Morgunblaðið - 07.06.2018, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 07.06.2018, Blaðsíða 63
MINNINGAR 63 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2018 Kveðja frá Fjöl- brautaskóla Vesturlands Við lok vorannar barst Fjöl- brautaskóla Vesturlands sú sorgarfregn að nemandi skól- ans, Einar Darri Óskarsson, væri látinn. Þessi fregn var nemendum og starfsfólki skólans mikið reiðarslag og við erum óþyrmi- lega minnt á hversu lítils megn- ug við erum þegar áföll verða. Við spyrjum okkur hvers vegna forsjónin hrífur skyndilega brott ungan og efnilegan mann í blóma lífsins frá ástvinum, ættingjum og skólafélögum. Þegar slíkir sorgaratburðir gerast verður mönnum orða vant. Í sorg og söknuði finnum við hin svo áþreifanlega hve lífið er hverfult. Einar Darri hóf nám við Fjölbrautaskóla Vesturlands haustið 2016. Þá kynntumst við strax þeim góðu mannkostum sem hann bjó yfir. Einar Darri var mjög ljúfur og hæglátur piltur. Einar Darri Óskarsson ✝ Einar DarriÓskarsson fæddist 10. febrúar 2000. Hann lést á heimili sínu 25. maí 2018. Útför Einars Darra fór fram 5. júní 2018. Hann var ákaf- lega dagfarsprúður og öll hegðun hans og framkoma til fyrirmyndar. Ein- ars Darra er sárt saknað meðal nem- enda og starfsfólks FVA en eftir lifir minning um góðan dreng og þakklæti fyrir að hafa mátt njóta samvistanna við hann. Fjölskyldu hans og vinum sendum við hugheilar samúðar- kveðjur. Fyrir hönd Fjölbrautaskóla Vesturlands, Ágústa Elín Ingþórsdóttir, skólameistari. Ég var svo lánsöm að fá að kynnast Einari Darra þegar hann var sjö ára gamall. Hann flutti með fjölskyldu sinni í Hvalfjarðarsveit um svipað leyti og ég kom þangað með mín börn. Fljótlega tókst góður vin- skapur á milli mín og Báru, móður Einars Darra. Ég kenndi honum og Anítu systur hans í nokkur ár og Bára hugsaði vel um litlu strák- ana mína á leikskólanum. Einar Darri var á milli elstu strákanna minna í aldri og Árni Kristján litli bróðir hans var jafnaldri og góður vinur Björg- vins, sonar míns. Samskiptin við fjölskyldu Einars voru því þónokkur. Það er varla hægt að hugsa um Einar Darra án þess að brosa út í annað. Hann hafði mjög ákveðinn fatastíl og var áberandi vel til fara og vel greiddur alla daga. Hann var svolítið uppátækjasamur og alltaf til í að vera með ef það var fjör. Hann sýndi fullorðnum ávallt virðingu og kom vel fram við náungann. Einar Darri var sér- lega glaður og skemmtilegur strákur. Hann var forvitinn um allt mögulegt og hikaði ekki við að spyrja ef það var eitthvað sem hann langaði að vita. Þær voru einmitt nokkrar kennslustund- irnar sem enduðu með góðu spjalli um heima og geima en Einar Darri hafði einstakt lag á að breyta kennslustundum í ís- lensku í heimspekilega um- ræðutíma. Hann var svo einlægur að það var erfitt að neita honum um nokkurn hlut. Hann átti ekki langt að sækja sína ljúfu lund og þeir sem þekkja Báru, móður Einars Darra, kannast vel við hvernig hún umvefur alla með sinnu hlýju nærveru. Einar Darri var vinamargur og alveg frá því hann var lítill strákur þá skipti engu máli hvort vinirnir voru strákar eða stelpur, þau voru