Morgunblaðið - 21.06.2018, Blaðsíða 33
FRÉTTIR 33Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2018
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk.
s: 781-5100
Opið: Mán-fim: 12-18
fös: 12-16
FYRIR VEISLURNAR
Í SUMAR!
COLOUR 5
„Við byrjuðum með hefðbundinn bú-
skap og tókum á leigu nágrannajörð
okkar sem heitir Sælingsdalstunga.
Þar er stórt fjárhús með pláss fyrir
500 ær, og talsvert stórt jarðnæði
með fjalllendi svo að kindurnar okk-
ar hafi samastað yfir sumartímann.
Hugsa sér að kindurnar eru í öruggu
skjóli allan veturinn, eignast lömbin
sín á öruggum stað, með aðstoð frá
fólki, og þegar lömbin eru fædd fara
þau á fjall og eru frjáls allt sumarið.
Það er ekkert betra líf en þetta, ef
dýrin fæðast til að verða matur. Við
erum svo heppin á Íslandi að hafa
svona stórkostlega leið til að fram-
leiða kjöt og ull, það þurfum við að
muna, fagna og passa vel upp á.“
Þau segjast því miður ekki geta
lifað af búskapnum fjárhagslega, og
vinna bæði meðfram, Hjalti við girð-
ingarvinnu og akstur og Rebba í
kjörbúðinni í Búðardal, tvisvar í viku
á veturna.
Dýragarðurinn byrjaði með því að
nokkrar hænur vantaði heimili, svo
vantaði nokkrar endur heimili, síðan
einn hest, næst kom lítil álft og aldr-
ei gat Rebba sagt nei. Smám saman
komu fleiri og fleiri dýr og Rebba fór
að kaupa fleiri tegundir.
„Þegar vinir okkar komu í heim-
sókn fórum við auðvitað alltaf út að
klappa og knúsa dýrin, síðan fór
annað fólk að koma og margir stopp-
uðu líka af því að hér var kúluhús
fyrir dýrin, sem allir taka eftir.“
Fyrir tæpum fjórum árum var
haft samband við þau frá Ung-
menna- og tómstundabúðunum á
Laugum í Sælingsdal, og hafa þau á
hverju ári síðan fengið hópa af ung-
um Íslendingum alla miðvikudaga í
heimsókn. Rebba reiknar með að
það séu í allt um 6 þúsund krakkar.
Þegar þetta var komið í gang datt
þeim í hug að það gæti orðið vinsælt
og opnuðu dýragarð sumarið 2016.
Sumarið 2017 settu þau á reglulegan
opnunartíma og hækkuðu að-
gönguverðið, til að mæta kostnaði
vegna umhirðu dýranna. Launin eru
þau að geta séð fólk njóta þess að
kynnast og umgangast dýrin.
Er sjálf með kattarofnæmi
„Á Hólum eru mörg falleg dýr
sem öll eiga stað í hjarta okkar. Kýr-
in mín heitir Álfadís og hún bar
kvígukálfi í fyrra sem heitir Ylfadís.
Hundarnir eru þrír, Junior 15 ára,
fjölskylduhundur og fjárhundur af
blendingskyni, Lísa sem er hrein-
ræktuð 9 ára border collie-tík og
Úlfur sem er 4 ára blendingur sem
við „ættleiddum“ þegar hann var 10
mánaða. Við eigum þrjá ketti en þeir
voru allir heimilislausir þegar þeir
komu til okkar. Þeir eru Oliver,
Tristan og Julio. Læðuna, mömmu
Ólivers, átti ég og fékk hann úr goti,
en hann fór á annað heimili. En
seinna var honum skilað vegna of-
næmis. Eina vandamálið með kett-
ina mína er reyndar að ég er sjálf
með ofnæmi fyrir köttum, þess
vegna eigum við bara þrjá,“ segir
Rebba og brosir.
Þessi upptalning er hvergi nærri
hætt því þau eru með 240 kindur og
400 lömb, 9 geitur og þar er geithaf-
urinn Hrafn fremstur meðal jafn-
ingja. Hrafn er mjög sérstakur og
getur gert alls konar kúnstir sam-
kvæmt fyrirmælum, t.d. gengið aft-
urábak, staðið á afturlöppunum og
gefið „high five“. Hann er mjög vin-
sæll á Hólum og eltir Rebbu um allt
eins og hundur. Þau eiga hamst-
urinn Glym, fiskinn Mary, kalkún-
ann Harald sem reyndar er dapur
núna því hann missti konuna sína í
vetur. Rebba segir að þau langi til
kaupa kerlu fyrir hann svo að hann
verði hamingjusamur aftur.
Ljóti andarunginn Eggert
Svanur Pjakksson
„Svanurinn okkar heitir Eggert
Svanur Pjakksson, hann vantaði
heimili og auðvitað var pláss hér. Við
vitum reyndar ekki af hvaða kyni
hann er, í bókunum stendur að karl-
inn sé stærri en kerlan, en ég á bara
einn fugl og get ekki borið saman við
annan. Nafnið hans er skemmtilegt,
hann hét því þegar við fengum hann.
