Morgunblaðið - 07.06.2018, Blaðsíða 59
MINNINGAR 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2018
þeir Lárus og Ingjaldur kunnu
vel að meta hvor annan. Þeir
ráku stofuna saman, með frá-
bæru og tryggu starfsfólki, þar
til Lárus lést eftir stutta og
harða baráttu við krabbamein.
Það var mikill samgangur á
milli heimila okkar og margt
skemmtilegt gert. Alltaf voru
þau hjónin höfðingjar heim að
sækja en þau áttu glæsilegt
menningarheimili.
Takk fyrir vináttu og sam-
fylgd síðastliðin 44 ár, takk fyrir
aðstoð og samhug á sorgartíma,
takk fyrir ástríkið og kærleik-
ann, já og takk fyrir allt hrósið,
fáir kunna að hrósa eins og þú
gerðir. Takk fyrir að vera alltaf
til staðar
Þú varðst gæfukona í lífi og
starfi. Áttir einstakan eigin-
mann sem stóð eins og klettur
við hlið þér alla tíð í gegnum
sorg og gleði. Börnin þín,
tengdabörn og barnabörn hafa
sýnt þér einstaka ást, hjálpsemi
og umhyggju eins og þú sýndir
þeim.
Missir þeirra er mikill.
Það er svo sárt að sakna
en það er svo gott að gráta.
Tárin eru dýrmætar daggir,
perlur úr lind minninganna.
Minninga sem tjá kærleika og ást,
væntumþykju og þakklæti
fyrir liðna tíma.
Minninga sem þú einn átt
og enginn getur afmáð
eða frá þér tekið.
Tárin mýkja og tárin styrkja.
Í þeim speglast fegurð minninganna.
Gráttu,
„Því að sælir eru sorgbitnir
því að þeir munu huggaðir verða.“
(Sigurbjörn Þorkelsson)
Þau eru orðin nokkur árin
sem þú þurftir að stríða við al-
varleg veikindi, en oft komu góð
tímabil. Þú varst svo þakklát
fyrir þá lækningu, hjúkrun og
aðhlynningu sem þú fékkst í
gegnum þennan erfiða tíma.
Alltaf var gott að koma til þín,
það var mikið spjallað, hlegið en
stundum komu smá tár ef
minnst var á okkar nánustu sem
voru okkur svo kærir en fóru allt
of snemma en tíminn læknar og
tíminn mildar. Látum það góða
breiða yfir sársaukann og sorg-
ina.
Elsku vinkona, nú svífur þú
blítt til Sumarlandsins. Þar
verða margar kærleikshendur
sem taka á móti þér, einkasonur
ykkar, þessi glæsilegi, vel
menntaði ungi maður sem hvarf
allt of snemma frá eiginkonu og
ungum sonum, Halla systir þín,
sem þið fjölskyldan hugsuðuð
svo vel um, aðrir ættingjar og
vinir sem horfið hafa á braut.
Kæra fjölskylda, hugur minn
og barna minna er hjá ykkur.
Með þökk fyrir allt og allt.
Hjartans kveðja,
Svanhildur Th.
Kær æskuvinkona er látin eft-
ir 12 ára baráttu við óvæginn
sjúkdóm.
Við kynntumst fyrir 65 árum
þegar hún byrjaði í 9 ára bekk í
Landakotsskóla. Fljótlega
urðum við bestu vinkonur og sú
vinátta hélst alla tíð og bar aldr-
ei skugga á. Auðvitað sinnaðist
okkur stundum og við urðum
ósammála en létum það ekki
skemma lengi fyrir okkur.
Við fylgdumst að í gagn-
fræðaskóla, Verzlunarskóla Ís-
lands til stúdentsprófs og síðan í
eitt ár í Kennaraskóla Íslands.
Í minningunni vorum við
næstum daglega saman, ef ekki
þá var gripið til símans og skraf-
að lengi.
