Morgunblaðið - 07.06.2018, Blaðsíða 67

Morgunblaðið - 07.06.2018, Blaðsíða 67
DÆGRADVÖL 67 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er engin ástæða fyrir þig til þess að bera ábyrgð á öllum sem í kringum þig eru. Nú er kominn tími til að gera breyt- ingar á heimilisaðstæðum þínum. 20. apríl - 20. maí  Naut Hlutirnir gerast hraðar í kringum þig en þér finnst þægilegt. Treystu á sjálfa/n þig ef þú vilt koma einhverju í verk. Hvað sem þú ert að gera, ekki hætta. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú ert alltaf að tala um að þú hafir engan tíma til gera neitt skemmtilegt, en það er ekki satt. Búðu þig undir að hlutirnir fari öðruvísi en áætlað er. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú þarft að leysa vandamál sem krefst mikillar einbeitingar og yfirsýnar. Mik- inn kjark þarf til þess að viðurkenna að eitt- hvað sé ekki á manns færi og leita hjálpar. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Hafðu ekki of miklar áhyggjur af öðru fólki því þú þarft að hafa tíma fyrir sjálfa/n þig. Biddu aðra um að segja þér stuttu út- gáfuna, grundvallaratriðin og kjarna málsins. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þó svo að þú þurfir að hvíla þig er þér mikið í mun að bæta stöðu þína. Láttu það eftir þér að njóta en vertu samt með- vituð/aður um að lánið getur verið fallvalt. 23. sept. - 22. okt.  Vog Ástvinir þurfa á skilningi þínum að halda meira en nokkru sinni fyrr. Þú sýnir ást þína með því að treysta einhverjum fyrir vissu verki. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú sérð ekki tilganginn með því að leggja þig fram nema þú getir breytt ein- hverju. Veltu því samt mikið fyrir þér í hvað þú verð orku þinni. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú þarft að tala við yfirmann þinn eða annan yfirboðara í dag. Deilur rísa um eignarrétt og þú verður að hafa þig alla/n við til þess að standa á rétti þínum. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það er svo auðvelt að taka eigin skoðanir fram yfir annarra en stundum hafa nú aðrir eitthvað til síns máls ef vel er að gáð. . 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það er hverjum manni nauðsyn- legt að vera einn með sjálfum sér öðru hverju og láta aðra um að halda um stjórn- völinn. 19. feb. - 20. mars Fiskar Hlustaðu vel á þinn innri mann, þeg- ar þú veltir fyrir þér verkefnum dagsins. Leitaðu til vina þinna um aðstoð og við- brögð þeirra munu koma þér skemmtilega á óvart. Helgi R. Einarsson sendi mérlimrur – og allt er þegar þrennt er! Fyrst er „Vanda – mál“: Loðinn er hann um lófana var lýsing á aðfluttum Slóvana, samt málinu’ ei náði að neinu ráði. Það erfitt er fyrir óvana. Síðan eru það „Hrossakaup“: Síðan fyrst ég sá ’ana ég freista vildi’ að fá ’ana. Nú skelli’ á skeið, skruggureið, af því nú ég á ’ana. Og loks „Veiðileysi“: Kristján kyssti tvær konur á barnum í gær. Sem hani á hól hátt þá gól. Þess vegna fóru þær. Hallmundur Guðmundsson segir svo frá á Boðnarmiði: „Mér varð á að hnoða í tilefni þess að kona ein safnaði saman konum til að spranga berbrjósta í ásýnd hans Jóns okkar Sigurðssonar og setti hún að auki myndir af berbrjósta konum innanum og saman við myndir af liðnum mektarmönnum þjóðarinnar. Þetta ku vera mikil- fenglegur listgjörningur helgaður af Listahátíð í Reykjavík. – „Hnoð“: Ef að seggur málar mynd, af mær í baði er myndasmíðin mikil synd og meyjarskaði. En ef að svanni málar mynd, mýkist vistin og myndasmíðin minni synd – en mikil listin –.