Morgunblaðið - 21.06.2018, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 21.06.2018, Qupperneq 52
52 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2018 ✝ Jónatan Arn-órsson fæddist á Ísafirði 23. júní 1932. Hann lést á hjúkrunarheim- ilinu Skógarbæ 11. júní 2018. Foreldrar hans voru Kristjana Gísladóttir, f. 4.7. 1900, d. 13.10. 1970, og Arnór Magnússon, f. 17.10. 1897, d. 12.2. 1986, skip- stjóri á Ísafirði. Systkini Jón- atans eru: Þorlákur, f. 1923, d. 2016; Jóhanna, f. 1925, d. 2017; Bjarni, f. 1926, d. 1927; Hilmar, f. 1928, d. 2015; Magnús, f. 1929; Júlíus, f. 1936; Stella, f. 1937, d. 2000. Jónatan kvæntist árið 1955 Þóru Benediktsdóttur, f. 25.10. 1931, frá Hnífsdal. Foreldrar hennar voru Þórunn Pálína f. 1979, Arna Lind, f. 1984, Þóra Marý, f. 1989. 4) Þóra Jóna, f. 1961, sambýlismaður hennar er Erlingur Jón Val- garðsson, f. 1961. Börn þeirra: Jónatan, f. 1990, Kolbrún, f. 1991, faðir þeirra er Vignir Vignisson, f. 1961, d. 2000. Börn Erlings: Sif, f. 1983, Al- marr, f. 1985, Styrmir, f. 1988. 5) Rúnar Már Jónatansson, f. 1966, kvæntur Maríu Níels- dóttur, f. 1966. Börn Þeirra: Magna Rún, f. 1991, Katla, f. 1996, móðir þeirra er Marta Hlín Magnadóttir, f. 1970. Börn Maríu eru Erna Guðríður, f. 1985, Anna Margrét, f. 1997, faðir þeirra er Benedikt Ein- arsson, f. 1963. Jónatan bjó á Ísafirði allan sinn starfsaldur, starfaði þar við sjómennsku, verkstjórn o.fl. og var útsölustjóri ÁTVR á Ísa- firði lengi vel. Hann var virkur í félagsmálum, var stofnfélagi í Kiwanisklúbbnum Básum, var í Rótarýklúbbi Ísafjarðar og var m.a. í stjórn ÍBÍ. Útför Jónatans fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 21. júní 2018, og hefst athöfnin kl. 13. Borgey Guðjóns- dóttir, f. 5.10. 1900, d. 10.2. 1992 og Benedikt Hall- dórsson, f. 19.5. 1904, d. 2.9. 1980. Börn Jónatans og Þóru eru: 1) Krist- jana, f. 1953, gift Guðmundi Bjarna- syni, f. 1952, Börn þeirra: Óttar, f. 1974, Þóra Dögg, f. 1976, Bjarni Freyr, f. 1982 og Víðir Örn, f. 1990. 2) Valur Benedikt, f. 1955, kvæntur Kristínu B. Aðalsteinsdóttur, f. 1972. Börn þeirra: Hlynur, f. 1986, Benedikt, f. 1988, móðir þeirra er Sigríður Brynjúlfs- dóttir f. 1956, Hrafnhildur Vala, f. 2003, Gísli Hrafn, f. 2006. 3) Arnór, f. 1957, kvæntur Kristjönu Ósk Hauksdóttur, f. 1960. Börn þeirra: Esther Ósk, Það eru margar minningar sem koma upp í hugann þegar ég hugsa um pabba. Pabba sem ég er nú að skrifa kveðjuorð um. Hann var góður faðir og ég leit upp til hans. Sterkustu og eft- irminnilegustu minningarnar eru sennilega þegar ég vann með honum í Áfengisversluninni heima á Ísafirði í tvö sumur. Ríkið var það kallað og fyrst vann ég í gamla Ríkinu og síðar í nýja Ríkinu sem heitir Vínbúð- in. Þar var pabbi útibússtjóri. Pabbi var frábær yfirmaður og þar urðum við góðir vinir. Oftar en ekki hjóluðum við saman úr firðinum og tókum sundsprett í Sundhöllinni áður en vinna hófst. Komum svo við í Gamla og sóttum okkur ylvolgt bakk- elsi með morgunkaffinu. Þetta voru gæðastundir. Pabbi hugs- aði nefnilega vel um heilsuna og þá sérstaklega að vera í kjör- þyngd og hreyfa sig reglulega. Þegar við vorum að vinna saman fannst mér pínu óþægilegt að kalla neðan úr kjallara í vínbúð- inni: „Pabbi!