Morgunblaðið - 07.06.2018, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 07.06.2018, Blaðsíða 54
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2018 Lax í brunchinn Söluaðilar: 10-11, Hagkaup, Iceland verslanir, Kvosin, Melabúðin, Nettó, Samkaup, Sunnubúðin, Pure Food Hall flug- stöðinni Keflavík. Með því að velja hráefnið af kostgæfni, nota engin aukaefni og hafa verkhefðir fyrri tíma í hávegum, framleiðum við heilnæmar og bragðgóðar sjávarafurðir. Dóra Magnúsdóttir dora@ mbl.is Jon er höfundur bóka um núvitund sem hafa verið þýddar á yfir 40 tungumál, hann er frumkvöðull á sviði fræðslu um núvitund enda byrj- aði hann að þróa fyrsta námskeiðið árið 1979. Sennilega örlaði á svolítilli minnimáttarkennd hjá blaðakonu þegar hún var á leið til Jons og Mylu og velti fyrir sér hvers hún ætti að spyrja, hvort hún gæti komið með nógu gáfulegar spurningar fyrir svona merkileg og vel upplýst núvit- undarhjón. Einnig hvort hún kæmi upp um sig; hversu arfaléleg hún væri í núvitund. Alltaf með hugann annars staðar, líka í uppeldinu. Eftir fremur neikvæðar vangaveltur um eigin frammistöðu velti blaðakona því fyrir sér hvort hugmyndin um núvitund í uppeldi – og skort á henni – væri ekki bara enn einn hlekkurinn í þungri keðju samviskubits foreldra gagnvart börnum sínum; við sinnum þeim ekki nóg, þau fái ekki nógu hollan mat, þau hreyfa sig ekki nóg, þau eru of lengi í tölvunum, við skömmum þau of mikið, við erum ekki alltaf með hugann hjá þeim þeg- ar við erum með þeim og þar fram eftir götunum. Því var fyrsta spurn- ingin ef til vill ekki sérlega sann- gjörn gagnvart þessum sérlega vin- gjarnlegu og virtu erlendu gestum sem hingað voru flogin yfir Atlants- ála til að miðla af visku sinni um nú- vitund fyrir fjölskyldur. – Nú hefur iðkun núvitundar og hugleiðslu rutt sér mjög til rúms á undanförnum árum. Foreldrar eru hins vegar oft afar uppteknir og finnst þeir þurfa að gera eitthvað sérstakt til að kunna vera í núinu og hrista oft þessar hugmyndir af sér. Getur verið að hugmyndin um núvit- und í uppeldi sé enn einn þátturinn sem eykur samviskubit foreldra? Myla verður fyrri til svars og segir þetta vera algengan misskilning en um leið séu pælingar á þessa lund engan veginn í anda núvitundar. „Staðreyndin er sú að það eru marg- ir foreldrar í nákvæmlega þessum sporum. Finnast þeir ekki standa sig nógu vel, hafa ekki nógan tíma og eru með stöðugt samviskubit. Einnig telur fólk sér trú um að það sé ekki nógu mikið til staðar andlega fyrir börnin þegar það er með þeim. Hins vegar, ef fólk veltir því yfir höfuð fyrir sér að það sé ekki nógu mikið í núinu, eins og þú virðist gera, að þá er það skýrt merki um að þú sért sennilega mun meira í núinu með börnunum þínum en þú áttar þig á,“ segir Myla.“ (Blaðakonu léttir tölu- vert.) Jon bætir við að það sem er allra mikilvægast í þessu öllu saman og um leið kjarninn í núvitund sé að dæma ekki og vera ekki of harður við sjálfan sig; að vera betri við sjálfan sig. Það sé afar mikilvægt að snúa ekki hugmyndinni um núvitund upp á einhverskonar ímyndað og full- komið fjölskyldulíf þar sem allir eru alltaf rólegir, að drekka jurtate og spjalla um heimspeki. Þetta er ímynd sem engin fjölskylda stendur undir. Þau brosa bæði að tilhugs- uninni og segja hana byggja á al- gengum misskilningi. „Hið full- komna núvitundarforeldri er einfaldlega ekki til og ef það væri til, þá væri það skelfilegt. Það er eðlilegt að reiðast, verða stressuð/aður og hrópa. Það er jafn eðlilegt að bregð- ast neikvætt við í erfiðum aðstæðum eins og að gleðjast í jákvæðum að- stæðum. En á erfiðu augnablikunum getum við reynt að færa núvitundina inn í aðstæðurnar, bæði á meðan en líka eftir á ef ekki vill betur til. Svo sem með því til dæmis að biðjast af- sökunar ef við vorum ókurteis, eða útskýra fyrir barninu að vegna þess að það er mikið að gera í vinnunni hjá mömmu eða pabba, þá varð for- eldrið óþarflega reitt. Börn læra af erfiðu ástandi ef rétt er unnið úr því og það útskýrt fyrir þeim. Þau læra sjálf að biðjast afsökunar og átta sig á að eigin framkoma í einu ástandi getur orsakast vegna vanlíðan út af einhverju öðru.