Morgunblaðið - 05.07.2018, Page 32

Morgunblaðið - 05.07.2018, Page 32
32 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2018 Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Dr. Larry Mayer, prófessor við há- skólann í New Hampshire, hélt fyrir- lestur á hafréttarráðstefnu Hafrétt- arstofnunar Íslands og Korea Maritime Institute á dögunum. Þar kynnti hann áhrif hækkandi sjávar- borðs af völdum loftslagsbreytinga á heiminn og er Ísland þar engin und- antekning en hækkun sjávar getur haft mikil áhrif hér á landi. „Ég skoð- aði aðeins Ísland sérstaklega áður en ég kom hingað til landsins og Ísland er mjög áhugaverður staður vegna þess hversu mikil eldfjallavirkni er hérna. Hún getur einnig haft áhrif á hæð landsins. Jöklarnir eru tvímæla- laust að minnka en það sem ég gat lesið úr rannsóknum á Íslandi er að hækkun sjávar á sér stað sums stað- ar en ekki alls staðar. Jarðskorpu- hreyfingar gætu þannig valdið því að sjávaryfirborð lækki sums staðar á Íslandi,“ segir Mayer. Hann segir loftslagsbreytingar tvímælalaust ástæðuna fyrir hækkun sjávarborðs. „Við vitum út frá mælingunum sem við gerum að sönnunargögnin eru ófrávíkjanleg. Hitastig jarðar- innar fer hækkandi, við vitum og skiljum hvað veldur því. Það er kar- bóndíóxið í andrúmsloftinu af mannavöldum sem hækkar hitastigið með gróðurhúsáhrifunum. Þetta veldur því að sjávarhitin hækkar, sem veldur hitaþenslu.“ Mayer bendir á að bráðnun jökla, sér- staklega Grænlandsjökuls og Suð- urskautslandsins, hafi einnig áhrif. „Það eru fjölmörg vandamál sem fylgja þessu sem við þurfum að tak- ast á við á komandi árum. Um 10% af íbúum heimsins búa innan við 10 m frá sjávarhæð. Útreikningar gera ráð fyrir að árið 2100 hafi sjávar- yfirborð hækkað um 50 cm til einn metra. Ef við skoðum í þessu sam- hengi land eins og Bangladess, sem er meira og minna við sjávarhæð, þá mun þetta hafa mikil áhrif á tugi milljóna manna. Þessir íbúar eiga ekki eftir að sætta sig við stöðug flóð,“ segir Mayer og bendir jafn- framt á að tveggja metra hækkun sjávar muni hafa áhrif á 850 milljónir manna. Mayer var fenginn til að útskýra áhrif loftslagsbreytinga og hækkun sjávarborðs á hafréttarráðstefnunni vegna þess að hækkunin getur haft lagaleg áhrif fyrir fjölmörg ríki, ekki síst eyríki. „Lagalega hliðin á þessu er sú að hækkun sjávar getur breytt þeim landamærum sem lönd hafa sett sér. Efnahagslögsaga getur minnkað en allir slíkir útreikningar taka mið af grunnlínukerfi. Þannig getur efnahagslögsagan breyst og tilkall ríkja til þeirra auðlinda sem þar gætu fundist,“ segir Mayer sem bendir jafnframt á að fjölmörg eyríki muni hverfa með tímanum. Mayer hefur eytt síðustu 13 árum í að kortleggja landgrunn Bandaríkj- anna, sem hefur m.a. aukið tilkall þeirra til norðurskautssvæðisins, eft- ir að í ljós kom að landgrunn Alaska- ríkis nær lengra en áður var talið. „Við höfum verið að kortleggja svæð- ið og ákvarða hversu stórt landgrunn Bandaríkjanna er. Rússland, Kan- ada, Noregur og Danmörk hafa verið í svipuðum aðgerðum og hafa öll lagt fram landgrunnskröfur.