öll vinir. Það er því stórt skarð hoggið í vina- hópinn sem aldrei verður fyllt. Einar Darri snerti streng í hjarta mínu alveg frá fyrstu stundu. Það er því sérlega sárt að horfa á eftir þessum ljúfa og fallega dreng sem átti alla framtíðina fyrir sér. Elsku Bára og fjölskylda. Ég votta ykkur mína dýpstu samúð og vona að tíminn nái að lækna sárin. Megi allar góðar vættir vaka yfir ykkur. Íris Dröfn Kristjánsdóttir. Hinn 5. júní sl. var borinn til grafar fyrrverandi nemandi okkar og vinur, Einar Darri Óskarsson, sem í blóma lífsins var tekinn frá okkur alltof snemma. Við erum þakklát fyr- ir að hafa kynnst þessum skemmtilega og ljúfa dreng og notið samveru við hann þau sjö ár sem hann stundaði nám hjá okkur. Einar Darri hóf nám við Heiðarskóla í 3. bekk haustið 2008 en færði sig um set eftir 9. bekk vorið 2015. Til þessa tíma lítum við nú með söknuði en jafnframt mikilli gleði. Einar Darri var einstaklega hæfileikaríkur og einkar vin- sæll meðal samnemenda sinna sem litu upp til hans og báru til hans traust því hann var sann- ur vinur vina sinna. Hann var þroskaður, alla tíð trúr sjálfum sér og rökfastur. Til marks um það munum við eftir mörgum rökræðum þar sem Einar Darri sagði skoðanir sínar og varði þær svo með rökum sem oft reyndist erfitt að hrekja. Minningarnar um Einar Darra munu lifa í Heiðarskóla um ókomna tíð, minningar sem okkur þykir óendanlega vænt um. Við vottum fjölskyldu Einars Darra okkar dýpstu samúð. Fyrir hönd starfsfólks Heiðarskóla, Sigríður Lára Guðmundsdóttir. Einar Mýrdal var einn þeirra fjöl- mörgu Akurnes- inga sem unnu allan sinn starfs- feril hjá fyrirtækjum Þorgeirs Jósefssonar. Ungur fetaði hann í fótspor föður síns og lærði tré- skipasmíði hjá Dráttarbraut Akraness. Fljótlega eftir að hann hlaut meistararéttindi varð hann verkstjóri með 30-40 menn í vinnu. Á þeim árum voru smíðuð nokkur tréskip hjá fyrirtækinu og miklar annir við slipptökur og viðhald flotans. Jafnframt annaðist fyrirtækið byggingu nokkurra stórhýsa á Akranesi svo sem íþróttahússins og stækkun sjúkrahússins. Þegar Dráttarbraut Akraness og Vélsmiðja Þorgeirs & Ellerts voru sameinuð undir nafninu Þorgeir & Ellert varð Einar verkstjóri yfir tréiðnum og slipptökum sem fjölgaði mjög þegar skipalyfta fyrirtækisins var tekin í notkun á sjöunda áratugnum, en hún sló fljótt í gegn og stór hluti flotans kom í slipp á Akranesi. Álagið á starfsmenn var mikið og þeim fjölgaði verulega, ekki síst yfir sumartímann. Einar hafði því í mörg horn að líta, vinnudagur- inn var langur, oft unnið langt fram á kvöld og flesta laugar- daga. Þegar fyrirtækið hóf stál- skipasmíði um miðjan sjöunda áratuginn jókst álagið enn. Ofan á slipptökur og mannvirkjagerð bættist nú innréttingasmíði og Einar S. Mýrdal Jónsson ✝ Einar S. Mýr-dal Jónsson fæddist 30. ágúst 1928. Hann lést 14. maí 2018. Útförin hefur farið fram í kyrr- þey að ósk hins látna. margs konar tré- verk í stálskipin, en næsta aldarfjórð- unginn voru byggð yfir 20 skip; fiski- bátar, togarar, sementsferja, bíla- ferja og skemmti- snekkja. Fyrirtækið var orðlagt fyrir að skila af sér vand- aðri