Margs er að minnast frá
skólaárunum. Okkur lá á að fara
til útlanda
og héldum til Kaupmanna-
hafnar sumarið 1960, þá 15 og 16
ára. Spenningurinn var mikill en
við höfðum fengið sumarvinnu á
hjúkrunarheimili á Amager við
aðhlynningu aldraðra ásamt
þremur öðrum stúlkum. Þetta
var mikil ævintýraferð fyrir
okkur og skipstjórinn, pabbi
Ingu Jónu, fylgdist með okkur,
kom í heimsókn og sigldi með
okkur heim um haustið.
Oft í gegnum árin höfum við
hugsað til þessarar ferðar, hvað
við gerðum margt skemmtilegt
þegar við könnuðum borgina,
þroskuðumst og hlutum góða
reynslu af erfiðu umönnunar-
starfi.
Við áttum líka eftir að verða
samferða til London þar sem við
unnum sem au pair. Langt var á
milli okkar og við hittumst einu
sinni um sumarið. Við bættum
það upp með siglingu heim með
Heklu um haustið. Slæmt var í
sjóinn og sjóveiki í gangi en við
nutum samt sjóferðarinnar.
Eftir kennarapróf vildi svo
skemmtilega til að Inga Jóna
kenndi einn vetur í gamla skól-
anum okkar, Landakotsskóla, og
hafði mikla ánægju af.
Við Inga nutum þess að minn-
ast æsku okkar saman og ekki
síður allra minninganna með
eiginmönnum og börnum.
Ófáar voru heimsóknirnar
upp á Akranes. Þangað var gott
að koma og alltaf tekið á móti
okkur af mikilli hlýju og gest-
risni.
Það var líka yndislegt að fá
Ingu og fjölskyldu í heimsókn,
bæði heim og í sumarbústað
okkar. Einnig komu þau til okk-
ar þegar við fjölskyldan bjugg-
um í Danmörku og Frakklandi.
Þá var farið í ýmsar skoðunar-
ferðir og glatt á hjalla.
Eftirminnileg er skíðaferð
fjölskyldnanna á Langjökul á
áttunda áratugnum. Frumstæð
skíðalyfta kom okkur upp í
brekku og var þetta fínn undir-
búningur fyrir áframhaldandi
skíðaiðkun. Gist var í sumar-
bústað og slappað af í heitum
potti í 10° frosti.
Inga var trygglind, hlý og
góðhjörtuð. Hún var ættrækin
og var umhugað um fjölskyldu
sína og vini.
Henni þótti vænt um skóla-
systkini og maka í VÍ 6́5 og
spennt að frétta af hópnum þeg-
ar hún var hætt að komast á
fundina okkar en við hittumst
mánaðarlega yfir vetrartímann.
Auk þess er farið í sumarferðir
út á land og til útlanda.
Eftir að þau hjónin fluttu í
Garðabæinn þótti mér vænt um
hvað við Inga hittumst oft, fór-
um í gönguferðir um nágrennið,
bíltúra og komum við á kaffihúsi
eða höfðum það huggulegt í Ný-
höfninni og spjölluðum.
Við Gunnar og fjölskylda okk-
ar sendum Ingjaldi, dætrum,
tengdabörnum og barnabörnum
hjartanlegar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Ingu
Jónu.
Gunnhildur Jónsdóttir.
Nokkur kveðjuorð til kærrar
vinkonu, Ingu Jónu Jónsdóttur.
Ég kynntist þeim sómahjón-
um Ingu Jónu og Ingjaldi fyrst
fyrir um 24 árum þegar ég leigði
hjá þeim um sinn og síðan þá
hafa þau verið í hópi þeirra sem
ég tel til vina minna.
Inga Jóna er ein af betri
manneskjum sem ég hef á æv-
inni kynnst. Hún mátti aldrei
aumt sjá og var alltaf tilbúin að
rétta fram hjálparhönd til handa
þeim sem áttu undir högg að
sækja á einhvern hátt. Hún var
jafnframt afar glaðlynd og
skemmtileg, var vel að sér um
flesta hluti og minnug með af-
brigðum. Mér finnst í raun fá-
ránlegt að tala um hana í þátíð
því að andi hennar og minningar
um hana munu lifa með mér og
öðrum þeim sem voru svo
heppnir að kynnast henni.
