Morgunblaðið - 05.07.2018, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2018
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Kylfingar hafa ekki farið varhluta af
vætutíðinni í vor og sumar, einkum
sunnanlands og vestan. Verulega hef-
ur dregið úr aðsókn á golfvellina, frá
því sem var síðasta sumar, og á sama
tíma flykkjast kylfingar í golfferðir út
fyrir landsteinana.
Þeir talsmenn golfklúbbanna, sem
Morgunblaðið ræddi við, bera sig
engu að síður vel. Þrátt fyrir tíðar-
farið sé aukinn áhugi á golfi og fé-
lagsmönnum fjölgi enn. Samkvæmt
upplýsingum frá Golfsambandi Ís-
lands hefur skráðum félagsmönnum,
eldri en 16 ára, fjölgað um 1% frá síð-
asta ári. Skráðir iðkendur eru nú um
17.100 en GSÍ er annað stærsta sér-
sambandið á eftir KSÍ.
En það er ekki bara vætutíðin sem
hefur aftrað kylfingum að leika golf.
HM í Rússlandi hefur haft sín áhrif,
eða eins og Brynjar Eldon Geirsson,
framkvæmdastjóri GSÍ, orðaði það
svo skemmtilega. „Kylfingum hefur
þótt betra að kúra í sófanum og horfa
á HM en að fara út í golf í smá rign-
ingu!“
Brynjar segir vætutíðina vissulega
hafa áhrif á rekstur golfklúbbanna,
hvort sem það séu vallargjöldin eða
sala á veitingum. Aðsóknin hafi einn-
ig minnkað meðan á EM í fótbolta
stóð í Frakklandi sumarið 2016.
Hungraðir í golf
Ólafur Þór Ágústsson, fram-
kvæmdastjóri Keilis í Hafnarfirði,
tekur undir með starfsfélögum sín-
um. Veðrið í sumar hafi haft sín áhrif
en þrátt fyrir það hafi félagsmönnum
GK fjölgað. Mikill áhugi sé á golfinu
og góð aðsókn á námskeið og æfinga-
svæðin.
„Það þýðir ekkert annað en að vera
jákvæður og bjartsýnn. Kylfingar eru
orðnir hungraðir að komast í golf og
stökkva út á völl um leið og styttir
upp,“ segir Ólafur Þór. Hann segir
skráningu í meistaramót GK fara ró-
lega af stað, mótið sé viku seinna á
ferðinni en í fyrra og greinilegt að
margir vilji horfa betur á veðurspána
þar til skráningarfresti ljúki.
Ekki gott fyrir grasið
„Veðurfarið er búið að hafa veruleg
áhrif á aðsóknina,“ segir Ómar Örn
Friðriksson, framkvæmdastjóri Golf-
klúbbs Reykjavíkur, en GR rekur tvo
golfvelli; í Grafarholti og á Korpúlfs-
stöðum. Ómar segir aðsóknartölur í
júní ekki liggja fyrir en í maí sl. hafi
verið spilaðir 2.000 færri golfhringir
en í sama mánuði árið 2017.
„Þetta er gott fyrir gróðurinn,“ er
oft sagt þegar rignir látlaust en
skyldi það eiga við um golfvellina?
Ómar segir svo ekki alltaf vera. Mikil
rigning sé ekki af hinu góða og auki
heldur ekki á grassprettuna ef á
sama tíma sé lágur jarðhiti. Hitastig-
ið yfir nótt hafi einnig verið lágt.
Þó að aðsóknin hafi oft verið meiri
segir Ómar að næg verkefni séu fyrir
vallarstarfsmenn. Meiri tími gefist nú
til að snyrta umhverfið.
„Annars er þetta allt að koma. Vell-
irnir eru á góðri leið og skráningin í
meistaramótið er mjög góð miðað við
veðurfarið. Við bindum vonir við að
okkar félagsmenn fái gott veður á
meistaramótinu,“ segir Ómar Örn.
