Morgunblaðið - 21.06.2018, Side 34

Morgunblaðið - 21.06.2018, Side 34
LANDSMÓT Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Framkvæmdir sem Reykjavík- urborg og hestamannafélagið Fákur hafa ráðist í á mótssvæðinu í Víðidal vegna landsmóts hestamanna sem þar verður haldið í byrjun júlí eru varanlegar. Þær eiga að nýtast við mótahald í framtíðinni en ekki síður hestamönnum í leik og starfi og hestafyrirtækjum sem starfa í Víði- dal. Framkvæmdum við velli, reið- höll og aðstöðu fyrir áhorfendur er að ljúka og síðustu dagarnir fyrir mót verða notaðir til að koma upp tæknibúnaði og breyta félagssvæði í mótssvæði. „Við erum með besta svæði á Ís- landi til að halda landsmót. Þó ekki séu nema sex ár síðan við héldum síðasta landsmót þarf að gera ým- islegt til að gera svæðið keppn- isfært. Þetta urðu meiri fram- kvæmdir en við reiknuðum með í upphafi. Það skiptir máli fyrir okkar sem íþróttafélag að bjóða félögum okkar ávallt upp á bestu aðstæður,“ segir Hjörtur Bergstað, formaður Fáks, þegar hann er inntur eftir ástæðum þess að félagið sótti um að halda landsmót í ár. Félagið hefur áður haldið tvö landsmót, árin 2000 og 2012. Hjörtur bætir því við að hesta- mennskan snúist um samveru og slagkraftur félagsins aukist við að takast á við slíkt verkefni. Hann tekur fram að sótt hafi verið um landsmótið í samvinnu við Reykjavíkurborg og hafi borgin stutt vel við bakið á félaginu með því að ráðast í framkvæmdir á fé- lagssvæðinu. Nýr „hringleikavöllur“ Laga þarf alla velli fyrir mótið, eins og alltaf er. Hjörtur segir að samráð hafi verið haft við lykilknapa um lagfæringar á aðstöðunni. Það hafi leitt til þess að ákveðið var að gera nýja kynbótabraut og breyta upphitunarvelli. Þá hafi verið gerð mön við Hvammsvöll sem er neðan við reiðhöllina. Það geri hann mun áhugaverðari, einskonar hring- leikavöllur. Komið var að viðamiklu viðhaldi á reiðhöllinni þar sem ým- islegt lá undir skemmdum. Hjörtur segir að hún sé nú komin í gott lag. Síðustu tíu dagarnir fyrir mótið fara í það að breyta félagssvæði í mótssvæði, að sögn Áskels Heiðars Ásgeirssonar, framkvæmdastjóra mótsins. Dómpallar eru settir upp og tæknibúnaður. Áskell Heiðar segir að flókinn tæknibúnað þurfi fyrir slíkt mót. Í því eins og öðru er lögð áhersla á að tjalda ekki til einn- ar nætur heldur að búnaðurinn nýt- ist félagsmönnum áfram. Sannkallað mannamót Dagskrá mótsins er í föstum skorðum og ekki mikið svigrúm til að breyta til. Ljúka þarf sýningum og keppnum. Á síðasta landsmóti var gerð tilraun til að stytta mótið, hefja það á mánudegi og ljúka því á laugardagskvöldi. Áskell Heiðar segir að mótið verði lengt aftur. Til- gangurinn sé að gefa gestum kost á því að njóta samveru með öðrum hestamönnum á milli dagskrárliða. Þetta sé jú hestamannamót. Mótið hefst sunnudaginn 1. júlí með keppni í barna- og unglinga- flokkum. Jafnframt verður þá skemmtidagskrá fyrir börn og veit- ingastaðir opnaðir sem og mark- aður. Ákveðið hefur verið að selja ekki inn þann dag til að bjóða fjöl- skyldum keppendanna og öðrum að koma til að fylgjast með. Heimsmeistaramótið