Sérstaklega kær er minningin
frá því þegar þau hjón heimsóttu
mig austur í sumarbústað og
gistu þar í nokkrar nætur. Við
fórum í ýmsar skoðunarferðir og
gerðum vel við okkur í mat og
drykk þegar við sátum úti á palli
og spjölluðum langt fram eftir
kvöldi. Þetta var afar skemmti-
legur tími og Austurlandið var
upp á sitt besta, sól og blíða og
Lagarfljótið ennþá blátt.
Inga Jóna gat verið mjög fljót
að ákveða sig eins og sást best
þegar við sátum úti á palli uppi í
Jörundarholti vorið 1996 og
spjölluðum um alla heima og
geima eins og við gjarnan gerð-
um. Talið barst að væntanlegum
forsetakosningum og að þeim
frambjóðanda sem hugnaðist
okkur báðum best. Það varð úr
að við keyrðum niður í bæ á
Akranesi, fundum autt húsnæði,
leigðum það og stofnuðum kosn-
ingaskrifstofu fyrir Guðrúnu
Agnarsdóttur. Meira þurfti ekki
til og næstu vikurnar fóru síðan
að mestu í kosningaundirbún-
ing, kaffiveitingar, dreifingu
auglýsinga og ýmsar uppákom-
ur. Það urðu okkur vissulega
töluverð vonbrigði þegar okkar
manneskja náði ekki meirihluta í
kosningunum sjálfum en við
skemmtum okkur hins vegar
konunglega í undirbúningi for-
setakjörsins.
Inga Jóna og Ingjaldur voru
afar samtaka í öllu því sem þau
tóku sér fyrir hendur og fjöl-
skyldan öll raunar mjög sam-
rýnd. Inga Jóna var afar stolt af
börnum sínum og barnabörnum
en skuggi færðist þó yfir fyrir
nokkrum árum þegar einkason-
ur hennar dó snögglega. Harm-
ur þess atburðar yfirgaf hana
aldrei fullkomlega heldur setti
svip á allt líf hennar upp frá því.
Eftir að þau hjón fluttu suður
þá urðu samskiptin heldur
strjálli en ævinlega gleðilegt og
skemmtilegt að hitta þessa
sómakonu enda þau hjón alltaf
höfðingjar heim að sækja. Þótt
hún væri orðin töluvert veik í
síðustu skiptin sem ég sá hana
bar hún sig ævinlega vel og
kvartaði aldrei en í lokin laut
hún þó í lægra haldi fyrir mein-
inu. Hennar verður sárt saknað
og ég sendi mínar innilegustu
samúðarkveðjur til Ingjalds,
dætra, tengdabarna og barna-
barna og til Kiddu systur
hennar.
Helena Valtýsdóttir.
Það var um haustið ’75. Eftir-
væntingarfullt skólabarn í
Barnaskóla Akraness hafði
hlakkað til að komast í „alvöru“
nám, eftir forskólann, sem taldi
ekki nema rétt um tvær stundir
á dag, en hafði þó skilað þeim ár-
angri að grunnur í lestri, skrift
og reikningi, var afgreiddur. Að
læra að setja z inn í orð, var
„helzta“ hugðarefnið.
Því fylgdi mikil spenna að vita
hver sjö ára barnakennarinn
yrði. Kennarinn vísaði barna-
hópnum til sætis og við vorum
ein augu. Með mikla útgeislun,
sérlega fallegt, rautt hár og í
gulri skyrtu, kynnti hún sig:
Ingibjörg Jóna Jónsdóttir. Strax
þessa stund fengum við lært
hvernig haga skyldi undirbún-
ingi þessara fyrstu skóladaga,
bæði hvað varðaði góða næringu
eða „nesti“ einnig eitt og annað
sem laut að reglusemi og snyrti-
mennsku. Margar þessara
reglna held ég í heiðri enn í dag,
en þarna var sleginn tónn sem
mér líkaði sérlega vel, hvort
heldur snéri að utanumhaldi eða
því kappi, að kosta með iðni, vel
til námsins.
