Morgunblaðið - 21.06.2018, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2018
Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is
Frábær smurefni sem einangra, verja
og koma í veg fyrir tæringu eins og
verkfæra o rafma nsvara.
100% eins árs RAKAVÖRN
Leitar þú að traustu
Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi
Sími 587 1400 |www. motorstilling.is
ALHLIÐA BÍLAVIÐGERÐIR < HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
Lífslíkur bílsins margfaldast
ef hugað er reglulega
að smurningu.ENGAR
tímapantanir
MÓTORSTILLING
fylgir fyrirmælum
bílaframleiðanda um
skipti á olíum og síum.
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
„Við lítum á okkur sem leiðtoga hvað
varðar sjálfbæra nýtingu nátt-
úruauðlinda, þar sem við ofnýtum
ekki auðlindina, berum gífurlega
virðingu fyrir dýrunum og veiðum
aðeins mjög lítinn hluta veiðistofns-
ins,“ segir Högni í sérstöku viðtali
við fréttaveitu AFP um hvalveiðar
Færeyinga.
Grindadrápin svonefndu, þar sem
grindhvölum er smalað inn á grynn-
ingar og upp í fjöru áður en þeir eru
skornir og drepnir í fjöruborðinu,
hafa um nokkurt skeið þótt ógeð-
felld, grimm og ómannúðleg að áliti
dýraverndunarsinna. Þvertekur ráð-
herrann fyrir að sú sé raunin.
Tölfræði 450 ár aftur í tímann
„Grindhvalirnir eru hluti af lifandi
auðlindum við strendur Færeyja.
Við byggjum alla tilvist okkar, og
nútímavæðingu þjóðfélagsins í átt að
velferðarsamfélagi, á sjálfbærri nýt-
ingu lifandi auðlinda hafsins,“ segir
Högni.
„Grindhvalirnir hafa verið hluti af
því í meira en þúsund ár. Í raun og
veru lítum við á löggjöf okkar og
framkvæmd veiðanna sem þá sjálf-
bærustu nýtingu lifandi auðlinda
hafsins sem kostur er á. Við höfum
tölfræði sem nær 450 ár aftur í tím-
ann, þar sem sjá má að aldrei hefur
verið veitt meira en sem nemur einu
prósenti af grindhvalastofninum í
Norður-Atlantshafi.“
Meiri innflutningur ella
„Ef við nýttum ekki hvalina þyrft-
um við að flytja inn kýr, nautakjöt,
kjúkling og svo framvegis, sem að
mínu mati er framleitt við verstu
mögulegu aðstæður fyrir dýrin og
ekki heldur á sjálfbæran hátt, held-
ur með hætti sem mengar umhverfi
okkar og hefur leitt til eyðileggingar
á næstum hverri einustu villtu og lif-
andi auðlind sem finnst í veröldinni.“
Blaðamaður AFP gengur þá hart
að Högna og spyr hvort hvalveiðar
séu í raun góðar fyrir jörðina.
„Innflutningur á kjöti myndi
stækka kolefnisfótspor okkar. Er
betra að kaupa kjöt úr iðnaði kjúkl-
inga- eða kúaræktunar? Ég skil ekki
sjónarmið sumra þessara dýra-
verndunarsamtaka og -stofnana,
sem hafa þó að mínu mati mik-
ilvægan tilgang þar sem þau beina
athygli sinni að umhverfislegri fram-
tíð heimsins. En þessar veiðar eru
dæmi um bestu og umhverfisvæn-
ustu nýtingu lifandi auðlinda hafsins
og, að mínu mati, einnig þær mest
skjalfestu og virtustu. “
Færeyingar hafa ekki
áhyggjur af ímyndinni
Högni Höydal, sjávarútvegsráðherra Færeyja,
segir grindhvalaveiðar þjóðarinnar umhverfis-
vænar og gerðar með virðingu fyrir dýrunum.
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
„Ástandið er einkum erfitt hjá þeim
sem eru ekki með aflaheimildir og
þurfa því að kaupa fisk á markaði.
Þar gengur erfiðlega, bæði út af erf-
iðara aðgengi að aflaheimildunum og
einnig vegna þess að laun hafa hækk-
að umtalsvert á síðustu árum. Þá
þurfa menn að bregðast við, ýmist
með frekari tæknivæðingu eða sam-
einingu fyrirtækja, nema hvort
tveggja sé,“ segir Gunnar Gíslason,
viðskiptastjóri hjá Arion banka, sem
annast fyrirtæki í sjávarútvegi.
„Víða reyna menn nú að finna leið-
ir til hagræðingar, þar sem í al-
þjóðlegri grein eins og sjávarútvegi
reynist fyrirtækjum erfitt að koma
hækkunum á rekstrarkostnaði út í
söluverð á mörkuðum,“ segir Gunnar
og bendir á hækkandi launakostnað
hérlendis sem dæmi um áhrifavald.