smíði, jafnt stál-, tré- og rafmagni, þökk sé þeim frábæru iðnaðarmönnum og verkstjórum þeirra sem þarna störfuðu. Einar var harðduglegur og góður fagmaður. Hann átti gott með að stjórna fólki með sínu þægilega viðmóti og þurfti hvorki að byrsta sig eða hafa hátt. Hann átti mjög góð samskipti við útgerðarmenn, skipstjóra, vélstjóra og aðra þá sem fylgdu bátum í slippinn. Einar átti við bakveiki að stríða frá unglings- árum en lét það ekki trufla sig frá vinnu þó stundum væri hann kominn í keng eftir langan vinnudag. Við Einar vorum samstarfs- menn í þrjá áratugi. Hann var afskaplega ljúfur og þægilegur í öllum samskiptum og hollur sínu fyrirtæki. Hann kom daglega til okkar á skrifstofunni og þegar hann mátti vera að spjölluðum við um heima og geima. Einar var frá- bær sögumaður og mjög umtals- góður um fólk. Hann er eft- irminnilegur félagi og einn sá síðasti sem kveður af öllum þeim snillingum sem báru uppi starfsemi Þorgeirs & Ellerts á síðustu öld. Við Guðný sendum Huldu og fjölskyldu innilegar samúðar- kveðjur. Blessuð sé minning Einars Mýrdal. Guðjón Guðmundsson. Elsku afi minn er látinn á nítug- asta og öðru aldurs- ári. Afi var alltaf mikið hraustmenni. Þegar starfsferlinum lauk gekk hann daglega teinréttur í baki um hóla og hæðir með hund í bandi, hann vildi helst ekki ganga á sléttu malbikinu. Hann vildi vera sjálfstæður og sjálf- bjarga en þegar hann fann að styrkurinn og þrótturinn var farinn að minnka vildi hann fá herbergi á dvalarheimili aldr- aðra og var snöggur að sjá björtu hliðarnar á því, nú gat hann átt samtal við annað fólk, hann var víst farinn að týna orð- um af allri einverunni að eigin sögn. Í mínum uppvexti var ég svo lánsöm að hafa ömmu og afa í göngufjarlægð og hitti ég þau nánast daglega. Minningarnar eru margar og skemmtilegar og gott að rifja upp. Á sínum yngri árum æfði afi vetraríþróttir þar sem hann ólst upp á Patreksfirði og fannst fátt skemmtilegra en að sýna okkur unga fólkinu ótrú- legar listir á bæði skautum og skíðum. Mér er minnisstætt þegar hann fór með okkur í fjall- ið, ofurspenntur fyrir því að henda sér á skíði, þá um sjötugt. Hann varð ekki ánægður þegar hann komst að því að mamma hafði bara tekið gönguskíði fyrir hann. Svigskíðum var reddað á karlinn og hann skíðaði um brekkurnar manna liprastur. Afi var allt í senn, vinnusam- ur, uppfinningamaður, fjörkálfur og algjört náttúrubarn sem elsk- Sveinn Arnar Davíðsson ✝ Sveinn ArnarDavíðsson fæddist 3. mars 1927. Hann lést 26. maí 2018. Útför Sveins fór fram 2. júní 2018. aði dýrin stór og smá. Í heimsóknum til hans kom maður aldrei að tómum kofunum, hann var alltaf eitthvað að fást við sem hann hafði mikla unun af að segja manni frá og sýna og svo gát- um við talað um hundana, þessar einstöku skepnur sem héldu honum ungum og hraustum. Afi átti yfirleitt sínar einstöku útskýringar og lausnir á því sem var að gerast. Eitt árið eignaðist hann fjögur sett af tvíburalang- afabörnum, „þið íþróttafólkið er- uð eins og rollurnar, verðið tví- og þrílembd af þessum fæðubót- arefnum“ voru hans viðbrögð. Ef eitthvað amaði að honum var algjörlega