Morgunblaðið - 05.07.2018, Blaðsíða 10
Gert er ráð fyrir 1.200 íbúða byggð í
Nýja-Skerjafirði, nýjum skóla, verslun
og þjónustu, en borgarráð samþykkti
nýtt rammaskipulag Skerjafjarðar á
fundi sínum 28. júní síðastliðinn.
Skipulagið tekur til landsvæðis við
enda flugbrautar 06/24 sem hefur ver-
ið lokað, en flugbrautin hefur ýmist
verið kölluð neyðarbrautin eða litla
flugbrautin.
Svæðið sem um ræðir liggur að nú-
verandi byggð í Skerjafirði og afmark-
ast af götunni Skeljanesi til vesturs en
af öryggissvæði Reykjavíkurflugvall-
ar til norðurs og austurs. Við suður-
enda byggðarinnar er síðan strand-
lengja Skerjafjarðar.
Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg
segir að gert sé ráð fyrir fjölbreyttum
húsagerðum í rammaskipulaginu og
ríkulegum grænum almenningsrým-
um sem hönnuð verði út frá sólarátt-
um og skjóli. „Hugað verður að fé-
lagslegri blöndun á svæðinu og hafa
stúdentar og Bjarg, byggingarfélag
verkalýðshreyfingarinnar, þegar
fengið vilyrði fyrir lóðum í hinni nýju
byggð,“ segir í tilkynningunni.
Góð aðstaða verður fyrir ýmiss kon-
ar sportbáta og seglskútur á svæðinu
og er tiltekið að byggja eigi upp góða
aðstöðu fyrir siglingaíþróttina á aust-
urhluta strandarinnar, en í tilkynn-
ingu Reykjavíkurborgar segir að öll
strandlengjan á svæðinu sé sólrík og
henti því vel til dvalar, útivistar, sjó-
baða og siglinga.
Loks segir að hugsað sé fyrir teng-
ingu hverfisins við áframhaldandi upp-
byggingu í Vatnsmýri þegar flugvöll-
urinn víki þaðan og eins er gert ráð
fyrir tengingu almenningssamgangna
við Kársnes í Kópavogi með byggingu
brúar yfir Fossvog fyrir gangandi,
hjólandi og almenningssamgöngur.
Ný 1.200 íbúða byggð
skipulögð í Skerjafirði
Gert ráð fyrir fjölbreyttum húsagerðum á svæðinu
Skipulag Nýja byggðin í Skerjafirði samkvæmt rammaskipulaginu. Auk íbúða verða þarna verslanir og þjónusta.
Teikning/Ask Arkitektar
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2018
Hér er aðeins sýndur hluti af bílum í boði. Fullt verð er verð hvers bíls með aukabúnaði. Aukabúnaður á myndum gæti verið annar en í auglýstum verðdæmum.
5 ára ábyrgð fylgir fólksbílum HEKLU að uppfylltum ákvæðum ábyrgðarskilmála. Þá er að finna á www.hekla.is/abyrgd
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum
Besta Hekluverðið 4.270.000 kr.
Audi A3 e-tron 1.4 TFSI / Rafmagn/Bensín / Sjálfskiptur
Besta Hekluverðið 7.290.000 kr.
Audi Q5 Sport Quattro
4x4 / 2.0 TDI / Dísil / Sjálfskiptur
Fullt verð: 8.650.000 kr.
1.360.000 kr.
Afsláttur
Besta Hekluverðið 10.990.000 kr.
Audi Q7 e-tron 3.0 TDI quattro / Rafmagn/Dísil / Sjálfskiptur
Fullt verð: 11.730.000 kr.
740.000 kr.
Afsláttur
ára
ábyrgð5
Nú er góður tími til að fá sér nýjan Audi hjá Heklu því við
vitum aldrei hvað svona frábært verð býðst lengi. Tryggðu þér
bíl á besta Hekluverðinu og aktu inn í sumarið.
Nýr Audi á Besta Hekluverðinu
Landsmenn skiptast nokkurn veg-
inn í tvær jafnstórar fylkingar
varðandi afstöðu til þess hvort
hætta eigi að kenna dönsku í
grunnskólum landsins og taka upp
kennslu á öðru tungumáli í staðinn.
Þetta er niðurstaða könnunar
MMR. 38% voru fylgjandi því að
hætt yrði að kenna dönsku, 38%
voru því mótfallin og 24% hvorki
andvíg né fylgjandi slíkum breyt-
ingum.
Nokkur munur var á afstöðu
svarenda eftir kyni. Konur voru lík-
legri en karlar til að vera andvígar
því að dönskukennslu yrði hætt og
annað tungumál kennt í staðinn.
Einnig var nokkur munur eftir
aldri svarenda, en með hækkandi
aldri var líklegra að vilja halda í
óbreytt fyrirkomulag og það sama
átti við um fólk í hærri tekjuhópum.
Ekki var munur eftir búsetu fólks.
Menntaðir vilja ekki breytingar
Þá var talsverður munur á svör-
um fólks eftir menntun, en háskóla-
menntaðir vilja frekar halda í
dönskukennsluna en tæp 52% há-
skólamenntaðra sögðust frekar eða
mjög andvíg hugmyndum um
breytingar á kennslu samanborið
við tæp 23% þeirra sem voru ein-
göngu með grunnskólapróf.
Þeir sem kjósa Vinstri-græn og
Framsóknarflokkinn eru líklegastir
til að vilja að danska verði kennd
áfram. Stuðningsfólk Viðreisnar,
Miðflokksins og Pírata voru aftur á
móti líklegastir til að vilja að annað
tungumál yrði kennt í grunnskólum
í staðinn fyrir dönsku.
Morgunblaðið/Hari
Í skólastofu Skiptar skoðanir eru um hvort kenna eigi dönsku áfram.
Skiptar skoðanir
um dönskukennslu
Efnaðir og Vinstri-græn vilja dönsku