“ Erfiðar aðstæður geta leitt eitthvað gott af sér „Það er bagalegt ef fólk eykur sjálfsgagnrýni sína og upplifir að það sé ekki nógu núvitað. Það gerir nú- vitund að andhverfu sinni og skrum- skælir hugmyndina því hún snýr að því að vera meðvituð/aður um hlut- ina eins og þeir eru hverju sinni. Stundum er ástand innan fjölskyldu mjög erfitt og við vitum ekki hvernig við eigum að bregðast við. Við upp- lifum til dæmis sorg, reiði eða óvissu. Það er ekkert rangt við það. Reynd- ar er ýmislegt sem erfiðar aðstæður geta leitt af sér. Til dæmis aukin ást og samheldni, ef rétt er unnið úr erf- iðum aðstæðum.“ Jon segir að slíkar aðstæður geti leitt af sér sköpun á nýjum aðstæðum þegar við erum meðvituð, þó að við sjáum þær ekki fyrir meðan við erum á erfiðum stað. Ef við stöndum til dæmis frammi fyrir erfiðu barni, á hvaða aldri sem er, þurfum við að gefa okkur tíma, vera meðvituð og hugsa: „hvað þarf þetta barn“? Ekki bara dæma það út frá hegðun þess. Hvernig get ég ver- ið til staðar fyrir barnið án þess að taka valdið frá því þannig að það læri sjálft eitthvað af þessu ástandi?“ segir Jon. Aðkoma að erfiðu ástandi krefst fullrar meðvitundar og Jon leggur áherslu á að þetta sé ekki vitsmunalegt athæfi heldur andleg nálgun sem maður tileinkar sér. – En hvað um börnin, eru þau ekki í eðli sínu alltaf í núinu. Þarf að kenna þeim núvitund? „Jú, það er rétt. Það er vissulega eðli barna að staldra við í núinu en það eru foreldrarnir sem missa stundum þennan hæfileika og okkar hlutverk hefur verið að leiðbeina þeim að vera oftar meðvituð fyrir börnin sín. Kannski má segja að for- eldar í dag séu stundum að ræna þessari náttúrulegu núvitund af börnunum sínum með því að setja þeim alltof mörg verkefni fyrir. Í mörgum tilvikum er mjög mikil áhersla á að ná árangri, s.s. í skóla, íþróttum og tónlistarnámi og það er mikilvægt fyrir foreldra að finna leiðir til að ná jafnvægi. Leyfa börn- unum að vera þau sjálf og hafa tíma til þess. Til dæmis með því að hafa ekki stöðugt snjallsíma eða -tölvu á sér sem stöðugt draga athygli þeirra frá þeim stað og þeirri stund þar sem þau eru hverju sinni,“ segir Jon. Myla tekur dæmi af feðgum sem hún veitti athygli og voru á sama veitingastað og þau hjónin kvöldið áður. Faðirinn var í símanum svo til allan tímann og drengurinn var að horfa á barnaefni í tölvunni. Hvor- ugur var andlega á staðnum og alls ekki gagnvart hvor öðrum. Sama getur átt við ef börn hafa of þétta dagskrá, þá er hætt við að þau fái ekki að njóta þess hver og hvar þau eru hverju sinni, sem annars er börnum mjög náttúrulegt. Ekkert að því að leggja hart að sér „Þannig getum við misst af reynslu með þeim, upplifunum þeirra og ómetanlegum augnablik- um með þeim sem koma ekki aftur. Það er til dæmis mjög gott fyrir börn að þeim leiðist stundum. Að þau hafi ekki alltaf aðgang að skemmtiefni. Sú kynslóð sem nú er miðaldra og eldri kynslóðir muna eftir því að hafa leiðst og fundið upp á einhverju snið- ugu en það er orðið mun sjaldgæfara meðal vestrænna barna,“ segir Jon. „Svo má ekki gleyma því heldur að það er ekkert að því að leggja hart að sér og ná árangri. Foreldrar í vinnu og börn í námi og ýmsum tóm- stundum þar sem þau vilja gjarna standa sig vel. Það getur verið ham- ingjuaukandi að ná árangri þegar fólk hefur lagt mikið á sig, og það á bæði við um börn og fullorðna. En það getur verið mikið álag á börn að ná árangri í greinum sem þau eiga erfitt með og krafan oft sú að allir eigi að geta fengið sömu góðu út- komuna úr einhverju fagi eða íþrótt frekar en við horfum á hvert einstakt barn og styrk þess. Ef við komum aftur að snjalltækjunum sem eru orðin svo stór þáttur í lífi fjöl- skyldna, þá búa þau yfir eiginleikum sem eru mjög jákvæðir. Það er áskorun foreldra í nútímaveröld að finna jafnvægi á milli þessarar staf- rænu veraldar sem börnin okkar hafa aðgang að, svo að tækin gleypi þau ekki. Að við stjórnum tækjunum en þau ekki okkur og börnunum okkar, og að við höfum pláss fyrir annars