Það byrjaði þannig að kona var úti
að ganga með hundinn sinn sem
skyndlega kom hlaupandi með egg í
kjaftinum. Konan fann ekki hreiðrið
sem eggið var úr, svo hún fór með
það heim og kom því í útungunarvél
með andareggjum og eins og í æv-
intýrinu varð litli ljóti andarunginn
að svani. Hundurinn sem fann eggið
heitir Pjakkur, og þess vegna er
hann Pjakksson.“
Fleiri fuglar eru á Hólum,
brahmahænur, silkihænur, dúfur og
aliendur. Því miður fengu þau leið-
inlega heimsókn nýlega, en minkur
komst inn og drap allar kornhæn-
urnar þeirra, alls 11. En til allrar
hamingju hafði Rebba tekið nokkur
egg frá þeim tæpri viku áður, sett
þau undir silkihænu og núna eru þar
sex pínulitlir ungar.
„Auðvitað eigum við líka fallegar
íslenskar landnámshænur. Haninn
Loki er sá hani á Íslandi sem oftast
hefur verið kysstur, en rúmlega
5.000 manns hafa kysst hann á nebb-
ann og það munu örugglega fleiri
kyssa hann í framtíðinni.“
Talandi krummi
En aðalnúmerið er hann Krummi,
minn talandi hrafn sem fær mig til
að hlæja mörgum sinnum á dag þeg-
ar hann talar. Þetta er æðislegur
fugl, sem getur því miður ekki flogið
því hann lenti í slysi þegar hann var
ungi. En nú er hann tveggja ára og
hoppar hér í kring í góðu veðri og
hrópar mamma, hann getur líka sagt
„hæ rummi“, eða hæ krummi, en
hann ræður ekki við k-hljóðið. Hann
segir líka hættu, já já, heyrðu og allt
í lagi og margt fleira.“
Á Hólum er gyltan Svínka, hún er
tveggja ára og risastór, rúm 200 kíló.
„Hún er mjög klár og þegar hún var
minni kenndi ég henni að sitja og
gera „high five“. En nú er hún svo
stór og þung að kúnstir eru orðnar
erfiðar,“ segir Rebba og bætir við:
„Við eigum 14 hesta og von er á
folaldi, margir eru hér heima við og
hægt að hitta og klappa. Við eigum 6
naggrísi og 16 kanínur af fimm teg-
undum; venjulegar litlar „lionhead“-
holdakanínur, rex- og angóru-
kanínur. Þær eru utandyra, flestar
gæfar og hægt að halda á og
klappa.“
Vill bjóða upp á
ógleymanlega upplifun
Í fyrrasumar komu um 700 manns
í dýragarðinn og tók Rebba á móti
öllum og var með leiðsögn fyrir gest-
ina. Hún segist ánægð með hvað
margir af gestunum séu Íslendingar.
„Í fyrra var ég ekki búin að auglýsa
mikið, en orðsporið barst. Við feng-
um styrk frá Uppbyggingarsjóði
Vesturlands til markaðssetningar og
erum nýbúin að fá fána með lógóinu
okkar. Það var mikil gleði þegar ég
dró hann að húni, en með tár í aug-
unum. Við fjölskyldan völdum þetta
lógó saman og við erum mjög
hreykin af því. Við erum líka búin
að láta gera skilti, en það er margt
sem þarf að gera þegar við erum
bara tvö í þessu öllu. Við erum vön
að komast þangað sem við ætlum
okkur. En ef einhver sem les þetta
hefur ekkert að gera, þá má hinn
sami gjarnan koma og hjálpa okk-
ur,“ segir Rebba og hlær.
Draumurinn er að byggja stóra
hlöðu, með plássi fyrir öll dýrin.
Stíurnar þurfa að vera rúmgóðar,
bjartar og með aðgengi út.
„Þá gæti ég tekið á móti gestum
allt árið, og ég vildi gjarnan byggja
nokkur smáhýsi sem gæfi fólki
möguleika á að gista og vera í fleiri
daga hjá okkur og njóta þess að
umgangast dýrin. Mig langar að
bjóða upp á góða, ógleymanlega
upplifun á sama tíma og dýrin fá
fullt af umhyggju og kærleik.“
Dýragarðurinn var opnaður 15.
júní sl. og til 13. ágúst verður opið
alla daga, nema á þriðjudögum,
frá kl. 10-16. Hólar eru ca. 20 km
frá Búðardal, ekið er eftir vegi 60 í
áttina norður og beygt inn á veg
590 í átt að Fellsströnd og eru
Hólar bara einn kílómetra frá af-
leggjaranum. Laugar í Sælingsdal
eru í næsta nágrenni en þar er
Edduhótel á sumrin og ung-
mennabúðir á veturna. Góð
gönguleið er á milli Hóla og
Lauga, um 2 km. Facebook-síða
Hóla er Hólar farm minizoo in Ice-
land.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Fjölskylda Hjónin Hjalti Freyr Kristjánsson og
Rebecca Cathrine Kaad Ostenfeld ásamt börn-
um sínum þremur, þeim Kristjönu Maj, 9 ára,
Alexander Steini, 6 ára, og Matthíasi Hálfdán
11 ára. Geithafurinn Hrafn og hundarnir á Hól-
um vildu fá að vera með á myndinni.