“ þannig að ég fór að kalla hann Jónatan í vinnunni við misgóð viðbrögð hans. Pabbi var alltaf glaður maður og sérstaklega þegar hann hætti á sjónum. Ég held að sjómanns- lífið hafi ekki átt vel við pabba. Hann kveið oft fyrir að fara á sjóinn og maður skynjaði það svo vel að hann vildi miklu frek- ar vera í landi þar sem hann var nær fjölskyldunni sem hann unni heitt. Pabbi var mikill barnakarl og naut þess að vera með okkur systkinunum og barnabörnunum þegar þau komu eitt af öðru. Pabbi og mamma komu reglulega að heimsækja mig og fjölskyldu mína þau tíu ár sem ég bjó í Sví- þjóð. Þar leið þeim sérstaklega vel. Þau fóru með okkur til Finnlands og Álandseyja og ferðuðust með okkur um skemmtigarða og strendur sem lágu nálægt heimili okkar. Pabbi var sundmaður mikill og þurfti alltaf að máta sig við öll vötn sem við vorum nálægt og mátti ekki vera minni en aðrir. Synti í ísköldum vötnum bakk- anna á milli með mömmu áhyggjufulla og hrópandi á hann að snúa nú við. Keppnisskapið var aldrei langt undan hjá pabba. Pabbi er í raun og veru löngu horfinn yfir í græna land- ið þar sem hann glímdi við alz- heimers-sjúkdóminn í mörg ár. En nú er komið að kveðjustund. Mikið sem ég á eftir að sakna elsku pabba sem alltaf reyndist mér vel og sem ég elskaði til hinstu stundar. Þóra Jóna Jónatansdóttir. Okkur systkinin langar til að minnast pabba okkar í fáeinum orðum. Þegar við horfum til baka sjáum við lífsglaðan, hraustan keppnismann, góðan föður og barngóðan afa. Jónatan var Ísfirðingur í báðar ættir og bjó þar lengstan hluta ævinnar. Hann og ólst upp í Smiðjugötu 1 í stórum systkinahópi og þar hefur eflaust verið þröngt í búi oft á tíðum. Pabbi var góðum gáfum gæddur og fór í barna- skóla og síðar gagnfræðaskóla á Ísafirði sem var ekki sjálfgefið á þeim tíma. Hann vann síðan við ýmis og fjölbreytt störf sem ungur maður, á bæjarskrifstof- unni þar sem hann þótti af- bragðsvélritari, á Keflavíkur- flugvelli fyrir Kanann, síðan var hann á síld einhverjar vertíðir, vann í niðursuðuverksmiðju og varð þar síðar verkstjóri, keyrði leigubíl á móti Júlla bróður sín- um í aukavinnu. Þeir bræður voru mjög samrýmdir og góðir félagar, fóru saman í útgerð þar sem þeir veiddu rækju á vet- urna en voru á skaki á sumrin. Sjómennskan heillaði þó ekkert sérstaklega og undu þeir sér betur í landi og eftir sjómennsk- una fór Jónatan fljótlega að starfa hjá ÁTVR þar sem hann varð síðar útsölustjóri og vann þar til 67 ára aldurs. Pabbi kynntist mömmu um tvítugt og var farið á fullt að hlaða niður börnum, þau komu 1953, 1955, 1957, 1961 og 1966. Var þá þröng á þingi í lítilli íbúð, fyrst í Túngötu, þá í Grundargötu og síðan á Hlíðarvegi þar sem geymslur bæði á háalofti og í kjallara voru nýttar undir elstu börnin. Ýmislegt var gert til að drýgja tekjurnar m.a. ræktaðar kartöflur, tekið slátur, farið til berja, hnýttir taumar og spyrðubönd, allt til að létta und- ir með heimilinu því marga munna þurfti að metta. Hann hafði gaman af berjatínslu og þar kom keppnisskapið fram í því að hann var alltaf fyrstur að fylla. Þau fluttu síðan í einbýlis- hús í Brautarholti 1979 þar sem þau undu hag sínum vel og eftir starfslok fluttu þau í borgina, fljótlega uppúr því greindist pabbi með alzheimerssjúk- dóminn