konar upplifanir í lífi okkar,“ segir Myla. „Ein ástæðan fyrir því að það er æskilegt að vera í núinu fyrir for- eldra og fjölskyldur almennt er að fjölskyldulífið er stundum eins og hálfgerð tilraunastofa. Fólk í fjöl- skyldu lifir ekki fyrirsjáanlegu lífi og veit oft ekkert hvað gerist næst. En við höfum tök á að færa núvitund inn í allar aðstæður sem við lendum í og það er sérstaklega mikilvægt að vera meðvitaður í erfiðu aðstæðunum. Um það snýst núvitund í uppeldi, að vera á staðnum og fást við allar að- stæður meðvitað og með opnum huga. Núvitund er ekki vitsmunalegt ferli heldur spurning um meðvitund fyrir aðstæðum hverju sinni og bregðast við þeim verandi á staðn- um, ekki í símanum eða með hugann við aðra hluti. Þess vegna þurfum við að átta okkur á því þegar við erum annars hugar, s.s. inni á heimilinu og leita leiða til að vera oftar andlega til staðar og oft þarf að æfa slíka með- vitund í daglegu lífi og námskeið get- ur verið góð leið til þess,“ segir Jon. Myla bætir við að það sé eðlilegt að vera stundum annars hugar, skipuleggja í huganum, hlusta ekki á barnið sitt og þar fram eftir göt- unum. Það er bara mannlegt. Börn þurfa heldur ekki á því að halda að þú sért alltaf með hugann við þau. En eins og með álagið þarf að finna jafnvægi og leita leiða til að vera andlega til staðar þegar barnið er að tala við þig, líka um hluti sem virðast smávægilegir, en ekki síst þegar að- stæður eru krefjandi. Með því að vera í aðstæðunum frá einu augna- bliki til hins næsta, rétt eins og við öndum. Við veitum ekki andadrætt- inum alltaf athygli en það er góð leið að hugsa um hann reglulega til að æfa sig að vera meðvituð/aður um augnablikin með fjölskyldunni þinni. Í kjölfarið er líklegt að þú lærir að hvíla betur í sjálfri/um þér og hugsa „já, ég er góðu lagi“ og sleppa þess- ari endalausu sjálfsagnrýni og sam- viskubiti. Núvitund getur leitt af sér gæsku og samkennd „Mikið af þeirri sjálfsagnrýni sem foreldrar upplifa er keyrt áfram af tilfinningalegum þáttum. Vegna hluta sem ekki verða eða ýmsu sem hefur sært þig. Einfaldar núvitund- aræfingar geta verið grunnur að mun meira krefjandi aðstæðum þar sem líkur eru á að þú bregðist síður neikvætt við tilfinningalega, til dæm- is með því að öskra eða segja eitt- hvað sem þú vildir ekki hafa sagt. Með þeim hætti er hægt að vera í að- stæðum og höndla þær með fullri meðvitund um eigin tilfinningar og af þeirri ró sem núvitundin getur fært fólki og fjölskyldum. Þannig höfum við betri tök á að mæta erf- iðum aðstæðum, og í raun öllum að- stæðum, með gæsku og samkennd,“ segir Jon. „Núvitundin skapar ramma fyrir okkur að skilja ólíkar aðstæður, einnig erfiðar aðstæður, og sortera tilfinningar okkar og aðskilja þær frá því hvernig við högum okkur. Við skiljum betur af hverju við erum reið og reynum að forðast að ásaka okkur sjálf eða barnið með þeim neikvæðu tilfinningum sem fylgja. Í kjölfarið á meðvituðum samskiptum í anda nú- vitundar fylgir gæska. Ef við skiljum af hverju barnið er ókurteist eða makinn reiður er mun auðveldara að nálgast fólkið í kringum okkur með samkennd heldur en ef við dæmum fólk eingöngu af gjörðum þess og orðum. Þetta á reyndar við um öll mannleg samskipti, ekki eingöngu innan fjölskyldna. Því er það mjög gott veganesti fyrir hvert barn út í lífið að stemningin í fjölskyldunni einkennist af núvitund,“ segir Myla að lokum. Að fanga núið með barninu þínu Jon Kabat-Zinn er prófessor emeritus í læknisfræði við University of Massachusetts og frumkvöðull að iðkun núvitundar í læknisfræði og sálfræði. Hann heimsótti Ísland á dögunum ásamt konu sinni Mylu Kabat-Zinn að halda námskeið um núvitund, meðal annars núvitund í uppeldi og innan fjölskyldna, og ákvað Fjölskyldan á mbl.is að hitta þau hjón að máli og forvitnast um hvernig núvitund geti verið gagn- leg í nútímafjölskyldulífi. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Núvitund. Myla og Jon Kabat-Zinn ferðast um heiminn og kenna námskeið í núvitund, m.a. í tengslum við uppeldi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.