Morgunblaðið - 05.07.2018, Qupperneq 60
60 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2018
Hinn kunni og vinsæli arkitektúr-
tvíæringur stendur nú yfir í Fen-
eyjum í sextánda sinn, en hann er
settur upp árið þegar myndlistar-
tvíæringurinn er ekki á eyjunum. Og
fyrirkomulagið er svipað, byggist á
þjóðaskálum þar sem fulltrúar ým-
issa þjóða kynna verk sín í arkitekt-
úr og skipulagi, sem og ýmsum sér-
sýningum sem snúast um arkitektúr
og hönnun.
Fjölmiðlar af ýmsu tagi hafa
fjallað um ýmsar hliðar tvíærings-
ins, enda margt forvitnilegt að skoða
og upplifa en að þessu sinni vekur
framlag Vatíkansins hvað mesta at-
hygli. Þetta er í fyrsta skipti sem ör-
ríki páfans tekur með beinum hætti
þátt í tvíæringnum og þykir mörg-
um það við hæfi, þar sem kaþólska
kirkjan hefur um aldir staðið að baki
mörgum þekktustu byggingum sem
risið hafa og þá yfirleitt kirkjum. Og
Vatíkanið fer svipaða leið í Fen-
eyjum því pantaðar voru litlar kap-
ellur af tíu aritektum og artitekta-
teymum – sumum heimsfrægum –
og eru þær sýndar á kjarri vaxinni
eyju í Feneyjalóni, San Giorgio, sem
sjaldan er notuð fyrir sýningar
tvíæringanna.
Fyrirmælin til arkitektanna voru
þau að kapelluna yrði að vera hægt
að taka sundur og flytja, hún átti að
vera mest tíu metra löng og sjö
metra há, og allur erfiviður kom til
greina. Þá þurftu kapellurnar ekki
að vísa til kristinnar trúar að öðru
leyti en því að í þeim áttu að vera alt-
ari og prédikunarstóll. Hugmyndin
að kapellunum er sögð kallast á við
grunnþema arkitektúrtvíæringsins
að þessu sinni: „frjálst rými – fyrir
alla, notað eins og hver og einn kýs“.
Og að sögn gagnrýnenda eru hinar
ólíku úrlausnir allar forvitnilegar.
Bogaþak Kapella sem arkitektarnir Ricardo Flores og Eva Prats hönnuðu. Svarthvít Gestir skoða og njóta kapellu hannaðrar af arkitektinum Francesco Cellini á sýningarsvæði Vatíkansins.
Gjafmildi Í norræna skálanum, sem Svíþjóð, Noregur og Finnland standa
að. Lundén Architecture Company kynnir hugmyndir um gefandi hönnun.
Vatíkanið pant-
aði tíu kapellur
Óbreytt ástand Í sýningarskála Ísraels er sýning nokkurra arkitekta sem
fjalla um viðkvæma sambúð fólks og helgra staða í borgarlandslagi.
AFP
Skógartenging Gestur á tvíæringnum skoðar kapellu sem japanski arkitektinn Terunobu Fujimori hannaði.
Ég verð að geta
unnið og lifað.
Laus við verki.
Fyrir góða líðan
nota ég Gold,
Active og gelið.
Erna Geirlaug Árnadóttir – innanhússarkitekt