Morgunblaðið - 05.07.2018, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2018
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Verð: 184.800 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
sp
ör
eh
f.
Aðventublær í Bamberg
Aðventan í Þýskalandi er heillandi og mikil jólastemning
er í borgum og bæjum. Ferðin hefst í borginni Bamberg,
komið verður til Nürnberg, þar sem finna má elsta
jólamarkað landsins og til borgarinnar Würzburg sem er
töfrandi á aðventunni og státar af líflegum jólamarkaði.
30. nóvember - 7. desember
Fararstjóri: Sigrún Valbergsdóttir
„Við erum algjörlega sjálfstæðar og
við tökum hundrað prósent ábyrgð á
okkar skjólstæðingum. Landspít-
alinn segir okkur ekki fyrir verkum,“
segir Guðrún Fema Ágústsdóttir,
ljósmóðir sem sagði upp störfum hjá
Landspítalanum nýverið og starfar
nú sem sjálfstætt starfandi ljós-
móðir. Hún segir að það sé val sjálf-
stætt starfandi ljósmæðra hvenær
þær taki að sér skjólstæðinga. „Ég
tek ekki að mér konu í heimaþjón-
ustu ef hún er enn í áhættu sem til-
heyrir sjúkrahúsinu.“ Sjálfstætt
starfandi ljósmæður hafa öryggið í
fyrirrúmi, að sögn Guðrúnar. „Við
störfum náttúrlega til þess að örygg-
inu sé sinnt. Ef það er vandamál
Landspítalans að ljósmæður þar ætli
að senda konur fyrr heim þá tökum
við ekki þátt í því, þar erum við allar
sammála. Það sem við erum á móti er
að taka að okkur skjólstæðinga sem
eru ekki tilbúnir að fara heim. Við
samþykkjum ekki að sú ábyrgð sé
lögð á okkur.“
Barnalæknar sýna samstöðu
Guðrún Fema segir að hún hafi
ekki enn lent í því að vera beðin um
að taka að sér konu í heimaþjónustu
sem ekki var tilbúin að útskrifast af
spítalanum. „Við höfum einmitt verið
að taka við konum og börnum sem
voru útskrifuð á alveg nákvæmlega
réttum tíma. Ég held að það sé líka
barnalæknum að þakka sem passa
upp á það. Ég veit að þeir standa
hundrað prósent með okkur.“ Guð-
rún biðlar til ríkisstjórnarinnar að
leysa deiluna sem fyrst. „Ég myndi
vilja bæta því við að ég vona að ríkis-
stjórnin semji við ljósmæður sem
hafa sagt upp á Landspítalanum til
þess að vera ekki að setja óþarfa álag
og áhyggjur á foreldra um að þurfa
að fara of snemma heim og fá ekki
rétt eftirlit.“
Hjá Björkinni, sjálfstætt starfandi
ljósmæðraþjónustu sem sér um fæð-
ingar og heimaþjónustu er allt upp-
bókað út september. Arney Þórarins-
dóttir, ljósmóðir og framkvæmda-
stjóri Bjarkarinnar, segir það þó ekki
óvenjulegt. „Það er alltaf mjög mikið
bókað hjá okkur en það sem er öðru-
vísi núna er ástæðurnar fyrir því að
konur leita til okkar. Venjulega er
það bara vegna þeirrar þjónustu sem
við bjóðum upp á en nú er það fremur
vegna þess að konur eru óöruggar
vegna ástandsins.“ Arney segir jafn-
framt að fyrirspurnir um fæðingar
hafi færst mjög í aukana undanfarið.
ragnhildur@mbl.is
„Landspítalinn segir
okkur ekki fyrir verkum“
Morgunblaðið/Sverrir
Nýburi Sjálfstætt starfandi ljósmóðir segir að hún og hennar kollegar neiti
að taka að sér konur og börn sem séu útskrifuð of snemma.
Taka ekki að
sér konur í áhættu
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
„Við horfum eiginlega bara á eina
vakt í einu,“ segir Linda Kristmunds-
dóttir, framkvæmdastjóri kvenna- og
barnasviðs Landspítalans. Aðgerða-
áætlun spítalans var sett í gang 1. júlí
en uppsagnir tólf ljósmæðra tóku
gildi sama dag.
„Við erum náttúrlega undir-
mönnuð og það er öryggisógn til
staðar. Þetta er síbreytileg þjónusta
og það geta komið upp stórir álags-
toppar og við erum hræddust við þá
stöðu. Þetta lítur ágætlega út fyrir
daginn í dag en svo veit maður aldrei
hvað gerist í kvöld eða nótt.“
Útskrifa konur og börn hraðar
Í aðgerðaáætluninni er meðal ann-
ars kveðið á um að útskrifa skuli kon-
ur og nýbura eins fljótt og hægt er.