tilgangslaust að reyna að koma honum til læknis, ef það tókst þá voru litlar líkur á því að hann fylgdi læknisráði, hann var yfirleitt sjálfur búinn að finna heilsusamlega og góða lausn. Afi kenndi mér að sjóða fisk- inn ekki of mikið, til að halda betur næringarefnunum í matn- um, hann kenndi mér líka að troðfylla appelsínur af sykur- molum, þær verða margfalt betri fyrir vikið. Afi kenndi mér að aldur er afstæður og mikil- vægt að nýta vel þá krafta og þrek sem manni hlotnast. Afi kvaddi sáttur, hann átti ekkert ógert og var tilbúinn að kveðja. Þannig held ég að flestir vilji skilja við en of fáir fái. Þakklæti er því efst í huga á þessari kveðjustund, þakklæti fyrir þann tíma sem ég og mín fjölskylda fengum með þessum skemmtilega manni. Hvíldu í friði, elsku Svenni afi. Guðrún Arna Sigurðardóttir. Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996 ALÚÐ •VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er. Kristín IngólfsdóttirSverrir Einarsson Margrét Á. Guðjónsd. Hannes Ó. Sampsted Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR ERLA HARALDSDÓTTIR húsmóðir, Birkivöllum 23, Selfossi, lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Lundi þriðjudaginn 22. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Katrín S. Klemenzardóttir Karl Birgir Svavarsson Elín Hekla Klemenzdóttir Klemenz Geir Klemenzson Svanbjörg Ólafsdóttir Erlingur Reyr Klemenzson Líney María Hjálmarsdóttir Guðrún H. Klemenzdóttir Róbert Sverrisson barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæru HELGU HARALDSDÓTTUR, Núpakoti. Pétur Freyr Pétursson Sólveig Eva Pétursdóttir Aron Örn Jónsson Jón Þór Aronsson Pétur Logi Pétursson Heiðrún Helga Ólafsdóttir Haraldur Tyrfingsson Sólveig Guðrún Ólafsdóttir Úlfar Ingi Haraldsson Jóhanna Sól Haraldsdóttir Ólafur Haukur Haraldsson Ómar Haraldsson Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, stjúpfaðir, tengdapabbi og afi, VÍGLUNDUR PÁLSSON, Hamrahlíð 18, Vopnafirði, lést á hjúkrunarheimilinu Sundabúð mánudaginn 28. maí. Útför hans fer fram frá Vopnafjarðarkirkju föstudaginn 8. júní klukkan 13. Jarðsett verður að Hofi. Elín Friðbjörnsdóttir Svanborg S. Víglundsdóttir Ellert Árnason Svava Víglundsdóttir Unnsteinn Arason Einar Víglundsson Jóhanna Rögnvaldsdóttir Anna Pála Víglundsdóttir Gunnar Róbertsson Selma Dögg Víglundsdóttir Geirmundur J. Hauksson Hilmir Víglundsson Sólveig Andrea Jónsdóttir Ester Jóhannsdóttir Albert Már Steingrímsson Grétar Ólafsson Kolbrún Steingrímsdóttir Kristján Stefánsson Sólveig Erla Hinriksdóttir og afabörn Okkar ástkæra SÓLVEIG ÓLAFSDÓTTIR lögfræðingur, Bræðraborgarstíg 15, Reykjavík, lést föstudaginn 1. júní í faðmi fjölskyldunnar á kvennadeild Landspítalans. Útförin verður gerð frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 12. júní klukkan 15. Jónatan Þórmundsson Þórmundur Jónatansson Gyða Valdís Guðmundsdóttir Sigurveig Þórmundsdóttir Ólafur Bjarni Bergsson Sólveig Þórmundsdóttir Sigurður Freyr Jónatansson Sigríður Hjördís Jörundsdóttir Skarphéðinn Ísak Sigurðs. Helena Rós Sigurðardóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.