og árin eftir vinnu sem áttu að vera svo skemmtileg urðu nokkuð bitur fyrir þau hjónin en pabba og mömmu þótti einstaklega gaman að ferð- ast og hugðust þau nýta tímann m.a. til þess. Þau fóru saman í sína fyrstu utanlandsferð, með Gullfossi 1972, þá komust þau á bragðið og ferðuðust víða um heiminn allt þar til pabbi veikt- ist. Keppnisskap er minning sem poppar oft upp þegar pabba er minnst, hann hafði mikinn áhuga á íþróttum og var efnileg- ur á sínum yngri árum, m.a. gekk hann á höndum niður tröppurnar á Alþýðuhúsinu á Ísafirði sem eru ekki fáar. Hann var góður sundmaður, fylgdist vel með knattspyrnu á Ísafirði, fylgdist með börnum sínum keppa á skíðum og stundaði sjálfur skíðagöngu hin síðari ár. Hann var líkamlega hraustur og gat tekið armbeygjur fram á áttræðisaldur og alltaf vildi hann búa til keppni til að gera hlutina meira spennandi. Takk fyrir samfylgdina, elsku pabbi. Þú varst alltaf til staðar fyrir okkur. Barst hag fjölskyld- unnar fyrir brjósti alla tíð. Nú ertu kominn í sumarlandið og laus úr hlekkjum alzheimers- sjúkdómsins. Guð geymi þig. Kristjana (Kiddý), Valur, Arnór, Þóra Jóna og Rúnar. Það var kalt og dimmt desem- berkvöld og nýskollinn á skaf- renningur. Ég var ekki alveg viss þegar ég stóð fyrir utan Ás- garðinn, hvort ég nötraði af kulda eða stressi yfir að hitta Þóru og Jónatan í fyrsta sinn. Ótti minn reyndist ástæðulaus. Þegar inn var komið tók Jón- atan á móti mér, skælbrosandi, brosi sem alltaf náði til augn- anna. „Komdu sæl, esska“ og svo fékk ég faðmlag. Svona voru fyrstu kynni mín af tengdaföður mínum sem varð einnig vinur minn. Ef ég ætti að lýsa tengdaföð- ur mínum í einu orði mundi ég nota orðið keppnismaður. Hann var fæddur hraustmenni og hafði unun af að keppa í svo að segja öllu. Mér er alltaf minn- isstætt þegar ég fór á fyrsta ættarmótið hjá fjölskyldunni en þá skyldi sko keppt! Ættarmót- ið var haldið í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp og var sund ein þeirra greina sem átti að keppa í. Jónatan sem var duglegur að stunda Breiðholtslaugina með Þóru sinni var spenntur fyrir þessari grein og ákveðinn í að hans leggur mundi vinna. Laug- in reyndist hins vegar vera 40° heit en það var nú ekki til að stoppa minn mann, það var bara keppt þvert í stað langsum! Jónatan var frábær dansari en ég aftur á móti með þeim allra slakari – nema þegar ég dansaði við hann. Þá leið mér sem mér væru samkvæmisdans- ar í blóð bornir svo snilldarlega stjórnaði hann mér. Sú tilfinn- ing hvarf hins vegar eins og dögg fyrir sólu þegar ég dansaði við annan en hann og ég flæktist fyrir öllum. Jónatani og Þóru þótti svaka- lega gaman að horfa á hand- bolta og þá sérstaklega lands- leiki. Það var jafnan fjör í Ásgarðinum þegar þau horfðu á leiki. Þau „áttu“ nefnilega hvort sinn strák í liðinu og auðvitað var alltaf keppni þeirra á milli hvor strákurinn mundi nú skora fleiri mörk. Það var sárt að horfa á tengdaföður minn hverfa inn í heim alzheimers-sjúkdómsins. Það sem gerði hann að þeirri persónu sem hann var, þvarr smátt og smátt og við fengum ekkert að gert. Ég sat oft hjá honum og sagði sögur af öllu mögulegu eða spilaði fyrir hann tónlist. Best af öllu var samt að fá frá honum bros. Það gladdi mig