Morgunblaðið - 07.06.2018, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 07.06.2018, Blaðsíða 41
41 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2018 Veisla í farangrinum Hluti af Listahátíð er þessi espressóbar þar sem ljúffengur sopinn er ódýrari en gengur og gerist. Sem stendur er þessi færanlegi kaffistaður á Austurvelli. Kristinn Magnússon Vera má að íslenska lögfræðinga greini á um ýmislegt sem varðar lögskýringar og dómaframkvæmd. Ég fyrir mína parta tel að eftir- taldar meginreglur gildi um með- ferð sakamála fyrir dómi: 1. Lagaheimild til refsingar þarf að vera í settum lögum, efni hennar þarf að vera skýrt og túlkast vafi sakborningi í hag. 2. Ekki má dæma sakborning fyrir aðra háttsemi en þá sem í ákæru greinir. 3. Heimfæra þarf háttsemi til laga- ákvæðis af nákvæmni. 4. Sanna þarf sök. Sönnunarbyrði hvílir á handhafa ákæruvalds. 5. Við meðferð máls á áfrýjunarstigi þarf að gæta þess að dæma sama mál og dæmt var á neðra dóm- stigi. Til endurskoðunar eru úr- lausnir áfrýjaðs dóms; ekki annað. 6. Sakborningar eiga rétt á að fá óheftan aðgang að gögnum sem aflað hefur verið við rannsókn máls. 7. Sakborningar eiga að fá sanngjarnt tækifæri til að færa fram varnir sínar. 8. Dómarar sem dæma verða að hafa hlutlausa stöðu gagnvart sakborningum. Mér er nær að halda að allir lögfræðimenntaðir menn í land- inu séu mér sammála um að þessar reglur eigi að gilda. Hæstiréttur Íslands hefur á undanförnum misserum brotið gegn þeim öllum og sumum oftsinnis. Þessu hef ég lýst af ná- kvæmni í bókum mínum Í krafti sannfæringar, Með lognið í fangið og núna síðast When Justice Failed. Fróðlegt væri að fá nú að heyra hvort í landinu fyrirfinnist lögfræðingar sem eru mér ósammála um gildi þessara reglna. Ég skora á þá að gefa sig fram. Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson » Fróðlegt væri að fá nú að heyra hvort í landinu fyrirfinnist lög- fræðingar sem eru mér ósam- mála um gildi þessara reglna. Jón Steinar Gunnlaugsson Höfundur er lögmaður. Sammæli um meginreglur? „Hér er á ferðinni ríkisstjórn sérhagsmuna, íhaldsstjórn, ríkisstjórn þriggja Framsóknar- flokka.“ Bein tilvitnun í ræðu Þorsteins Víglundssonar í Eldhús- dagsumræðum frá Al- þingi. Síðan ræðir Þor- steinn mjög um átökin milli alþjóðahyggju og þjóðernishyggju, frjáls- lyndis eða íhaldsmennsku og hann eignar Viðreisn Jón Sigurðsson, frels- ishetju okkar Íslendinga. Þegar maður hefur horft á pólitíska umræðu, ég vil segja í veröldinni allri í áratugi, sér maður að versti ókostur stjórnmálamanna er hrokinn og fyrir- litning öðrum sýnd og sjálfsvissa um eigið ágæti. Hjá hinum fornu Grikkjum var hroki og dramb (húbris) talinn versti eiginleiki mannsins. Þegar ein- hver upphóf sjálfan sig umfram það sem hann átti inni fyrir, gerði meira úr sjálfum sér en efni stóðu til. Ég horfði eins og oft áður á Eldhús- dagsumræður frá Alþingi, þar var eins og jafnan áður margt vel sagt og annað að mínu viti verra. Mér fannst t.d. að myndarlegur þingmaður, Þorsteinn Víglundsson í Viðreisn, örugglega vel gefinn maður, sýna fádæma hroka. Ræða hans var að hluta tilvitnanir og úrklippur úr ræðum og skrifum Jóns