Morgunblaðið - 21.06.2018, Page 38
BAKSVIÐ
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Rúmlega 2.000 börn hafaverið tekin af foreldrumsínum við landamæriBandaríkjanna (BNA) á
síðustu sex vikum, samkvæmt heima-
varnarráðuneyti landsins. Í apríl og
maí voru að meðaltali 45 börn tekin
af foreldrum sínum á dag eftir að Jeff
Sessions, dómsmálaráðherra Banda-
ríkjanna, kynnti „núll umburð-
arlyndi“ stefnu sína í innflytjenda-
málum í apríl. Ríkisstjórn Donalds
Trump Bandaríkjaforseta hefur þó
sagt að um litla stefnubreytingu sé að
ræða heldur sé verið að framfylgja
gildandi lögum. Stefnunni hefur verið
mótmælt víða um heim og hefur mót-
mælaganga verið boðuð við Austur-
völl kl. 17 í dag. „Við lokum ekki börn
í búrum,“ segir m.a. í yfirskrift göng-
unnar.
Mótmæli og fordæmingar gegn
stefnu Bandaríkjamanna virðast hafa
borið árangur því að Trump undirrit-
aði í gærkvöldi tilskipun sem hann
segir tryggja að fjölskyldum verði
framvegis ekki stíað í sundur. Þó
sagði hann við undirritunina að stefn-
unni um „núll umburðarlyndi“ skyldi
haldið áfram.
Lagaleg flækja innflytjenda
Hundruð þúsunda innflytjenda
frá Mið-Ameríkuríkjunum El Salva-
dor, Gvatemala og Hondúras hafa
sótt um hæli í Bandaríkjunum frá
2014, vegna gengjastríða og ofbeldis í
heimalöndunum. Árið 2016 komst
áfrýjunardómstóll í BNA (Flores
gegn Lynch) að þeirri niðurstöðu að
þó að börnum ólöglegra innflytjenda
ætti að vera sleppt úr haldi við fyrsta
tækifæri þýddi það ekki að foreldrum
þeirra þyrfti einnig að vera sleppt. Í
ræðu 7. júní sagði Sessions að Út-
lendingaeftirlit Bandaríkjanna gæti
einungis haldið fjölskyldum saman í
haldi í afar skamman tíma vegna nið-
urstöðu dómsins. Samkvæmt frétta-
stofu Reuteurs hafði ríkisstjórn
Obama áður framfylgt dómsnið-
urstöðunni með því að sleppa mæðr-
um og börnum saman úr haldi eftir
21 dag, sem er lengsti tíminn sem
halda má ólögráða innflytjendum.
Heimavarnarráðherra Bandaríkj-
anna, Kirstjen Nielsen, sagði á
sunnudaginn að það væri ekki stefna
yfirvalda að skilja börn frá foreldrum
sínum. Stefnubreyting Sessions
breytir því hins vegar að innflytj-
endur verða héðan í frá ákærðir fyrir
brot á lögum með því að koma ólög-
lega inn í landið hvort sem þeir eru að
sækja um hæli eður ei. Mál þeirra
eru þar með í höndum dóms-
málaráðneytisins en ekki heima-
varnaráðuneytisins. Yfirvöld færa
þannig innflytjendur í gæsluvarðhald
og eru börn þeirra geymd í haldi á
meðan reynt er að koma þeim fyrir
hjá ættingjum eða hjá fósturfor-
eldrum. Þessi stefna hefur fengið
mikla gagnrýni enda virðist óhjá-
kvæmilegt annað en að börn séu skil-
in frá foreldrum sínum til að fram-
fylgja henni. „Sú hugsun að ríki
sækist eftir því hindra foreldrum för
með því að láta börn sæta svona illri
meðferð er óforsvaranleg,“ sagði
Zeid Raad al-Hussein, yfirmaður
mannréttindamála hjá Sameinuðu
þjóðunum, á mánudaginn.