Ég minnist skemmtilegra
tíma og frábærra innlagna, sem
fylgt var eftir með góðri hvatn-
ingu og áhuga fyrir því að nem-
endurnir næðu árangri. Seinna á
vinnuævinni, fór Inga Jóna í sér-
kennaranám og þótti eftirsókn-
arvert að vera hjá henni.
Svo einstaklega heppin er ég
að ein mín allra besta vinkona er
dóttir Ingu Jónu, Inga Steina,
en ekki hefur borið skugga á vin-
áttu okkar til þessa dags.
Smám saman sá ég úr hverju
þetta góða fólk var ofið: Ein-
stakri samheldni og áhuga fyrir
velferð annarra, góðu spjalli um
lífið og tilveruna, sem Inga Jóna
leiddi oft á tíðum, því ljóst var að
hún kunni að styrkja og laða
fram það besta í fólki.
Börnum þeirra Ingjalds komu
þau hjónin ákaflega vel og glæsi-
lega til manns sem sjá mátti og
má í þeim Jóni Þorvaldi heitn-
um, Ingibjörgu Steinunni, Sól-
borgu Þóru og stækkandi flokki
afkomenda þeirra, sem bera öll
mikið svipmót þessara gilda,
einhverskonar ættarmerki, ef
orða má það þannig.
Það var gefandi að hitta Ingu
Jónu á fullorðinsárunum. Hún
átti alltaf til góð ráð eða hrós
þannig að manni fannst allt vera
eitt ljós. Við deildum sama af-
mælisdegi og fannst mér ég oft
koma auga á sameiginlegan
skilning á mörgu, bæði í húmor
og alvöru. Drengjunum mínum
reyndist hún einstök og fylgdist
með framgangi þeirra og okkar.
Það þótti mér sérlega vænt um
því ég vissi að hennar orð voru
sönn og góð, sem og gjörðir.
Eldri drengurinn minn fékk í
fermingargjöf frá Ingu Jónu
ljóðabók eftir móðurömmu
hennar, Höllu frá Laugabóli.
Þegar ég fór að lesa um lífshlaup
þeirrar merku konu var auðveld-
lega hægt að lesa á milli línanna
að þarna fóru gen sem hafa skil-
að sér vel til afkomendanna: Að
vera sönn og heil manneskja. Að
bera hag annarra fyrir brjósti,
einkum og sér í lagi þeirra sem
þurftu einhverra hluta vegna á
baklandi að halda. Að vera gott
fordæmi í samskiptum við fjöl-
skyldu og ræktun gjöfullar vin-
áttu. Að þora að standa með orð-
um sínum og skoðunum.
Veri Inga Jóna kært kvödd.
Við synir mínir, vottum Ingj-
aldi, Ingu Steinu, Sólborgu og
fjölskyldum, okkar allra dýpstu
samúð.
Kristín Björg Knútsdóttir.
Fallin er frá Ingibjörg Jóna,
kær vinkona og samstarfsfélagi
til margra ára.
Leiðir okkar lágu fyrst saman
í Barnaskóla Akraness sem nú
er Brekkubæjarskóli. Inga
Jóna, eins og hún var yfirleitt
kölluð, var metnaðarfullur kenn-
ari fyrst sem bekkjarkennari og
ekki síður eftir að hún varð sér-
kennari. Hún sýndi nemendum
sínum mikla umhyggju og virð-
ingu og bar ætíð hag þeirra fyrir
brjósti. Hún uppskar á móti
mikla væntumþykju og áttu
nemendur vináttu hennar og
stuðning ávallt vísan.