„Þetta er búið að vera mjög sér-
stakt sumar. Veðurfarið virkar dálítið
eins og hagkerfið. Um leið og veðrið
batnar þá eykst aðsókn á vellina og
veitingastaðina í golfskálunum. Einn-
ig eru margir kylfingar harðir af sér
og spila í hvaða veðri sem er, láta smá
rigningu ekki trufla sig. Ég ætla að
leyfa mér að vera jákvæður fyrir
seinni hluta sumars. Kylfingar eiga
það skilið að sumarið batni,“ segir
Ómar Örn ennfremur.
„Þetta er allt að koma“
Það gefur augaleið að aðsóknin
minnkar þegar veðrið er ekki gott.
En um leið og rætist úr þá fyllast vell-
irnir hjá okkur eins og skot,“ segir
Agnar Már Jónsson, framkvæmda-
stjóri Golfklúbbs Kópavogs og Garða-
bæjar, GKG, sem rekur tvo velli,
Leirdalsvöll og Mýrina.
Agnar segir það eðlilega koma nið-
ur á tekjuhlið klúbbanna þegar færri
borgi vallargjöld, leigi golfbíla, kaupi
veitingar eða skrái sig í mót. Árgjald
stóru klúbbanna sé hins vegar hátt
hlutfall af tekjum og því séu áhrifin
minni en ella. Agnar segist hins vegar
hafa meiri áhyggjur af áhrifum veð-
urfars á minni golfklúbba, einkum á
landsbyggðinni, sem stóli frekar á
lausatraffíkina.
„Annars er þetta allt að koma,
meira að segja farið að skríða upp
fyrir 10 gráðurnar. Við búum nú á Ís-
landi og ekki má gleyma þeim dug-
legu kylfingum sem mæta á teig
sama hvernig viðrar. Sagt er að ekki
sé til slæmt veður, bara lélegur
klæðnaður,“ segir Agnar, léttur.
Hann segir skráningu í meistara-
mótið með ágætum, þó að vitanlega
sé hún lakari en í fyrra. „Fyrir okkur
kylfingana eru meistaramótin há-
punktur sumarsins, golfveisla í
nokkra daga og um að gera að njóta
og láta veðrið ekki trufla sig,“ segir
Agnar að endingu.
„Fólk finnur sína leið til að spila
golf,“ segir Brynjar Eldon hjá GSÍ en
ferðaskrifstofur hafa fundið aukinn
áhuga kylfinga á að komast út í sól-
ina. Það er breyting frá því sem
venjulega er, að Íslendingar fari í
golfferðir um haust eða vetur.
„Auðvitað er þetta ekki ákjósan-
legt ástand fyrir klúbbana, við gerum
okkur vel grein fyrir því. Vorið og
byrjun sumars hefur verið einstak-
lega vont, þó ekki þannig að vellirnir
séu í slæmu ástandi. Þeir eru margir
hverjir í betra formi en í fyrra. Síðan
má ekki gleyma því að barna- og ung-
lingastarfið er orðið mjög öflugt. Við
eigum sífellt fleiri afrekskylfinga,
sem eru góðar fyrirmyndir. Þetta
eykur áhugann og ég tel golf á Íslandi
sjaldan eða aldrei hafa verið í betri
stöðu. Það þýðir ekkert annað en að
horfa bjartsýn fram á veginn, með sól
í hjarta,“ segir Brynjar, sem staddur
var á golfvellinum í Eyjum þegar haft
var samband við hann í fyrradag. Þá
var blíðuveður og margir kylfingar að
spila léttklæddir.
Kylfingar kúra og horfa á HM
Golfklúbbar sunnan- og vestanlands finna vel fyrir vætutíðinni í sumar Minni tekjur af vallar-
gjöldum og veitingasölu HM í Rússlandi hefur einnig áhrif Fjölgun í klúbbunum á sama tíma
„Við megum ekki láta það viðgangast,
að gangi hlutirnir ekki upp sé bara í
lagi að hætta og jafnvel á miðjum
hring,“ ritaði Sigurpáll Geir Sveins-
son, PGA-golfkennari hjá Golfklúbbi
Suðurnesja og
þrefaldur Íslands-
meistari í golfi, á
Facebook-síðu
sína nýverið með
yfirskriftinni
„Aumingjavæðing
og foreldravæl“.