Sigurðssonar forseta, mannsins sem varð frelsishetja Íslands, hann talaði eins og Jón væri flokksmaður Við- reisnar, væri hann enn á meðal vor. En Viðreisn er flokkur stofnaður um eitt málefni, að ganga í ESB og taka upp evru. Jón Sigurðsson er okkar af- reksmaður fyrir að hafa með rökum frelsað okkur undan danska kónginum og úr því ESB sem þá var uppi. Merkilegt, hér verða til nýir flokkar eins og Við- reisn og Björt framtíð sem staglast á eigin ágæti. Þeir eru flokkar alþjóðahyggju og frjálslyndis meðan ein- hver vondur „fjórflokkur,“ haldinn „framsóknar- mennsku“, sem er nýtt slag- orð eða áróðursbragð um menn af verri endanum. Menn sem stjórna öllum „Fjór- flokknum,“ svona vondur andi. Þetta eru svona orðaleppar eins og Ólafur á Hrísbrú hafði um alla prestana á Mos- felli í Innansveitarkróniku Laxness, en hann nefndi þá gjarnan sem hóp: „Þessir andskotar“. Þekktu sjálfan þig, Þorsteinn, og flokkinn þinn. Hvað hefur svo gerst? Báðir þessir flokkar komust í ríkis- stjórn Bjarna Benediktssonar, sem að mínu viti er ágætismaður. Björt fram- tíð hélt miðilsfund um miðja nótt og taldi sig eiga þjóðina að baki sér og réðst ódrengilega að forsætisráð- herranum fyrrverandi. Þjóðin svaraði, flokkurinn dó í kosningunum. Viðreisn fylgdi Bjartri framtíð með svigur- mælum um Sjálfstæðisflokkinn og Bjarna Benediktsson. Hvað gerðist? Þeir voru við dauðans mörk þegar að kosningum kom. En þá gripu þeir til mannfórna, stofnanda og formanni flokksins, Benedikt Jóhannessyni, var steypt fyrir björg, sennilega vond lykt af honum, of skyldur hinum framsæknu og duglegu Engeyingum. Kratinn úr landbúnaðarráðuneytinu, vinkona mín Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, tók við af því hversu „alþjóðleg og frjáls- lynd“, hún er og hafði verið, eins og fíll í glervörubúð atvinnuvegaráðuneytisins og bar þar litla virðingu fyrir elstu at- vinnugreinum landsins, landbúnaði og sjávarútvegi. Enda var hún í girðing- unni með heildsölum og Högum en ekki bændum, vildi færa fórnir fyrir innflytjendur sérstaklega, eða þannig virkaði hún í starfi sínu sem ráðherra. Og þessi stórmerki flokkur rétt marði það að fá fjóra þingmenn kjörna. Ætli þjóðin sé svona illa að sér eða bara „vitlaus“. Eða voru þetta makleg málagjöld þessara nýju flokka vegna drambsins? En kinnroðalaust þorum við fram- sóknarmenn í mannjöfnuð við alla aðra flokka með þá afburðaforystumenn sem Framsóknarflokkurinn hefur haft á að skipa í hundrað ára sögu sinni. Það er ekki sagt öðrum flokkum til niðrunar því þeir áttu líka sína af- burðamenn. Þess vegna eiga menn ekki að hlusta á svona dramb og hroka sem henti Þorstein Víglundsson. Grikkirnir sögðu líka „þekktu sjálfan þig“. Og frelsarinn benti á bjálkann í auga hrokagikksins. Eftir Guðna Ágústsson »Ræða hans var að hluta tilvitnanir og úrklippur úr ræðum og skrifum Jóns Sigurðssonar forseta, mannsins sem varð frelsis- hetja Íslands, hann talaði eins og Jón væri flokks- maður Viðreisnar, væri hann enn á meðal vor. Guðni Ágústsson Höfundur er fv. alþingismaður og ráðherra. Dramb er falli næst í pólitík, Þorsteinn Víglundsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.