Inga Jóna var lífsglöð og fé-
lagslynd og áttum við saman
margar góðar og skemmtilegar
samverustundir. Hún var líka
óspör á að dreifa „H-vítamíninu“
í kringum sig. Hún hafði
ákveðnar skoðanir á mönnum og
málefnum og var ófeimin að láta
þær í ljós. Hún var trygglynd,
örlát og sýndi oft mikinn rausn-
arskap.
Eftir starfslok höfum við
„gamlir“ starfsfélagar hist öðru
hvoru og verður hennar þar nú
sárt saknað.
Og hver á nú að blessa blóm og dýr
og bera fuglum gjafir út á hjarnið
og vera svo í máli mild og skýr,
að minni í senn á spekinginn og
barnið,
og gefa þeim, sem götu rétta flýr,
hið góða hnoða, spinna töfragarnið?
Svo þekki hver, sem þiggur hennar
beina,
að þar er konan mikla, hjartahreina.
(Davíð Stefánsson.)
Við sendum Ingjaldi og fjöl-
skyldunni einlægar samúðar-
kveðjur.
Minningar eru dýrmætar –
varðveitum þær.
Fyrir hönd fyrrverandi
starfsfélaga í Brekkubæjar-
skóla,
Guðbjörg Árnadóttir,
Ingileif Daníelsdóttir,
Svandís Pétursdóttir.
FALLEGIR LEGSTEINAR
Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is
Á góðu verði
Verið velkomin
Opið: 10-17 alla virka daga
Elsku hjartans móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
BJÖRG BJARNDÍS SIGURÐARDÓTTIR
frá Hesteyri,
Boðahlein 15,
Garðabæ,
lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, fimmtudaginn 31. maí. Útförin fer
fram föstudaginn 8. júní klukkan 11 frá Garðakirkju, Garðabæ.
Soffía Margrét Jónsdóttir
Guðmundur Jón Jónsson Hjördís Alexandersdóttir
Marín Rún Jónsdóttir Brynjúlfur Erlingsson
Gunnar Jónsson
Steinar S. Jónsson Sigrún Gissurardóttir
Rósa Ingibjörg Jónsdóttir Oddgeir Björnsson
ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn.
Elsku hjartans drengurinn okkar,
ÓÐINN SKÚLI ÁRNASON,
sem lést fimmtudaginn 24. maí verður
jarðsunginn frá Egilsstaðakirkju föstudaginn
8. júni klukkan 14.
Árni Jóhann Óðinsson Erla Jónsdóttir
systkini og aðrir aðstandendur
Okkar ástkæra
SIGRÚN ANGANTÝSDÓTTIR,
Silló,
lést á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki
sunnudaginn 27. maí.
Útför hennar fer fram frá Sauðárkrókskirkju
laugardaginn 9. júní klukkan 14.
Jón Dalmann Pétursson
Björn Angantýr Ingimarsson Halldóra Bergsdóttir
Sigríður Huld Jónsdóttir Atli Örn Snorrason
Símon Guðvarður Jónsson Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SÍMON INGI GESTSSON
frá Barði í Fljótum,
lést á Landspítalanum þriðjudaginn 5. júní.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Alfreð Gestur Símonarsson Kristín Sigurrós Einarsdóttir
Friðfinna Lilja Símonardóttir Sigmundur Sigmundsson
Símon Helgi Símonarson Hrafnhildur Hreinsdóttir
Hilmar Símonarson Ólafía Lóa Bragadóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegu vinir, við þökkum ykkur af öllu
hjarta auðsýnda vináttu og hlýhug við fráfall
elsku pabba míns, sonar okkar og bróður
BIRGIS SNÆS GUÐMUNDSSONAR.
Þeir sem vilja minnast hans láti
Björgunarsveit Hafnarfjarðar njóta þess á
heimasíðu þeirra, www.spori.is.
Markús Leví
Linda Björk, Guðmundur Rúnar
Gylfi Freyr, Hjalti Þór, Andri Fannar
og fjölskyldur