Morgunblaðið - 05.07.2018, Síða 22
Turnfálki Hann lifir aðallega á nagdýrum en varð svangur þegar hann sá litla hnotigðuunga í fuglahúsinu.
Norfolk-sýsla á Austur-Englandi nýtur mikilla
vinsælda meðal breskra fuglaáhugamanna því
þar má finna margar fuglategundir sem eru
sjaldgæfar annars staðar á landinu. Í sýslunni
eru nokkur þekkt friðlönd, m.a. í grennd við
þorpið Titchwell, þar sem fuglalífið er sérlega
fjölbreytilegt. Blaðamaður Morgunblaðsins
dvaldi í viku í Norfolk í byrjun síðasta mán-
aðar og sá margar tegundir sem hann hafði
aldrei séð áður, m.a. nokkra fágæta flækinga,
fallegar uglur með hjartalaga andlit og þrjár
tegundir fálka. Hann sá t.a.m. förufálka sem
hafði tekið sér bólfestu á kirkjuturni í fallegum
strandbæ, Wells-next-the-Sea. Í einu friðland-
anna sáust gunnfálkar sem voru nýkomnir til
Norfolk frá Afríku og veiddu drekaflugur. Í
nálægum bæ sást turnfálki á flugi undan hópi
landsvala sem eltu hann. Hann rak þá augun í
fuglahús þar sem hnotigðuungar biðu eftir
gómsætum ormum í gogginn. Þótt turnfálkinn
lifi aðallega á stúfmúsum og öðrum nagdýrum
stóðst hann ekki mátið og reyndi að klófesta
litlu ungana. Honum tókst það þó ekki, gafst
að lokum upp og flaug í burtu.
Á meðal flækinganna sem sáust voru þyrni-
svarrar sem voru eitt sinn algengir varpfuglar
í Bretlandi en verpa þar nú sjaldan. Sumar
tegundirnar flækjast stundum til Íslands eða
fjúka hingað með lægðunum sem herja á land-
ið. bogi@mbl.is
Turnugla Hún var að leita að músum í grennd við bæinn Wells-next-the-Sea.
Busksöngvari Er snotur, jafnt að aftan sem framan, en fágætur fugl.
Morgunblaðið/Bogi Þór Arason
Þyrnisvarri Var eitt sinn algengur varpfugl í Bretlandi en stofninn minnkaði stöðugt þar til hann hvarf árið 1987. Hann verpir þar nú sjaldan.
Fálkar og flækingar sóttir heim í Norfolk
22 FRÉTTIRFuglar
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2018
Weycor AR65e
þyngd 5150kg
vél: Deuzt (vatnskæld)
54KW (73hö)
Hanix H27DR
þyngd 2825kg
vél: Kubota
14,4KW (19hö)
Vinnuþjarkar
Þýsk og japönsk gæðavara
Við græjum það
Til sjós eða lands
Opið 8:30 - 17:00 virka daga - Sími: 562 3833
asafl.is
HJALLAHRAUNI 2, 220 HAFNARFIRÐI