í knatt- spyrnu stendur yfir á þessum tíma og verða allir leikir sem leiknir verða á meðan landsmótið fer fram sýndir á risaskjá í stóru skemmti- tjaldi við reiðhöllina. Þetta er eftir riðlakeppnina og ekki ljóst hvort ís- lenska landsliðið verður með í keppninni. Hjörtur segist raunar hafa fulla trú á því að svo verði og á von því á að margir vilji fylgjast með leikjunum. Öll helstu úrslit verða síðasta dag mótsins, sunnudaginn 8. júlí. Er það sama fyrirkomulag og lengi var við lýði. Gítarpartí verður í skemmtitjald- inu alla daga og sveitaböll í reiðhöll- inni á föstudags- og laugardags- kvöld. Vonast eftir 10 þúsund gestum Hjörtur segir að hægt sé að taka við allt að 20 þúsund manns á móts- svæðinu. Hann segist þó verða ánægður ef rúmlega helmingur þess fjölda mæti, eða 10 til 12 þúsund manns. Fjöldinn sé ekki aðalatriðið heldur að nógu margir miðar seljist til að mótið standi undir sér og gest- ir og keppendur eigi ánægjulegar stundir í Víðidal. Framkvæmdir nýtist áfram  Undirbúningur er á lokastigi fyrir landsmót hestamanna sem haldið verður í Reykjavík  Loftað um dagskrána svo hestamenn geti notið samverunnar Morgunblaðið/Árni Sæberg Reykjavík 2012 Víðidalurinn var fullur af bílum, fólki og hestum á landsmótinu sem þar fór fram 2012. Nú hyggst Fákur endurtaka leikinn og gera betur. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hringleikavöllur Hjörtur Bergstað, formaður Fáks, og Áskell Heiðar Ás- geirsson, framkvæmdastjóri landsmóts, við Hvammsvöll. Morgunblaðið/Styrmir Kári Hópreið Félagar í hestamannafélögum á suðvesturhorni landsins komu ríð- andi á landsmót hestamanna í Reykjavík. Hátt í 200 hestamenn tóku þátt. 34 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2018 „Það er klárt. A-flokkurinn á síðasta landsmóti,“ svarar Eyrún Ýr Pálsdóttir hestamaður snaggaralega þegar hún er spurð um eft- irminnileg- asta lands- mót sitt. Hún sigraði í A-flokki gæðinga á Hrannari frá Flugumýri II á landsmótinu á Hólum árið 2016 og var fyrst kvenna til að sigra í þessari erfiðu grein. Hún segir að sigurinn hafi kannski ekki verið óvæntur. „Ég vissi að ef við ættum góðan dag yrðum við illviðráðanleg. Hest- urinn er svo öruggur að mér leið vel í keppninni,“ segir Ey- rún og bætir því við að sigurinn á íslandsmótinu í hestaíþrótt- um á árinu áður hafi verið óvæntari. „Mótið á Melgerðismelum ár- ið 1998 er fyrsta mótið sem ég man eftir. Ég man eftir Galsa frá Sauðárkróki,“ segir Eyrún Ýr en hún var þá tíu ára. Hún telur þó líklegt að hún hafi farið á eitt eða jafnvel tvö mót þar á undan enda eru foreldrar henn- ar mikið hestafólk. Þegar rætt var við Eyrúnu var hún ekki búin að ákveða þátt- töku sína í landsmótinu í Reykjavík. Hún og maður henn- ar, Teitur Árnason, eignuðust son fyrir fjórum mánuðum, Storm Inga. Hún segist vera með heldur minni umsvif í tamningunum vegna þess en sé þó ennþá að þjálfa hestana sína. Hún reiknar því alveg eins með að vera mest á hliðarlín- unni á mótinu í sumar. „Þó ég hafi náð besta árangri mínum hingað til á síðasta landsmóti er ég ekki mett. Hesta- mennskan