Morgunblaðið - 21.06.2018, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 21.06.2018, Qupperneq 54
54 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2018 Það er allt fínt að frétta héðan úr Efstadal. Það er reyndar búinað vera leiðindatíð en vonandi fer það að breytast,“ segirBjörg Ingvarsdóttir sem á 60 ára afmæli í dag. Hún og eiginmaður hennar, Snæbjörn Sigurðsson, komu á ferða- þjónustu í Efstadal þar sem þau tengdu hana saman við kúabúskapinn sem var þar. Þau komu meðal annars á fót veitingastaðnum Hlöðu- loftinu sem er í fjósinu og Íshlöðunni. Snæbjörn er frá Efstadal en Björg er Njarðvíkingur. „Ég kom hingað í Laugardalinn fyrir 30 ár- um en við tókum við búskapnum í Efstadal árið 1991. Núna eru börnin tekin við rekstrinum og við hjónin orðin hrossa- bændur og erum að byggja okkur bústað á jörðinni. Við kúpluðum okkur út úr öllum rekstri fyrir ári og erum að sinna okkar hugðar- efnum, sem við höfðum ekki haft tíma til að sinna almennilega.“ Auk hrossaræktunarinnar spilar Björg á harmoniku. „Ég hef verið að æfa með Harmonikkufélagi Selfyssinga og Árnesinga, en náði ekki að spila á tónleikum með þeim í vetur. því miður fyrir mig allavega.“ Björg og Snæbjörn eiga fimm börn saman, Björg átti tvö frá fyrra sambandi og Snæbjörn eitt. Þau eru Halla Rós, Sólrún Birna, Sölvi, Guðrún Karítas og Linda Dögg, en fjögur þeirra sjá um reksturinn í Efstadal. Barnabörnin eru orðin ellefu. „Stefnan er að taka bíltúr á Langjökul í dag í tilefni dagsins ef veð- ur leyfir og borða svo góðan kvöldmat með fjölskyldunni.“ Hjónin Björg og Snæbjörn við síðustu mjaltir sínar. Börnin tekin við rekstrinum í Efstadal Björg Ingvarsdóttir er sextug í dag J óhann Eyfells fæddist í Reykjavík á lengsta degi ársins, 21.6. 1923, og ólst upp í Þingholtunum, á Skólavörðustíg 4b: „Pabbi var listmálari og fylgdi köllun list- arinnar þótt allar aðstæður til þess væru honum óhagstæðar í uppvexti. Ég fylgdi í fótspor hans þótt mamma reyndi eftir megni að beina athygli minni og áhuga inn á „praktískari“ brautir. En listagyðjan réð ferð okkar feðga og eftir að ég lauk námi í arki- tektúr sneri ég mér alfarið að mynd- listinni og þar liggur ævistarfið.“ Á sumrum var Jóhann í sveit á ýmsum bæjum, þ.á m. Reykholti í Borgarfirði hjá afa sínum og ömmu. Jóhann var mjög vel á sig kominn lík- amlega og stundaði keppnisíþróttir af kappi. Hann varð Íslandsmeistari í boxi, vitnar oft í þjálfarann sinn, Steina box, eða Þorstein Gíslason málarameistara, og þakkar honum leiðsögn sem Jóhann segist hafa búið að alla ævi. Jóhann fór til náms í arkitektúr og myndlist í Kaliforníuháskólanum í Berkley árið 1944 og stundaði einnig nám við Lista- og handíðaskóla Kali- forníu í Oakland. Í Kaliforníu kynntist Jóhann Kristínu Halldórsdóttur en það varð ást við fyrstu sýn. Hún rak þá glæsi- lega kjólaverslun í Reykjavík, Fix, og var að nema kjólahönnun. Hún gerð- ist einnig listamaður og voru þau alla tíð mjög samrýnd. Jóhann vill að tal- að sé um þau í sterku samhengi þótt verk þeirra séu gjörólík. Árið 1953 tók Jóhann B.Arch-próf frá Flórídaháskóla í Gainsville í arki- tektúr og 1964 tók hann MFA-próf í skúlptúr frá sama skóla. Á seinni hluta sjöunda áratugarins vann Jóhann að listsköpun sinni á Ís- landi og kenndi einnig við Handíða- og myndlistaskólann í Reykjavík. Þar starfaði hann m.a. með Braga Ásgeirssyni og var þeim vel til vina alla tíð eftir það. Jóhann og Kristín voru mjög áberandi og framsækin í listalífinu í Reykjavík á seinni helm- ingi sjöunda áratugarins og tóku þátt í fjölda sýninga á verkum á Skóla- vörðuholti. Árið 1969 varð Jóhann prófessor við Flórídaháskólann í Orlando og starfaði þar til 1999. Jóhann Eyfells, myndlistarmaður og arkitekt – 95 ára Maður og tré Hér er Jóhann á landareign sinni við stórfenglegt tré sem óneitanlega minnir á sköpunarmátt hans. Fylgdi listagyðjunni í fótspor föður síns Listamaðurinn Jóhann Eyfells, listamaður og arkitekt í Texas. Frú Valgerður Bílddal frá Siglu- firði er 90 ára í dag. Börnin henn- ar halda henni hóf milli kl. 17 og 19 í sal Guðríðarkirkju í Grafarholti, Kirkjustétt 8, Reykjavík á afmæl- isdaginn. Árnað heilla 90 ára Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Z-brautir & gluggatjöld Opið mánud.-föstud. 10-18 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | S. 525 8200 | www.z.is | Mælum, sérsmíðum og setjum upp Úrval - gæði - þjónusta Falleg gluggatjöld fyrir falleg heimili
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.