Dómsniðurstaðan í Flores gegn
Lynch skyldar hins vegar með eng-
um hætti yfirvöld til að skilja börn
frá fjölskyldum sínum enda hefur
ríkisstjórn Trumps hleypt um
100.000 innflytjendum úr haldi og inn
í landið á sl. 15 mánuðum, þar af
37.500 fylgdarlausum börnum og um
61.000 fjölskyldumeðlimum, sam-
kvæmt Washington Post. Bandaríkin
hafa á síðustu tuttugu árum verið
með innflytjendastefnu sem hefur
fengið heitið „gripið og sleppt“ þar
sem innflytjendum er sleppt úr haldi
og hleypt inn í landið á meðan þeir
bíða þess að mál sitt verði tekið fyrir í
sérstökum dómstóli innflytjenda-
mála. Samkvæmt New York Times
mæta afar fáir innflytjendur fyrir
dómstóla eftir að þeim er hleypt inn í
landið. Þá er stefnubreyting Trumps
í samræmi við kosningaloforð hans,
en í lok ágúst 2016 tók hann fram að
undir sinni stjórn bundinn endi á
þessa stefnu og innflytjendum haldið
þangað til þeir yrðu sendir aftur til
heimalandsins.
Stefnubreyting BNA
í innflytjendamálum
AFP
Börn í búri Við landamæri Texas-ríkis, í Rio Grande-dalnum. bíða börn í
búri eftir að hafa verið tekin frá foreldrum sínum við komuna til landsins.
38
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2018
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Með yf-irgengi-lega
harkalegri sölu-
mennsku sinni í
tengslum við
heimsmeistara-
keppnina í knattspyrnu hefur
Ríkisútvarpið vakið rækilega at-
hygli á því vandamáli sem ríkir á
íslenskum fjölmiðlamarkaði.
Ríkismiðillinn, sem er með yfir
fjóra milljarða í forskot á aðra
miðla frá skattgreiðendum, hafði
að auki vel á þriðja milljarð
króna í auglýsingatekjur í fyrra.
Reikna má með að þær tekjur
aukist verulega á þessu ári
vegna þess hvernig Rík-
isútvarpið hefur misnotað að-
stöðu sína til að þvinga auglýs-
endur inn í risasamninga og
þurrka þannig upp auglýs-
ingamarkaðinn fyrir aðra miðla í
sumar og fram á haust í sumum
tilfellum.
Útvarpsstjóri sér ekkert at-
hugavert við þessa hegðun fyr-
irtækis sem er í yfirburðastöðu á
markaði með stuðningi ríkis-
valdsins. Hann heldur því fram
að engin lög hafi verið brotin.
Sérkennilegt væri ef það reynd-
ist rétt og segði þá sína sögu um
lagaumhverfið. En þó má minna
á að í landinu eru samkeppnis-
lög, auk þess sem í lögum um
Ríkisútvarpið er talað um að það
skuli gæta „hófsemi í birtingu“
auglýsinga auk frekari ákvæða
til að reyna að hemja þennan rík-
isstyrkta risa á markaðnum.
Vandséð er að þær aðferðir sem
beitt hefur verið við sölu auglýs-
inga, sem væntanlega er for-
senda birtingar þeirra, verði
flokkaðar undir hófsemi.
Á meðan Ríkisútvarpið geng-
ur fram með þessum hætti berj-
ast frjálsir miðlar í bökkum og
hafa að auki mátt þola skatta-
hækkanir á liðnum árum, eins og
Óli Björn Kárason alþingis-
maður benti á í ágætri grein hér í
blaðinu í gær.
Þá keppa þeir
við erlendar leit-
arvélar og sam-
félagsmiðla sem
búa ekki við sama
skattaumhverfi og
íslenskir miðlar.
Enginn veit hve stór hluti ís-
lenska auglýsingamarkaðarins
fer í gegnum þessa erlendu að-
ila en hann er augljóslega um-
talsverður.
Ríkisútvarpið er eins og fíll í
postulínsbúð hins viðkvæma ís-
lenska fjölmiðlamarkaðar. Það
skaðar aðra ljósvakamiðla
verulega, einkum sjónvarp, en
allir fjölmiðlar finna vitaskuld
fyrir því þegar fíllinn ólmast.