“ Jón Gissurarson sagði svo frá: „Núna klukkan að ganga fjögur að nóttu er hitinn aðeins fimm gráður og ég horfi yfir þokuslæðuna sem hylur lágsveit Skagafjarðar. Sólin er að koma upp og mun innan tíð- ar hrekja þokuna út í hafsauga. Núna lítinn funa finn fellur dögg á mína kinn. Lágþokan hér læðist inn leggur yfir fjörðinn minn.“ Sigrún Grímsdóttir svaraði og sagði að á Blönduósi væri hitastig- ið aðeins hærra og sólin komin upp: Vestan Skarðs má vaka og sjá veröldina fara á stjá, fugla vakna og fljúga hjá á foldu döggin þorna má. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af loðnu, hrossakaupum og brjóstum „SORRÍ, ÉG ER VENJULEGAST EKKI SVONA SVARTSÝN. KANNSKI ÞARF ÉG AÐ HITTA SPUNAMEISTARA.“ „ÞEGAR VIÐ KOMUMST INN VERÐA APARNIR ORÐNIR UPPGEFNIR!“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þegar hann færir þér blóm – fullt af þeim! Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÉG BJÓ EINU SINNI Í ÞESSUM KASTALA! HANN ER FALLEGUR! HVERS VEGNA MYNDIRÐU FLYTJA Í BURTU? VÖRÐURINN SKILDI DÝFLISSUNA ÓVART EFTIR OPNA! BANGSI, EIGUM VIÐ AÐ HREYFA OKKUR EÐA BARA SITJA HÉRNA? ÞÚ RÆÐUR FÖR DÝRAGARÐUR Víkverji átti leið um Costco umdaginn. Hann ætlaði að kaupa sér einn hlut en endaði með fimm eins og jafnan gerist í þeirri ágætu búð og er þá Víkverji ekki bara að tala um magnið af vörum sem Costco telur rétt að selja saman í einu lagi. x x x Eitt af því sem Víkverji endaði á aðkaupa sér í bandarísku töfrabúð- inni var nýr rafmagnstannbursti, enda fór sá fyrri fyrir lítið í nýlegum breytingum á heimilishögum hans, sem ekki verður farið nánar út í hér. Það sem vakti þó ekki síður athygli Víkverja var að tannburstanum fylgdi sérstakur gúmmístandur, sem hann sá ekki betur en að væri ætl- aður farsímanum hans. x x x Ja hérna hér, þeir hugsa fyrir öllu!“tautaði Víkverji við engan sér- stakan þegar hann skoðaði þennan skrítna gúmmíhlut og reyndi að ímynda sér til hvers í ósköpunum sá væri brúkaður. Það var ekki fyrr en Víkverji las bæklinginn sem fylgdi með burstanum að hann sá að tann- burstinn var útbúinn svokölluðu Bluetooth-kerfi, sem notað er til þess að tengja tvö raftæki saman. Því að hvers vegna ekki? x x x Kom þá í ljós að tannburstafyrir-tækið er búið að þróa smáforrit eða „app“ fyrir farsímann, sem getur bara séð um burstunina fyrir mann. Appið getur fylgst með því hversu oft Víkverji burstar tennurnar, hversu lengi í senn, látið hann vita hvaða tennur hafa verið burstaðar og svo mætti lengi áfram telja. Í app- inu er meira að segja boðið upp á að sjá fréttir og veður á meðan burstað er. x x x Víkverji hefur horft á nógu mikiðaf vísindaskáldskap þar sem tölvur og vélar taka völdin af mann- kyninu til þess að gjalda mikinn var- hug við þessari þróun tannburstans síns. Að vísu hafa tannburstar ekki oft í bíómyndunum breytt sér í Arn- old Schwarzenegger og farið að murka lífið úr saklausum vegfar- endum níunda áratugarins, en eitt sinn er allt fyrst. vikverji@mbl.is Víkverji Því að Mannssonurinn er kominn að leita að hinu týnda og frelsa það. (Lúkasarguðspjall 19.10)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.