alltaf jafn mikið. Ég man eftir síðasta skiptinu sem ég fékk brosið. Þá var ég einmitt að segja honum frá „hans manni“ í landsliðinu og rifja upp þegar við horfðum saman á leik sem Ísland vann og „hans maður“ var bestur. Þá brosti tengda- pabbi minn. Margs er að minnast og margt ber að þakka og í gegnum hugann undanfarna daga hefur flotið hafsjór af minningum. Minningum um hraustmenni sem bauð sjúkdómnum alzheim- er birginn og kom ítrekað öllum á óvart. Í mínum huga verður Jónatan alltaf sigurvegari. Ég votta Þóru minni og fjölskyld- unni allri mína dýpstu samúð um leið og ég þakka Jónatani samfylgdina og bið fyrir góðar kveðjur í Sumarlandið. Kristín B. Aðalsteinsdóttir. Aðfaranótt mánudagsins 11. júní lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ elsku afi okkar og langafi, Jónatan Arnórsson, eft- ir margra ára baráttu við hinn illvíga sjúkdóm Alzheimer. Eftir stendur minning um góðan og hlýjan mann, traustan og tryggan sem bar hag fjöl- skyldu sinnar fyrir brjósti og elskaði að vera í kringum barna- börnin sem og barnabarnabörn- in sín á meðan hann gat. Elsku afi okkar, nú ertu loks- ins kominn á betri stað, stað sem þú hefðir örugglega viljað komast á fyrir löngu. Nú mun þér líða miklu betur. Það var alltaf svo gaman að koma í heimsókn til Ísafjarðar og hitta ykkur ömmu, njóta þess að fara á skíði í veðurblíðunni fyrir vestan og vera í dekri hjá ykkur ömmu. Þú áttir alltaf lausa stund til þess að leika við okkur, bæði úti og inni og alltaf varst þú fyrstur til þess að stinga upp á að fara í allskonar keppnir. Amma datt sko heldur betur í lukkupottinn að hafa nælt sér í þig á sínum tíma, enda bráðmyndarlegur og aðaltöffar- inn fyrir vestan. Ísafjörður var þinn staður og okkar bestu minningar um þig eru þaðan. Þar áttir þú þín bestu ár og tal- aðir alltaf svo vel um bæinn þinn og þér þótti svo vænt um hann. Þér leið svo vel í faðmi fjallanna og hafðir sjóinn alltaf nálægt þér. Við erum 100% viss um að þú hefðir verið alsprækur karl að djöflast langt yfir tíræðisaldur- inn ef ekki hefði verið fyrir sjúk- dóminn. Þú varst alltaf svo ein- staklega hraustur, hress og með mikið keppnisskap. Eitt sinn á Spáni fórst þú út að hlaupa með manni sem var 20 árum yngri en þú og slóst ekki slöku við. Það var ekki hægt að láta þann yngri halda að hann væri í betra formi en þú, svo lagðist þú fyrir gjörsamlega búinn á því en með bros á vör. Það eru ekki margir afar sem geta farið í arabastökk og labbað á höndum, en þú gerð- ir það reglulega og vorum við af- ar stolt að eiga svona hraustan afa. Þú varst ætíð mikill sund- garpur, við minnumst þess þeg- ar þú kepptir við okkur barna- börnin í kafsundi og amma stóð áhyggjufull á bakkanum, hrædd um að þú værir að ofgera þér í þetta sinn. En upp úr skaust svo kollur eftir 2 ferðir með bros- andi bláar varir og þú alsæll með sigurinn. Eftir að þú fluttir til Reykjavíkur þá varst þú tíður gestur í Breiðholtslaug og ekki komstu þangað til þess að liggja í heita pottunum eins og aðrir jafnaldrar þínir, þú syntir þínar ferðir þar til sjúkdómurinn á endanum hamlaði þér það. Þeg- ar þú fórst í innlögn á Landakoti átti starfsfólkið þar erfitt með að halda í við þig í göngutúrum sem það fór með þig í, þolið þitt var svo gott. Elsku afi okkar, við vitum að þú munt núna vaka yfir ömmu sem og okkur hinum í stórfjöl- skyldunni þinni og hugsa vel um okkur eins og við höfum gert fyrir þig öll þessi ár. Við sökn- um þín sárt en erum jafnframt þakklát fyrir þær góðu minning- ar sem eftir lifa og munu þær ylja okkur um ókomin ár. Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur og kennt okkur. Við mun- um taka það með okkur og kenna næstu kynslóðum það. Þú varst okkar ofur-afi sem sýndi að aldur var engin fyrirstaða. Blessuð sé minning þín, afi. Óttar, Þóra Dögg, Bjarni Freyr og Víðir Örn. Elsku afi minn, eftir löng veikindi ertu sofnaður svefnin- um langa. Alzheimer er skrítinn sjúkdómur sem tekur fólkið manns frá manni – en samt ekki. Að horfa á afa sinn sem var hraustur, duglegur, ákveðinn og skemmtilegur verða að sjúklingi sem hverfur smátt og smátt inn í líkamann þar sem sálin fer og tóm augun tóku á móti manni. Þegar ég hugsa til baka þá eru svo ótal margar minningar og mörg augnablik sem við eig- um saman. Við tvö saman í garð- inum að vökva grasið eða laga til í kartöflugarðinum. Við fórum saman út í bílskúr að berja harðfisk með hamri og borðuð- um hann svo saman, við fórum út í garð með sykurkar frá ömmu og borðuðum rabarbara. Þegar þú settir upp jólaseríunar utan á húsið og baðst mig um að halda við stigann sem var heimagerður og valtur, ofsalega var ég hrædd um þig þarna uppi við þakskeggið og þú hlóst bara að mér þegar ég bað þig að fara varlega. Öll börn sem umgengust þig muna eftir knúsunum þínum, afi minn, maður nánast missti and- ann, svo innileg voru þau. Elsku afi, þú varst minn mesti stuðn- ingsmaður í sundinu, alltaf eftir mót þá beiðstu eftir mér til að vita hvernig mér gekk, ég sagði þér frá bætingum og sýndi þér verðlaunapeningana mína, alltaf hlustaðir þú á mig og þú vissir nákvæmlega hvað ég átti að gera til að gera betur næst enda mikill keppnismaður sjálfur. Það er margt í þínu fari sem ég hef ómeðvitað tileinkað mér eða erft frá þér, afi minn, stríðni og keppnisskap er ríkjandi í okkar fjölskyldu enda varst þú foringi mikill og vildir alltaf vinna. Þú kafaðir heilu og hálfu sundlaug- arnar og hentir þér niður í arm- beygjur án nokkurrar umhugs- unar og labbaðir á höndum eins og sannur atvinnumaður. Í minningunni var aldrei neitt bannað í Brautarholtinu, ég mátti leika mér í úðaranum ef þú varst að vökva, mátti taka allt krikketdótið í garðinn og mátti leika með föt og skó inni í herbergi. Ég fékk margoft að gista og fékk þá að horfa á Tomma og Jenna sem þú varst búinn að taka upp á spólu fyrir barna- börnin þín. Mörg jól og áramót man ég þar sem mikil gleði var ríkjandi, hlátur og kitl sem oftar en ekki enduðu á því að ég vafði mér um hálsinn á þér og hvísl- aði: „Afi, má ég gista?