Morgunblaðið - 21.06.2018, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 21.06.2018, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2018 Töluverður tungubrjótur en þykir afskaplega ljúft í munni enda ferskt pasta tíu sinnum betra að sögn Karenar Jónsdóttur, eiganda Kaju sem setti á dög- unum ferskt lífrænt pasta á markað. Ferskt pasta Svona lítur pastað út í umbúðunum. Askjan er úr pappa en lagt var upp með að hafa umbúðirnar eins umhverfisvænar og kostur er. Morgunblaðið/Hari Frumkvöðull Karen Jónsdóttir hjá Kaja Organic og Matbúri Kaju á Akranesi. Vel heppnuð Matarbúr Kaju á Akranesi er virkilega skemmtileg heim að sækja. Lífrænt Gott úrval er af hollri og góðri matvöru í Matbúri Kaju. Þóra Sigurðardóttir thora@mbl.is Uppruna pastans má rekja til Hreðarvatnsskála sem framleiddi Norðurárdalspasta. Í nóvember síð- astliðnum ákvað Karen að kaupa framleiðsluna og hefja sína eigin. Karen hefur undanfarin ár rekið verslunina Matarbúr Kaju, innflutn- ingsfyrirtækið Kaja Organic auk kaffihússins Kaffi Kaja. Þetta var því að öllu leyti rökrétt skref hjá Karen sem er ötull talsmaður holls mataræðis og minni matarsóunar. Tíu sinnum betra „Eftir kennslu í pastagerð komst ég fljótlega að því að ferskt pasta er tíu sinnum betra en þurrkað. Hófst þá afar skemmtilegt þróun- arverkefni þar sem markmiðið var að framleiða ferskt pasta í neyt- endaumbúðum,“ segir Karen að- spurð um sín fyrstu skref í pasta- gerð. „Ég veit ekki til þess að það hafi verið gert hér á landi áður en þetta er alla vega í fyrsta skipti sem líf- rænt pasta er framleitt hérlendis.“ „Ég sótti um styrk frá Sókn- aráætlun Vesturlands til þróunar og þegar það var í höfn var hafist handa. Fljótlega kom í ljós að breyta þyrfti uppskriftinni lítillega og var það gert í samvinnu við veit- ingastaðinn Galito en hann býður upp á pastarétti úr lífrænu pasta frá okkur.“ Í upphafi framleiddi Karen past- að eingöngu fyrir veitingastaði en fór svo í kjölfarið að velta því fyrir sér hvernig henni tækist að koma fersku pastanu í verslanir. „Stærsta áskorunin var svo pökkunin en vélbúnaðurinn til pökkunar kostar tugi miljóna og hefur afkastagetu sem er langt um- fram okkar litla markað. Það þurfti því að hugsa í lausnum og að lokum ákváðum við að velja vakúm- pökkun sem gekk upp.“ Næsta skref var svo að finna réttu umbúðirnar sem gekk fremur illa að sögn Karenar. „Markmiðið var að hafa þær umhverfisvænar og eftir mikla leit fundum við loks ásættanlega lausn sem fólst í því að nota pappabakka í stað plasts en vakúmpokinn sjálfur er úr plasti þar sem engin önnur lausn er enn til.“ Ekkert fer til spillis „Samkvæmt úttekt hjá Mat- vælastofnun endist ferska pastað í þrjár vikur. Ég dreifi því í verslanir en tek það sem er óselt til baka eft- ir tvær vikur og þurrka. Með því móti fer ekkert til spillis og mat- arsóun er í algjöru lágmarki,“ segir Karen og ljóst er að framtíðin er björt enda ferskt lífrænt pasta af- skaplega gott á bragðið svo ekki sé fastar að orði kveðið. Í dag fæst pastað í Hagkaupum, Melabúðinni, Fjarðarkaupum, Bændur í bænum, Heilsuhúsinu Laugavegi og Kringlunni og í Mat- arbúri Kaju á Akranesi. Ferskt íslenskt lífrænt pasta JÓN BERGSSON EHF RAFMAGNSPOTTAR Við seljum þér betri heilsu og fleiri góðar stundir og þú færð heitan pott með í kaupunum Kletthálsi 15 | 110 Reykjavík | Sími 588 8881 | www.jonbergsson.is | jon@jonbergsson.is 40 ÁRA reynsla
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.