Stjórnmálamenn hafa ekki
þorað að styggja þennan risa af
ótta við hefndaraðgerðir. Í ljósi
reynslunnar er sá ótti skiljan-
legur og þess vegna eru litlar
líkur á að tekið verði á Ríkis-
útvarpinu eins og æskilegt
væri. Og meðal annars þess
vegna er hætta á ferðum fyrir
aðra íslenska miðla og líkur á
að þeir veikist verulega á næst-
unni.
Stjórnvöld geta þó gert ann-
að leggi þau ekki í aðgerðir sem
ekki eru þóknanlegar Efsta-
leitinu. Þau geta gert það sem
rætt hefur verið lengi og það er
að laga rekstrarumhverfi
frjálsu fjölmiðlanna. Í því sam-
bandi er til dæmis augljós og
einföld aðgerð að fella niður
virðisaukaskatt af áskriftum
líkt og gert hefur verið víða um
lönd. Það er nefnilega athygl-
isvert að erlendis, þrátt fyrir
að málsvæðin séu mun stærri,
hafa stjórnvöld gripið til marg-
víslegra aðgerða til að tryggja
að í boði séu öflugir fjölmiðlar.
Þetta er meðal annars gert til
að vega á móti því tjóni sem
frjálsir fjölmiðlar verða fyrir
vegna ríkisfjölmiðla. Það er
ekki eftir neinu að bíða að
fylgja slíku fordæmi hér á
landi.
Ríkisútvarpið hefur
brugðið ljósi á
nauðsyn breytinga á
umhverfi fjölmiðla}
Fíllinn í Efstaleitinu
Um 170 mannshafa látist í
Níkaragva á síðustu
vikum í mótmælum
gegn ríkisstjórn
Daniels Ortega,
fyrrverandi leiðtoga sandínista.
Ortega hefur nú stýrt Ník-
aragva í rúman áratug og hefur
á þeim tíma innleitt ýmsar sósí-
alískar umbreytingar með fyrir-
sjáanlegum afleiðingum.
Mótmælaaldan hófst þegar
mótmæli gegn lækkun ellilíf-
eyris voru leyst upp með fanta-
legu ofbeldi, en Ortega hefur,
líkt og chavistarnir í Venesúela,
komið sér upp vopnuðum hópum
svartklæddra huldumanna til að
lumbra á pólitískum andstæð-
ingum. Að þessu sinni dugði of-
beldið þó ekki til þess að kveða
niður óánægju al-
mennings, en varð
sem olía á eldinn.
Krafa mótmæl-
enda er að Ortega
víki sem fyrst, en
hann er ekki líklegur til þess og
hefur látið breyta stjórnarskrá
landsins svo að hann geti setið
sem forseti eins lengi og honum
þóknast.
Allar tilraunir til þess að
koma á ró á ný hafa farið út um
þúfur. Nú síðast gafst kaþólska
kirkjan í Níkaragva upp á sátta-
ferli og samtök Ameríkuríkja
hafa einnig reynt að skakka leik-
inn en án árangurs. Það stefnir
því allt í ofbeldisfullt uppgjör við
stjórnarstefnu Daniels Ortega
og líklegt að ástandið eigi eftir
að versna enn.
Sósíalistinn Ortega
bælir niður andóf
af fullri hörku}
Níkaragva á niðurleið Þ
að hefur mikið verið fjallað um sam-
starf eða útilokun á samstarfi á
undanförnum mánuðum og árum
jafnvel. Píratar útilokuðu samstarf
við ákveðna flokka fyrir nokkrar
undanfarnar kosningar og margir túlkuðu það á
mjög ómálefnalegan hátt. Til þess að gera út um
það mál í eitt skipti fyrir öll þá þýðir útilokun á
samstarfi hjá Pírötum útilokun á samstarfi um
völd, aldrei útilokun á málefnalegu samstarfi.
Varúð, þessi pistill inniheldur margar tölur.