er mitt líf, það eina sem ég kann og ég mun starfa við hana áfram,“ segir Eyrún Ýr Pálsdóttir. Sigurinn eft- irminnilegastur EYRÚN ÝR PÁLSDÓTTIR Eyrún Ýr Pálsdóttir og Hrannar frá Flugumýri II. Í raun er enginn landsmótsstaður sem uppfyllir allar þarfir og óskir sem fram komu í rannsókn Hjörnýjar Snorradóttur sem tók landsmótin fyrir í meistaranámi í stjórnun og stefnumótum við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Hún lauk náminu á árinu 2010. Af þeim stöðum sem landsmót höfðu þá verið haldin á hafði Reykjavík vinninginn. Það var þó á kostnað sveitaróm- antíkur og útilegustemmningar, eins og hún skrifar í ritgerð sinni. Þetta mat Hjörnýjar grundvallast á þeim kröf- um sem gerðar eru til landsmótsstaða, að- stæðna og þjónustu, fyrir knapa, hross og al- menna gesti. Næst á eftir Reykjavík komu Melgerðismelar í Eyjafirði vegna nálægðar við Akureyri en einnig þátttakendur hafi mesta reynslu af þeim. Þeir mæta hins vegar aðeins hluta af þeim kröfum sem þátttakendur í rannsókninni töldu að lands- mótsstaður þyrfti að uppfylla. Hólar í Hjaltadal voru einnig nefndir sem mögulegur landsmótsstaður og þar var mótið síðan haldið á árinu 2016. Þá hefur það gerst að hestamannafélagið Sprettur í Kópavogi og Garðabæ hefur byggt upp frá grunni mótssvæði á Kjóavöllum. Þar verður landsmót haldið eftir fjögur ár. Hjörný telur skorta á stefnumörkun til fram- tíðar fyrir landsmótin. Ná þurfi samstöðu meðal félagasamtaka og hagsmunaaðila í hesta- mennsku um það hvert eigi að stefna með lands- mót. Staðarval er einn liður í því. var nefndur sá möguleiki að byggja upp lands- mótssvæði á Akureyri. Fram kom í rannsókninni að Gaddstaðaflatir við Hellu voru vinsælasti mótsstaðurinn sam- kvæmt greiningu á óskum innlendra gesta. Minna máli skipti fyrir erlenda gesti hvar mótið er haldið. Næstvinsælasti staðurinn var Vind- heimamelar í Skagafirði. Hjörný dregur þá álykt- un að þessir staðir njóti vinsælda vegna þess að Reykjavík hefur vinninginn - Gaddstaðaflatir vinsælastar ENGINN LANDSMÓTSSTAÐUR UPPFYLLIR ALLAR ÞARFIR OG ÓSKIR SEM FRAM KOMA Í RANNSÓKN Haraldur Þórarinsson í Laug- ardælum fór á sitt fyrsta landsmót í Skóg- arhólum árið 1970. Hann var þá sex- tán ára og fór með föð- ur sínum og fleiri fullorðnum mönnum. Hann sótti flest mót til ársins 2014. Meira fjör var hjá honum á næstu mótum. Hann nefnir að mótið á Vindheimamelum sum- arið 1974 hafi verið eft- irminnilegt. Þar hafi verið mörg góð hross og nefnir sérstaklega Núp frá Kirkjubæ og Ör frá Ak- ureyri. Mannlífið var ekki síður skemmtilegt. „Maður skemmti sér mikið, söng og lék sér fram eftir nóttu. Brekkan var meira notuð til að sofa á þessum tíma, nema þegar sérstakir hestar voru á ferð,“ segir Haraldur. Hann keppti á landsmótunum 1982 og 1986, bæði á eigin hestum og annarra. Seinna var hann um langt árabil í stjórn- unarstörfum, meðal annars for- maður Landssambands hesta- mannafélaga, og sótti landsmótin í því hlutverki. Stundum sofið í brekkunni HARALDUR ÞÓRARINSSON Haraldur Þórarinsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.