar
og á febrúarfundinn kemur Svavar Gests-
son fyrrv. ráðherra og sendiherra og mun
flytja fyrirlestur sem hann nefnir „Gullni
söguhringurinn í Dölum vestur“. Dagskrá
funda í mars-maí mun svo liggja fyrir á
næstunni. Allir þeir fyrirlestrar sem hafa
verið fluttir í vetur hafa verið frábærir,
fræðandi og skemmtilegir.
Vegna breytinga á fundarsal læknafé-
laganna hafa allir fundir félagsins verið
haldnir í húsi Atlanta að Hlíðasmára 3
nema októberfundurinn. Líkur er á að frá
og með mars verði fundirnir á ný í húsa-
kynnum læknafélaganna að Hlíðasmára 8.
Stefnt er að tveggja daga ferð í haust
vestur í Dali á söguslóð Sturlunga og Lax-
dælu. Einnig er stefnt að utanlandsferð,
en enn hefur ekkert verið ákveðið í þeim
efnum.
Eins og kveðið er á um í lögum
öldungadeildar á félagið að gæta hags-
muna aldraðra lækna, svo sem varðandi
lífeyrismál og fleira.
Það kom mörgum læknum 70 ára og
eldri í opna skjöldu þegar þeir fengu ekki
að taka þátt í rafrænu kjöri á nýjum for-
manni LÍ á síðasta ári. Í því sambandi var
vitnað í 11. gr. laga LÍ þar sem kveðið var
á um það að læknar 70 ára og eldri væru
undanþegnir félagsgjaldi. Jafnframt var
kveðið á um það að þeir einir sem staðið
hefðu í skilum með félagsgjöld hefðu kosn-
ingarétt. Þannig var hvergi kveðið á um
það að læknar 70 ára og eldri hefðu ekki
kosningarétt. Þeir eru ekki í vanskilum
enda undanþegnir félagsgjaldi sem ég hef
talið að væri gert til að létta greiðslubyrði
en ekki til að svipta mannréttindum.
Á síðasta aðalfundi LÍ í október 2017
bar ég upp tillögu um að læknar 70 ára og
eldri hefðu full félagsréttindi, það er væru
kjörgengir og með kosningarétt. Sú tillaga
fékk engan hljómgrunn og voru á fundin-
um gerðar breytingar á 11. gr. laga LÍ varð-
andi 70 ára og eldri. „Félagsmaður sem er
orðinn sjötugur og sem ekki starfar lengur
samkvæmt kjarasamningi ríkisins og LÍ
getur ákveðið að greiða ekki lengur félags-
gjöld til LÍ. Ákveði félagsmaður að hætta
greiðslu félagsgjalds nýtur hann hvorki
kjörgengis né atkvæðisréttar í LÍ og fær
ekki Læknablaðið nema gerast áskrifandi
að því sérstaklega.“ Ekki fékk það heldur
hljómgrunn að 70 ára og eldri yrðu áfram
fullgildir en þyrftu ekki að greiða fullt ár-
gjald heldur til dæmis 30-50% af árgjaldi.
Þeir einir sem eru 70 ára og eldri og gerðir
hafa verið að heiðursfélögum í LÍ samkv.
4. gr. laga LÍ greiða ekki félagsgjöld til LÍ
en njóta allra sömu réttinda og greiðandi
félagsmenn.
Við setningu 100 ára afmælishátíðar LÍ
í Eldborg í Hörpu mánudaginn 15. janúar
2018 gat formaður LÍ þess að félagar í LÍ
væru milli 1300-1400, en innan öldunga-
deildar væru rúmlega 270.
Eru þá öldungarnir utan LÍ?
Af sjónarhóli
formanns öldunga
Stjórn Öldungadeildar
Kristófer Þorleifsson formaður, Jóhannes M.
Gunnarsson ritari, Guðmundur Viggósson
gjaldkeri. Kristrún Benediktsdóttir, Margrét
Georgsdóttir.
Öldungaráð
Bergþóra Ragnarsdóttir, Hörður Alfreðsson,
Magnús B. Einarson, Reynir Þorsteinsson,
Snorri Ingimarsson, Þórarinn E. Sveinsson.
Umsjón síðu
Páll Ásmundsson
Vefsíða: http://innri.lis.is/oldungadeild-li
Ö L D U N G A D E I L D