“ Um 9% hafsbotnsins kortlögð Unnið er nú að því að kortleggja allan hafsbotninn fyrir 2030 en May- er segir slík verkefni hafa verið van- rækt árum saman. „Við notum núna fjölgeislasónar sem gefur okkur þrí- víddarmynd af hafsbotninum. Ef við skoðum hversu mikið af hafsbotn- inum hefur verið kortlagt þá er það ekki nema um 9%. Ef við reiknum hvað það myndi kosta að kortleggja allan hafsbotninn, þ.e. allt sem er á 200 m dýpi eða meira, sem er 94% af hafinu, þá myndi það kosta þrjá milljarða bandaríkjadala. Það er mikið fé en til samanburðar er það einn rannsóknarleiðangur til mars,“ segir Mayer. Hafréttarsamningur Sameinuðu þjóðanna frá 1982 tekur ekki til auð- linda sem finnast á hafsbotni á al- þjóðlegum hafsvæðum en Mayer segir að við kortlagningu á hafsbotn- inum hafi komið í ljós að hann er rík- ur að auðlindum. Lönd sem vilja sækja auðlindir á þessu svæði þurfa að sækja um leyfi hjá International Seabed Authority, sem fer með lög- sögu á þessum svæðum. Eyríki þurfa að huga að hækkun sjávarborðs  Loftslagsbreytingar gætu haft áhrif á efnahagslögsögu Íslands  Áhrif hækkunar sjávarborðs gríðarleg á heimsvísu Morgunblaðið/Valli Fræðimaður Dr. Mayer er jarðfræðingur frá háskólanum á Rhode Island. Hann hefur tekið þátt í yfir 90 rannsókn- arleiðöngrum á 37 ára starfsferli sínum auk þess að hafa verið í ráðgjafarhópi fyrir Bandaríkjaforseta. Karlmaður á sjötugsaldri í Oppland í Noregi hefur verið handtekinn og sætir nú gæsluvarðhaldi, en hann er talinn hafa haldið öðrum manni, sem er á fimmtugasaldri, sem fanga í tvö ár. Fórnarlambið fannst í mjög slæmu ásigkomulagi í vesturhluta Opplands eftir leit vina og ættingja. „Það var varla hægt að þekkja hann á útlitinu,“ er haft eftir að- standanda í Oppland Arbeiderblad, sem sagði fyrst frá málinu. Það eru um tvö ár frá því að fjöl- skylda fórnarlambsins hætti að heyra frá honum. Réttargæslumað- ur fórnarlambsins, Aina Helene Tvensberg, segir við blaðamann Dagbladet að skjólstæðingur henn- ar hafi það erfitt, en hann sé ánægður með að geta gengið laus og gerandinn sé læstur inni. Ofbeldismaðurinn var í gær úr- skurðaður í tveggja vikna gæslu- varðhald vegna rannsóknarhags- muna. Maðurinn neitar sök að sögn lögreglunnar. Hélt manni föngnum í tvö ár í Oppland Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is BMW318D nýskr. 2013, ekinn 90 Þ.km, diesel (mappaður ca. 200hö), sjálfskiptur (8 gíra), 19“ felgur, aukafelgur fylgja! Verð 3.290.000 kr. Raðnúmer 380031 M.BENZ CLA 220 D AMG nýskr. 07/2016, ekinn 33 Þ.km, diesel (177 hö), sjálfskiptur, AMG útlitspakki.Verð 5.550.000 kr. Raðnúmer 380034 ÓSKUM EFTIR ALLSKONAR BÍLUMÁ SKRÁ RENAULT CLIO DYNAMIC LIMITED nýskr. 06/2016, ekinn 14 Þ.km, bensín, 5 gíra, glerþak ofl. Einkabíll, sem nýr! Verð 2.190.000 kr Raðnúmer 258069 TOYOTA LAND CRUISER 150 GX nýskr. 05/2012, ekinn 125 Þ.km, diesel, sjálfskiptur. Flott eintak! Verð 5.190.000 kr. Raðnúmer 258080 LAND ROVER RANGE ROVER VOGUE nýskr. 02/2017, ekinn 19 Þ.km, dísel, sjálfskiptur. Mjög vel búinn umboðsbíll! Verð 19.900.000 kr. Raðnúmer 256102 Bílafjármögnun Landsbankans Gamla kvikmyndahúsið Ingólfstræti, 101 Reykjavík Sunnudaginn 8 júlí, kl. 19 Rock’n roll tónleikar Til styrktar Krabbameinsfélaginu Einn af stærstu tónlistarmönnum heimsins Jerry Scheff frá USA og Terry Wayne frá Bretlandi ásamt Svíunum Janne Lucas Persson, Ove Pilebo, Jonna Holsten og Alicia Helgesson. Bjarni Arason, Fresh Form, Spot, Magnús R. Einarsson og Eggert Jóhannsson taka lagið. Jerry Scheff mun segja áhorfendum frá samstarfi sínu við Elvis Presley og fleirum sem hafa orðið á vegi hans. Miðasala á tix.is Upplýsingar á tcbshower.se

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.