Morgunblaðið - 07.06.2018, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 07.06.2018, Blaðsíða 45
UMRÆÐAN 45 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2018 Suðurlandsbraut 6, Rvk. | Sími 419 9000 info@handafl.is | handafl.is Við útvegum hæfa starfskrafta í flestar greinar atvinnulífsins VANTAR ÞIG STARFSFÓLK? Handafl er traust og fagleg starfsmannaveita með margra ára reynslu á markaði þar sem við þjónustum jafnt stór sem smá fyrirtæki. Veitingarekstur á HvolsvelliTil sölu Um er að ræða þekktan veitingastað í góðu húsnæði ca 100 km frá Rvk, með áralanga góða rekstrarsögu og góða aukningu í veltu á hverju ári. Staðurinn er vel tækjum búinn og með fullt leyfi. Sæti eru fyrir 50 manns inni og nýlega opnuð flott útiaðstaða. Hér er á ferðinn flott tækifæri, góður rekstur með fína ebitu. Góður leigusamningur í boði á húsnæðinu. Ath. einnig er möguleiki að kaupa húsnæðið sé áhugi fyrir því. Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu í síma 487 5028, 487 8688 og gsm 893 8877. Þrúðvangi 18, 850 Hellu, sími 487 5028 Guðmundur Einarsson, lögg. fasteignasaliFasteignasala Fannberg Segja má að ævi mannsins sé eins og knattspyrnuleikur sem við erum þátttak- endur í. Stundum er spenna og hraði, mikið fjör og ferlega gaman og það gengur vel. Svo koma leikir eða kaflar í leiknum sem okkur kann að þykja leiðin- legir, þegar ekkert gengur upp og okkur langar jafnvel mest til að fara út af, gefast upp, hætta. Okkur langar bara heim, nennum ekki að taka þátt í svona ójöfnum, ósanngjörnum og asnalegum leik þar sem allt virðist vera okkur mótdrægt. Leikurinn snýst um að koma bolt- anum í mark. Verjast og sækja. Standa sig. Við vinnum sæta sigra og upplifum sár töp. Er aðalatriðið þó ekki eftir allt saman að hafa feng- ið að veðrast og taka þátt í þeim krefjandi áskorunum sem okkur eru færðar í fang í þeim leik sem lífið er? Andlegi þátturinn Sannir sigurvegarar njóta augna- bliksins. Þeir standa saman og fagna hverju stigi og öllu því sem vel er gert. Þeir leggja sig fram og eru hluti af liðsheild þar sem hver og einn leggur sitt af mörkum til þess að liðið smelli saman og nái árangri. Þeir hughreysta hver annan, eru uppörvandi og láta mistök ekki sitja í sér heldur eflast með samstöðu við mótlætið. Í heildarmyndinni eru það nefni- lega smáatriðin sem skipta máli svo árangur náist. Sannir sigurvegarar leggja sig fram og skammast sín hvorki fyrir eigið framlag eða frammistöðu né ann- arra liðsmanna. Þeir taka ekki upp á því að kenna dómaranum eða mótherjunum um það sem miður fer, hvað þá umgjörðinni eða með- leikurunum. Þeir hafa trú á verkefninu og þjálfa sig upp andlega með íhugun og bæn. Í þolinmæði og aga sem veitir æðruleysi, yfir- vegun, yfirsýn og þann frið sem til þarf og gerir okkur kleift að takast á við erfið og krefjandi verkefni, ná ár- angri og höndla aðstæður. Liðsheild sem byggist á andlegri samstöðu, á sameiginlegri hugsjón, krafti og útsjónarsemi er tendruð af ástríðu, sönnum og heiðarlegum keppnisanda og verður ekki stöðvuð svo glatt. Sama á hverju gengur og hvernig sem allt fer. Litróf Litróf mannlegrar tilveru fær sín nefnilega ekki notið nema allir lit- irnir komi fram og fái að njóta sín, með sínum hætti. Þá fyrst verður liðið öflugt þegar við tökum að styðja hvert annað. Þegar daufu lit- irnir fá að styðja þá sterku og hinir sterku þá daufu. Væri tilveran ann- ars ekki daufleg ef við værum öll eins, með sömu hæfileika og keppt- umst öll við að spila sömu stöðu? Spilað til sigurs Ævinnar gleði er eitthvað svo skelfing skammvinn og velgengnin völt. Sigrarnir sætir en kransarnir svo ótrúlega fljótir að fölna. Hin var- anlega gleði er fólgin í því að eiga nafn sitt skráð með himnesku letri í lífsins bók. Gleðjumst þeirri gleði. Hún er sigursveigur sem ekki fölnar. Gleymum ekki að það dýrmætasta er að vera valinn í lið lífsins og fá að spila með til sigurs. Og munum að þótt einstaka viður- eignir kunni að tapast munum við að lokum standa uppi sem sigurveg- arar. Lifi lífið! Eftir Sigurbjörn Þorkelsson Sigurbjörn Þorkelsson » Þeir hughreysta hver annan, eru upp- örvandi og láta mistök ekki sitja í sér heldur eflast með samstöðu við mótlæti. Þeir þjálfa sig með íhugun og bæn. Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins. Sannir sigurvegarar Á Vesturlöndum er heilaskaði talinn ein helsta ástæða fyrir heilsufarsvandamálum hjá börnum, ungling- um og ungu fólki á fullorðinsaldri. Hér á landi eru árlega greind yfir 500 börn með heilaáverka á Íslandi og 200 af þeim eru börn á aldrinum 0-4 ára. Af þessum tölum má dæma að 40 börn og unglingar munu þurfa að takast á við alvarlegar afleiðingar heilaskaða til lengri tíma og oft á tíð- um fram á fullorðnisár. Þessi börn þurfa á sérhæfðri endurhæfingu að halda til að lágmarka afleiðingar heilaskaða en því miður eru slík úr- ræði ekki í boði í heilbrigðiskerfinu. Í dag fá einungis eitt til þrjú börn á Ís- landi greiningu og skammtímaend- urhæfingu, brotabrot af þeim börn- um sem þurfa á meðferð að halda. Afleiðingar heilaskaða úr æsku koma oft ekki að fullu fram fyrr en við full- orðinsárin þegar þessir einstaklingar fara að reyna að standa á eigin fótum í lífinu. Heilaskaði er fötlun sem hef- ur vitsmunaleg og líkamleg áhrif á einstaklinginn. Hvað verður um hin 37 börnin? Jú, þau gleymast. Á hverju ári má gera ráð fyrir því að um 37 börn sem ekki hljóta viðeigandi meðferð verði út undan og náms- og félagsfærni þeirra hraki. Mörg af þessum börnum fá ranglega greiningu um AD/HD eða einhverfu og af þeim sökum fá þau ranga meðferð og jafn- vel röng lyf. Þrátt fyrir að einkenni séu svipuð er um ólíka hluti að ræða sem þarfnast ólíkrar meðferðar. Það er mikið í húfi og nauðsynlegt að sinna þessum gleymdu börnum og gefa þeim tækifæri til að taka þátt í samfélaginu sem virkir einstakl- ingar. Heilbrigðisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, hefur nú skipað starfshóp sem fer vandlega yfir stöðu fólks með ákominn heilaskaða og þar með talið börnin okkar. Sérhæfð íhlutun er ekki fyrir hendi á Íslandi og úr því þarf sannar- lega að bæta. Gleymdu börnin á Íslandi Eftir Stefán John Stefánsson Stefán John Stefánsson » Á hverju ári má gera ráð fyrir því að um 37 börn sem ekki hljóta meðeigandi meðferð verði út undan. Höfundur er verkefnastjóri Hugarfars. Sjaldan heyrum við fólk greina frá því op- inberlega að ofur- hetjur gegni mikil- vægu hlutverki í lífi þeirra. Sumir halda því fram að ofurhetjur séu ósýnilegar. Til eru þeir sem segja að ofurhetjur séu aðeins til í þjóðsögum og ævintýrum. Ofur- hetjur verða til í menningu hvers tíma en búa yfir skilningi sem virðist yfir öll landa- mæri hafinn. Á Íslandi eru þessar verur gæddar hæfileikum sem annars þekkjast bara í álfa- og hulduheimum. Þegar þessar ofur- hetjur láta til skarar skríða virðast jötnar, tröll og helstu skrímsli skreppa saman og máttur þeirra dvína. Þekktustu verkfæri um- ræddra ofurhetja eru seigla og þrái. Seiglan smyr innviði þeirra og gerir þeim kleift að beita þrá- anum í þágu þeirra sem þær elska. Kærleikurinn sem þær bera í móð- urbrjósti sér er óendanlegur. Til er sú kenning að þegar þeim fæð- ist barnabörn margfaldist kær- leiksgen ofurhetjanna. Ég kalla þessar ofurhetjur ömmur. Lýs- ingin hér að ofan getur í mesta lagi talist inngangur að lýsingum á eiginleikum þeirra. Ég var heppinn. Ég átti tvær ömmur. Báðar voru þær kjarna- konur og ofurhetjur í mínum aug- um. Langt er síðan þær héldu til nýrra heimkynna yfir móðuna miklu. En minningin lifir og hefur þann eiginleika að draga fram myndir litaðar af draumnum um mig barnið og ömmuna mína. Ég er heppinn. Jákvæð hugrenninga- tengsl við ömmurnar í lífi mínu skapa í huga mér einstakar sögur um mikilvægi þessara kvenna í lífi mínu og minna nánustu. Amman verður táknmynd fyrir von, trú og kærleik, já, hún verður allt að því guðdómleg. Ömmurnar verða ofurhetjur númer eitt í lífi mínu og bera titilinn: Verndarar bernskuminninganna. Allt of sjaldan heyri ég fólk greina frá því opinberlega að ömm- ur gegni mikilvægu hlutverki í lífi þeirra. Sumir halda því fram að ömmur séu ósýni- legar þar til þær birt- ast í minningar- greinum. Til eru þeir sem segja að alvöruömmur séu bara til í ákveðnum fjölskyldum. Það er sannfæring mín að ömmur verði til í fjölskyldusamhengi hvers tíma og að hver og einn eigi sína ömmu. Ef vel er að gáð eru þær úti um allt. Hlutverk okkar sem erum ekki ömmur er að segja þessum frábæru einstaklingum frá mikilvægi þeirra í lífi okkar allra. Ömmur eru litlar og stórar, feitar og mjóar, fiskverkakonur og forsetar, þögular og símalandi, búa í sama húsi og barnabörnin eða jafnvel í öðru landi. Það er ekki hægt að skilgreina hvað amma er. Hver amma hefur fullt frelsi til að ákveða hvernig amma hún er. En það breytir því ekki að allar ömmur eru ofurhetjur, hver á sinn hátt. Og nú spyr ég: Hefur þú faðmað ofurhetju í dag? Eftir Pétur Björg- vin Þorsteinsson Pétur Björgvin Þorsteinsson » Þegar þessar ofur- hetjur láta til skarar skríða virðast jötnar, tröll og helstu skrímsli skreppa saman og mátt- ur þeirra dvína. Höfundur er djákni í evangelísku kirkjunnar í Württemberg í Þýska- landi. petur.thorsteinsson@ejr.de Hefur þú faðmað ofurhetju? Fasteignir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.