„Við höfum útskrifað hraðar og fyrr
heldur en undir venjulegum kring-
umstæðum. Það er þó alltaf vegið og
metið í hverju tilviki fyrir sig hvenær
skuli útskrifa og ýmislegt sem spilar
þar inn í. Móðirin er skoðuð og ný-
burinn er skoðaður og síðan tökum
við ákvörðun.“
Aðspurð hvort það að útskrifa
mæður og börn fyrr af Landspít-
alanum sé ekki einungis leið til þess
að færa álagið annað segir Linda
ekki svo vera. „Þær hafa allavega
tekið vel í þessar beiðnir okkar um
heimaþjónustu sem við höfum sótt
um. Það er þó stuttur tími síðan að-
gerðaráætlunin tók gildi þannig að ef
það kæmi álagstoppur og það fædd-
ust mjög mörg börn í einu og við
þyrftum að senda fleiri beiðnir þá
gæti vel verið að þeirra þjónusta
mettaðist líka.“
Fæða á Akureyri og Akranesi
Í aðgerðaáætluninni er sagt að val-
keisaraskurðum verði hugsanlega
beint á Akranes og Akureyri. „Í ein-
hverjum mæli hefur það verið gert,
ég er ekki með tölu á því í hversu
mörgum tilvikum það er,“ segir
Linda. Að sögn hennar er ástandið þó
ekki betra á Akureyri og Akranesi.
„Við vissum fyrirfram að geta ann-
arra heilbrigðisstofnana til þess að
taka við verkefnum frá okkur væri
mjög takmörkuð. En þær hafa tekið
við þeim verkefnum sem við skil-
greindum að þær gætu tekið við.
Meginþunginn í þessari starfssemi er
alltaf hér á Landspítalanum. Til
dæmis ef eitthvað er akút þá liggur
það hjá okkur.“
Undirmönnuð
og öryggisógn
til staðar
Aðgerðaáætlun Landspítalans er
byrjuð að hafa áhrif á fæðingar
Morgunblaðið/Sverrir
Linda Kristmundsdóttir Segir að
álagspunktar geti orðið hættulegir.
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Þrátt fyrir að fæðingum hafi fækkað á
Íslandi undanfarin misseri hafa orðið
umtalsverðar breytingar á barneign-
arþjónustunni á sama tímabili. Tíðni
fæðinga gefur þess vegna ekki ná-
kvæma mynd af vinnuálagi ljós-
mæðra.
Þetta er meðal þess sem kemur
fram í yfirlýsingu ljósmæðra í gær-
kvöldi en tilefnið er upplýsingar sem
fjármálaráðuneytið birti í gærdag þar
sem bent er á að fæðingum hafi fækk-
að um rúm átta prósent á undanförn-
um tíu árum en á sama tíma hafi
stöðugildum ljósmæðra hjá ríkinu
fjölgað um 33 prósent.
Í yfirlýsingu ljósmæðra segir að gíf-
urlegt álag í heilbrigðiskerfinu eigi að
vera fjármálaráðuneytinu ljóst eins og
öðrum. „Nám til starfsréttinda í ljós-
móðurfræðum tekur sex ár og lýkur
með kandídatsnámi. Meðaltal grunn-
launa ljósmæðra er í dag um 570 þús-
und krónur á mánuði. Nauðsynleg
leiðrétting á kjörum stéttarinnar blas-
ir því við,“ segir í yfirlýsingu ljós-
mæðra.
Segir þar að aðeins 14 prósent ljós-
mæðra séu í fullu starfi og því gefi yfir-
lýsingar sem innihalda uppreiknuð
heildarlaun skakka mynd af raunveru-
legum kjörum ljósmæðra. „Slíkar
upplýsingar eru ekki til þess fallnar að
sætta ólík sjónarmið í deilunni,“ segir
ennfremur, en fjármálaráðuneytið
greindi frá því í gær að heildarlaun
ljósmæðra fyrir fullt starf hafi á síð-
asta ári verið að meðaltali 848 þúsund
krónur.
Í tilkynningu fjármálaráðuneytisins
frá því í gær kemur fram að árið 2008
hafi ljósmæður fengið 16% hækkun
umfram önnur BHM-félög sem leið-
réttingu vegna viðurkenningar á auk-
inni menntun. Frá þeim tíma hafa ljós-
mæður fengið sömu hækkanir og
önnur BHM-félög.
Í yfirlýsingu ljósmæðra segir að líkt
og gögn ráðuneytisins sýni hafi um-
rædd leiðrétting að mestu fjarað út.
„Sú staðreynd er eitt af úrlausnarefn-
um yfirstandandi kjaraviðræðna,“
segir í yfirlýsingunni en næsti fundur í
kjaradeilu ljósmæðra er boðaður í dag.
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Kjaradeila Frá mótmælaaðgerð ljósmæðra við Stjórnarráðið á sunnudaginn þar sem þær lögðu „skóna á hilluna“.
Meðaltal grunnlauna
ljósmæðra 570 þúsund
Segja tíðni fæðinga ekki gefa rétta mynd af vinnuálagi