Morgunblaðið - 07.06.2018, Blaðsíða 38
38 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2018
Fyrir þig í Lyfju
Voltaren Gel er bæði verkjastillandi
og bólgueyðandi
Vöðva eða liðverkir?
Voltaren 11,6 mg/g hlaup. Inniheldur díklófenaktvíetýlamín. Staðbundnir bólgukvillar. Lesið vandlega
Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplý g y y j
up lýsingar á umbúðum og fylgiseðl
si ar um l fið á www.serl f askra.is.
15%
afslátturaf 100g og 150gVoltaren Gel
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Ekkert herskip né -loftfar getur hrætt Kína
frá því að verja landsvæði sitt. Þetta segir
kínverski utanríkisráðherrann í samtali við
fréttastofu Reuters, en tilefni ummæla hans er
flug tveggja langdrægra sprengjuflugvéla frá
Bandaríkjunum yfir Suður-Kínahaf.
Kínverjar hafa að undanförnu verið sakaðir
um að búa til eyjar á rifum til að renna stoðum
undir kröfu sína um yfirráð yfir stórum hluta
Suður-Kínahafs. Fjögur önnur lönd gera til-
kall til eyja og útskerja á svæðinu. Vaxandi
spenna hefur verið í samskiptum ríkjanna
vegna deilunnar og hafa Bandaríkjamenn
margsinnis boðið Kínverjum birginn með því
að senda tundurspilli inn á hafsvæðið og nú
seinast tvær flugvélar af gerðinni B-52 Strato-
fortress.
Vaxandi spenna á Suður-Kínahafi
Fréttastofa CNN greinir frá því að banda-
rísku sprengjuflugvélarnar hafi flogið í
námunda við Spratly-eyjar, en þar hafa Kín-
verjar lagt flugbrautir og reist nokkur mann-
virki. Á annarri eyju, sem nefnist Woody og er
innan viðurkenndrar efnahagslögsögu Kína,
hafa ráðamenn í Beijing reist flugskeytastöð.
Gervihnattamyndir benda einnig til þess að á
Woody-eyju megi finna eldflaugatrukka sem
búnir eru flugskeytum sem grandað geta bæði
flugvélum og skipum. Í síðasta mánuði var svo
greint frá því þegar kínverskum sprengjuflug-
vélum var lent á einni af eyjunum umdeildu, en
að sögn Kínverja var lendingin liður í her-
æfingu á svæðinu. Þá hefur herskipafloti, und-
ir forystu kínverska flugmóðurskipsins Liaon-
ing, einnig verið við æfingar á þessum slóðum.
Þessi hernaðaruppbygging á Suður-Kínahafi
er talin óheppileg samhliða vaxandi spennu á
hafsvæðinu.
Hua Chunying, utanríkisráðherra Kína,
segir Bandaríkjamenn ekki sýna ábyrga hegð-
un í verki og veltir upp þeirri spurningu hvort
ekki megi telja flug sprengjuvélanna tveggja,
sem meðal annars geta borið kjarnavopn, inn á
hafsvæðið sem eins konar hernaðaruppbygg-
ingu. Þá segir ráðherrann Bandaríkjamenn
sýna af sér ögrandi hegðun sem eykur
spennuna.
„Kína hræðist ekki herskip eða -flugvélar og
við munum taka öll nauðsynleg skref til þess
að verja fullveldi okkar og öryggi, til að við-
halda stöðugleika og frið á Suður-Kínahafi,“
hefur Reuters eftir utanríkisráðherranum.
Kínverjar hafa stóraukið útgjöld sín til her-
mála undanfarin ár í von um að styrkja stöðu
sína á Suður- og Austur-Kínahafi og leggja
meðal annars mikla áherslu á að efla sjó- og
flugherinn. Liður í því er smíð nýs flugmóður-
skips, hins fyrsta sem smíðað er frá grunni í
Kína, og stendur til að taka það í notkun árið
2020. Munu þeir þá eiga tvö slík skip.
Kína mun verja landsvæði sitt
Hræðast ekki ferðir
Bandaríkjamanna
AFP
Herveldi Kínversk orrustuþota sést hér lenda á flugmóðurskipi sem þá var í Austur-Kínahafi.
Viðræður fara í dag fram á milli Donalds Trumps
Bandaríkjaforseta og Shinzo Abe, forsætisráðherra Jap-
ans, í Washington. Í þeim hyggst Abe brýna fyrir Trump
að taka tillit til öryggismála Tókýó á komandi leiðtoga-
fundi Trumps og Kim Jong-uns, leiðtoga Norður-Kóreu.
Abe hefur rætt þrjátíu sinnum við Trump síðan hann
varð forseti og hafa þeir hist alls átta sinnum.
Borið hefur á áhyggjum í Japan af útkomu leiðtoga-
fundar Kim Jong-un og Trumps. Trump gæti fallist á
það að draga úr bandarískum herafla í S-Kóreu. Slíkt
myndi gera Japan að eins konar víglínuríki gagnvart Kóreuskaga, sem er
undir miklum kínverskum áhrifum. „Stjórnarskrá Japans, lýðræðisleg
gildi og þjóðaröryggi þyrfti að vera endurskoðað í ljósi nýrra aðstæðna.
Það yrði martröð fyrir Japan og líka Bandaríkin,“ sagði Shinzo Abe.
ASÍA
Leiðtogaviðræður milli Trumps og Abe
Bandarískur hermaður tók bryndreka
þjóðvarðliðs Virginíuríkis ófrjálsri hendi
og ók honum um stræti borgarinnar Rich-
mond. Veitti lögreglan drekanum eftirför
í um tvær klukkustundir áður en her-
maðurinn hætti ökuferð sinni nærri barna-
spítala í miðborginni.
„Engir árekstrar eða meiðsl hlutust af
þessu. Hertólið, sem er án vopna og ekki
skriðdreki, er í eigu þjóðvarðliðs Virginíu-
ríkis,“ hefur breska ríkisútvarpið, BBC, eftir lögreglukonunni Keeli Hill í
Richmond.
Fjölmennt lið lögreglu veitti bryndrekanum eftirför og þegar hann loks
stoppaði var tækið umkringt og hermaðurinn yfirbugaður með aðstoð raf-
byssu. Var hann í kjölfarið handtekinn og færður í fangageymslur. Þetta
er ekki í fyrsta skipti sem bryndreka er stolið vestanhafs, en árið 1995 var
skriðdreka af gerðinni M-60 ekið um götur borgarinnar San Diego. Sá sem
það gerði ók yfir og utan í bíla og ógnaði þannig mjög öryggi fólks. Maður-
inn var að lokum skotinn til bana af lögreglu.
BANDARÍKIN
Stal bryndreka og ók um miðborgina