„Vinnulaunin eru töluvert dýrari í
fiskvinnslu núna en undanfarin ár, og
menn vita það.“ Matvælavinnsla geti
í auknum mæli færst héðan af landi
og til Póllands, þar sem laun þar-
lends verkamanns séu á við tæplega
þriðjung launa íslensks verkamanns
fyrir sama starf. „Vinnulaunin, hrá-
efnið og flutningur afurðanna; þetta
er allt mun ódýrara þar en hér.“
Almennt segir hann að mjög þungt
sé yfir greininni. Jákvæð þróun á
mörkuðum með aukaafurðir síðustu
mánuði hafi þó komið ýmsum fyr-
irtækjum til aðstoðar.
„Markaðir eins og Nígería hafa
lagast mjög hratt undanfarna mán-
uði. Það selst allt sem þangað fer og
manni heyrist sem verð hafi hækkað,
sem eru góðar fréttir. Það var mikill
skellur fyrir marga þegar sá mark-
aður lokaðist eiginlega að öllu leyti
fyrir um einu og hálfu ári. En hækk-
andi launa- og rekstrarkostnaður ét-
ur það ef til vill upp.“
Mikil hreyfing verði í haust
Gunnar segir að fólk í atvinnu-
greininni fagni vitaskuld þeirri
ákvörðun sjávarútvegsráðherra að
fylgja ráðgjöf Hafrannsóknastofn-
unar og hækka aflaheimildir í þorski,
ýsu og ufsa meðal annars.
„Það er þá meira magn af fiski.
Þetta selst allt. Aflaheimildir ganga
hins vegar kaupum og sölum hjá
þessum litlu og meðalstóru útgerð-
um. Veiðigjöldin koma virkilega illa
við þær nú þegar kreppir að, enda
urðu margir fyrir vonbrigðum þegar
Alþingi neitaði að samþykkja frum-
varp um endurútreikning veiðigjald-
anna fyrr í mánuðinum.“
Býst hann við því að mikil hreyfing
verði á aflaheimildum í haust vegna
þessa. „Maður velti því fyrir sér á
síðustu Sjávarútvegssýningunni,
hvort að á næstu sýningu yrðu mun
færri fyrirtæki vegna samþjöpp-
unar og sölu á aflaheimildum frá
minni útgerðum til þeirra sem
stærri eru. Þetta verður þungt ár í
rekstri fram undan fyrir marga,
nema menn ráði við að fjárfesta enn
meira í tækninni, því það er það sem
gildir. Annars verða menn bara
undir.“
Agnarsmá í stóra samhenginu
Veiðigjöldin hafi þannig þau
áhrif, auk hækkandi rekstrarkostn-
aðar, að samþjöppun sé og verði
mun meiri í atvinnugreininni en ella.
„Þessar meðalstóru útgerðir vilja
bæta við sig kvóta, það er það sem
maður heyrir; þær vilja nýta húsin
sín og tækin betur. Þær munu þá lík-
ast til fá kvóta frá þeim minnstu. Og
þegar veiðigjöldin skella á mönnum
sem eru kannski aðeins með hundrað
tonna kvóta, er þá von að þeir spyrji
sig hvort ekki sé best að selja og
hætta þessu streði? Við erum líka svo
agnarsmá í stóra samhenginu, þegar
litið er til erlendra markaða, og það
gerir það að verkum að menn verða
að vera vel vakandi ef ekki á að fara
illa. Mín tilfinning er því sú að út-
gerðum og fiskvinnslum muni ein-
ungis fækka þegar fram líða stundir,
og að þær stækki um leið.“
Kreppir að hjá
smærri fyrirtækjum
Lítil og meðalstór fyrirtæki í sjávarútvegi glíma við erfitt rekstrarumhverfi,
ekki síst eftir að ekki rættist úr frumvarpi atvinnunefndar um endurútreikning
veiðigjalda. Þetta segir Gunnar Gíslason, viðskiptastjóri hjá Arion banka.
Morgunblaðið/Golli
Á bryggju „Þessar meðalstóru útgerðir vilja bæta við sig kvóta, það er það
sem maður heyrir; þær vilja nýta húsin sín og tækin betur,“ segir Gunnar.
„Miðað við verð á kvóta undanfarin misseri held ég að þessar minnstu út-
gerðir nái alveg að bjarga sér með sölu aflaheimilda,“ segir Gunnar,
spurður hvort útlit sé fyrir að margar útgerðir stefni í gjaldþrot á næstu
mánuðum. „Ekki nema allir ætli sér að selja kvótann sinn á sama tíma.“
Hann segir það ljóst að ekki muni allir ráða við að greiða yfirvofandi
veiðigjöld. „Hvort sem þau eru raunhæf eða ekki, það er annar kafli út af
fyrir sig. En eins og staðan er í dag þá eru þau þarna og þá verða menn að
vinna með þeim, á meðan þeim er ekki breytt,“ segir Gunnar.
„Vonandi finnst lausn á þeim sem fyrst, þetta er auðvitað stórskrýtið
að reyna að reka sjávarútvegsfyrirtæki á Íslandi, þú veist aldrei hvað
stjórnvöld ætla að gera næst. Það er ekki ýkja gott rekstrarumhverfi en
það jákvæða er að íslensku fiskistofnarnir virðast vera í góðu ástandi og
fiskurinn er að seljast.“
„Veist aldrei hvað
stjórnvöld gera næst“
STÓRSKRÝTIÐ AÐ REKA SJÁVARÚTVEGSFYRIRTÆKI Á ÍSLANDI