Í þessu, sem og öðru, þá eru orð eitt og at-
hafnir annað. Þess vegna ætla ég að sýna fram á
það með gögnum hvernig Píratar störfuðu mál-
efnalega með öðrum flokkum á síðasta þingi. Pí-
ratar (P) voru meðflutningsmenn á 37,5% mála
Samfylkingarinnar (S), 35,7% mála Framsóknar
(B), 50% mála Vinstri grænna, 0% mála Mið-
flokks (M), 14,3% mála Flokks fólksins (FF), 79% mála Við-
reisnar (C) og 41,7% mála Sjálfstæðisflokksins (D). Þetta
eru málefnalegar staðreyndir.
Til viðbótar má auðvitað bæta við að þó fólk setji sig ekki
sem meðflutningsmenn þá getur fólk verið sammála um
málið að einhverju leyti. Þær tölur myndu þá auka ofan-
greint hlutfall eitthvað en tölur um þann stuðning liggja
ekki fyrir þannig að það er ekkert hægt að fullyrða um það.
Enn fremur þá bjóða flokkar ekki alltaf upp á meðflutning á
málunum sínum. Það gerir það að verkum að samstarfs-
hlutfallið er mögulega enn hærra en þær tölur sem liggja
fyrir segja til um. Þegar allt kemur til alls samt, þá er þetta
málefnalegt samstarf sem er ekki hægt að horfa
fram hjá að sé til staðar.
Það er fróðlegt að skoða hverjir styðja oftast
og sjaldnast mál annarra flokka. P styður til
dæmis oftast mál S á meðan B, V og D styðja
ekkert mál S. V, P og FF styðja oftast (35,7%)
mál B en M styður ekkert mál F. S, B og P
styðja mál V oftast (50%) en M sjaldnast
(36,4%). S styður mál M oftast (23%) en S, B, V,
P og C styðja engin mál þeirra. S, FF og C
styðja oftast (23-26%) mál P en B og D sjaldn-
ast (4,8%). M og B styðja mál S oftast (66,7%)
en C styður fæst (16,7%). M styður flest (42,9%)
mál FF en S, B, V, P og C styðja fæst (14,3%).
C fær oftast stuðning frá P (79%) og sjaldnast
frá M (5,3%).
Meðalstuðningur við hvern flokk er líka
áhugaverður. S er með 8% stuðning að með-
altali við sín mál. B er með 20,4% stuðning. V fær 44,8%, M
fær 4,4%, P fær 16%, D fær 48,8%, FF fær 20,4% og C fær
39,1%. Það skiptir máli hversu oft flokkar biðja um stuðn-
ing, hverja þeir biðja um stuðning og hvort það sé stuðn-
ingur í öðru formi en að ljá meðflutning á hverju máli fyrir
sig. Þær upplýsingar eru ekki aðgengilegar en það þarf
samt að hafa þann fyrirvara á þessum tölum.
Eins og sést þá er ansi mikið málefnasamstarf á milli
flokka á þingi. Það getur gerst óháð því hvaða flokkar taka
sér völd. bjornlevi@althingi.is
Björn Leví
Gunnarsson
Pistill
Samstarf um málefni eða völd
Höfundur er þingmaður Pírata.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
„Þessi framkvæmd sem hefur verið við landamæra-
eftirlit í Bandaríkjunum að undanförnu, þar sem börn
eru skilin frá foreldrum sínum, er ómannúðleg og
samræmist ekki þeim gildum sem við aðhyllumst,“
segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.
„Réttindi barna og velferð skulu ávallt höfð í fyr-
irrúmi. Það er krafa sem er í gildi stjórnvalda allra
ríkja, ekki síst réttarríkja sem byggjast á þessum
grunngildum sem við aðhyllumst; lýðræði, frelsi og
mannréttindum.“ Guðlaugur er nýkominn af fundi í
Svíþjóð með öðrum utanríkisráðherrum þar sem þeir
ræddu þetta óformlega og sagði hann menn hafa
áhyggjur af þessu. „Við eigum í reglulegum samræðum við bandarísk
stjórnvöld og munum taka málið upp á þeim vettvangi.“
AFSTAÐA ÍSLANDS
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Ómannúðleg framkvæmd