Þar vakti Sigur-
páll athygli á því
að á Íslandsmóti
unglinga hefði 21
kylfingur fengið
frávísun, ekki mætt eða hætt í miðju
móti.
„Sumir voru óheppnir og fengu frá-
vísun. Aðrir urðu veikir eða meiddust
en ég veit að það eru þarna einstak-
lingar sem hreinlega hættu vegna
þess að það gekk illa eða þeim var kalt
og bara nenntu þessu ekki. Þessir ein-
staklingar eru að sýna íþróttinni,
mótinu, mótshöldurum og meðspilur-
um vanvirðingu með þessari hegðun.
Enn verra finnst mér þegar foreldrar
eru meðvirkir og leyfa eða jafnvel
hvetja til þess háttar hegðunar,“
skrifaði Sigurpáll, en hann fékk mikil
viðbrögð við færslu sinni á Facebook.
Lýstu flestir sig sammála honum.
Hann segir suma foreldra hafa
„tekið hárblásarann“ á mótshaldara
fyrir að fresta ekki mótinu vegna veð-
urs einn daginn. Vindurinn hafi verið
5-7 m/sek og 5-7 mm af regni fallið yf-
ir daginn. Völlurinn hafi aldrei verið
nálægt því að vera óleikhæfur.
GSÍ setji viðurlög
Í samtali við Morgunblaðið segir
Sigurpáll það ekki góða þróun ef kylf-
ingar komist upp með að hætta í
miðju golfmóti, einkum stærstu mót-
unum, og beri fyrir sig slæmt veður
eða aðrar afsakanir. GSÍ þurfi að
setja viðurlög við svona hegðun.
„Hér á árum áður fengu menn
keppnisbann fyrir þessa hegðun og
við bara megum ekki ala okkar bestu
kylfinga upp við að þetta líðist,“ segir
Sigurpáll, og leggur til að hætti kylf-
ingur leik í GSÍ-móti þurfi sá hinn
sami að gera fulla grein fyrir því eða
skila læknisvottorði innan 48 tíma frá
atvikinu eða ákvörðuninni um að
hætta leik. Hvað framferði ungu kylf-
inganna varðar minnir Sigurpáll á að
foreldrar beri þar einnig mikla
ábyrgð. bjb@mbl.is
„Aumingjavæðing
og foreldravæl“
Golfkennari gagnrýnir þá sem hætta í
miðju móti Segir foreldra meðvirka
Sigurpáll Geir
Sveinsson
Meistaramót golfklúbbanna
eru að hefjast þessa dagana,
þar sem leiknar eru allt að 72
holur, eða fjórir 18 holu hringir.
Eins og kemur fram hér til
hliðar er víðast hvar ágætis
þátttaka í meistaramótin en
margir þó beðið með skrán-
ingu til síðustu stundar vegna
tíðarfarsins. Veðrið næstu
daga gæti orðið vætusamt í
flestum landshlutum en þó
stefnir í að þurrt verði og jafn-
vel sól inni á milli, helst norð-
austanlands.
Kylfingar geta því áfram átt
von á alls konar veðri.
Víða væta í
kortunum
MEISTARAMÓT AÐ HEFJAST
Morgunblaðið/Eggert
Vætutíð Kylfingar í GR gera sig klára á teig á Korpuvelli. Þessir létu rigninguna ekki á sig fá og mættu vel útbúnir.
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Fallegar vörur
fyrir heimilið
Stærð 232 cm | Verð 299.000 kr.
Stærð 202 cm | Verð 275.000 kr.
Stærð 172 cm | Verð 235.000 kr.