“ Elsku afi minn, það er erfitt að kveðja þig þó svo að sál þín sé löngu farin. Við sem eftir erum hugsum vel um ömmu, konuna þína sem þú elskaðir svo mikið. Farðu varlega, afi minn, í handahlaupum og köfun í sum- arlandinu. Þín afastelpa, Arna Lind. Lítill drengur, fjörulalli og Pólgötupúki. Hann var alltaf í kringum sjó- inn og fékk spýtur til að smíða bát. Merkilegt að enginn gerði athugasemdir við leik okkar barnanna. Það var róið á Poll- inum á þessum drápsfleytum og allir glaðir. Þegar við urðum eldri, þá máttum við fara niður á höfn með því skilyrði að við fær- um varlega. Ég man daginn eins og gærdaginn. Við vorum mörg að veiða, það var fallegt veður, sól og logn og eins hlýtt og það getur orðið í maí vestur á fjörð- um. Stór spýta þvældist fyrir öllum, hún hafði verið sett hing- að og síðan þangað og var alls- staðar fyrir. Sá minnsti í hópn- um tók af skarið, tók í annan endann á spýtunni og dró hana í átt að höfninni. Spýtan var þung það þurfti að stoppa nokkrum sinnum á leiðinni. Hún var með stórum flísum sem festust í höndum lítils drengs og á öðrum endanum var nagli, stór nagli. Það tókst loksins að koma henni yfir hafnarkantinn, en hún var þung, ó guð, hvað hún var þung. Þegar spýtan svo steyptist í dýpið þá vildi ekki betur til en svo að naglinn varð eftir eftir í peysu drengsins og dró hann með sér. Samkvæmt frétt Morg- unblaðsins þennan dag var fallið milli fimm og sex metrar. Lífið er skrýtið, en um vorið hafði drengnum verið kennt í skólan- um að taka fyrstu sundtökin, troða marvaðann og vera á floti og það var fyrsta hugsun hans. Hann komst upp, saup hveljur, kallaði og kallaði en enginn heyrði, sökk þá aftur, sturlaður af hræðslu. Götusópari sem var við vinnu á höfninni sá drenginn en hélt áfram vinnu sinni. Þrek- ið þvarr, hann sá bát útundan sér þar sem sterklegur maður fór úr klofstígvélum og lopa- peysu og henti sér í sjóinn án þess að hugsa. Það var maður með drekablóð. Það er ótrúlegt logn, ótrúlega hlýtt, allt svart og skrýtnar litlar loftbólur hingað og þangað. Það er þögn, enda- laus þögn. Síðan er tekið sterk- um höndum um lífvana skrokk- inn og drengurinn er dreginn upp á yfirborðið. Það er sárt að fá loft í lungun og tilfinningar spretta fram, hræðsla, grátur, gleði og fögnuður yfir lífgjafan- um sem hikaði ekki við að henda sér í sjóinn á eftir litlum dreng. Maðurinn syndir með hann að næsta bát, þar sem aðrir sjó- menn aðstoða hann og púkann að komast á þurrt. Skjálfandi af kulda og hræðslu horfir hann á manninn sem hefur frelsað hann, stóran og sterkan, það drýpur af höfði hans og lekur af honum öllum. Það geislar af honum. Já, það er satt, hann er með drekablóð. Ódauðlegur og getur allt. Hann er sjómaður. Hann tekur drenginn, brosir og faðmar hann að sér, segir honum að vera ekki hræddur, þetta sé allt í lagi. Lögreglan kemur, á ótrú- lega flottum nýjum bíl, þeir mega ekki setjast. Drengurinn stendur og skelfur, bjargvætt- urinn situr á hækjum sér, þeir eru báðir votir inn að beini. Eina hugsunin er, hvað hann á að segja mömmu þegar heim kemur. En lögreglumennirnir sjá um það. Hún faðmar hann að sér, þakkar manninum sem dró hann upp úr höfninni kærlega fyrir. Drengurinn fær kakó og er háttaður ofan í rúm. Þetta atvik hefur aldrei verið rætt og þykir eðlilegur hlutur í litlu sjávarþorpi. Elsku Jónatan, takk fyrir líf- gjöfina. Ef ekki væri fyrir þig, þá væri þessi litli drengur ekki eiginmaður, ekki faðir og ekki afi. Hann væri ekki hér. Guð mun launa þér fyrir líf þessa litla drengs. Hafðu þakkir fyrir allt og allt. Ég votta aðstandendum líf- gjafa míns innilega samúð. Bjarni Jónsson. Jónatan Arnórsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.