Morgunblaðið - 21.07.2018, Blaðsíða 27
27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2018
Skýjafar yfir höfuðborginni Bændur og sjómenn sjá gjarnan fyrir um veður eftir skýjafari og hvaðan vindar blása og spá þeirra og veðurfræðinga hefur gengið eftir að undanförnu. Rigning.
Ómar
Undanfarið hafa
margir stigið fram og
varað við miklum upp-
kaupum erlendra aðila
á landareignum hér-
lendis. Fyrir rúmu ári
gerði Örn Bergsson,
formaður Lands-
sambands landeigenda
(LLÍ), kaup bresks
auðjöfurs á Gríms-
stöðum og jörðum í
Vopnafirði að umtalsefni á aðal-
fundi samtakanna í Reykjavík. „Er
þetta það sem við viljum, erum við
tilbúnir að selja landið? Heilu sveit-
irnar til erlendra auðjöfra? Leggja
þær þess vegna í eyði? Eða að við
verðum leiguliðar í eigin landi?“
(Bændablaðið 20. apríl 2017) Jó-
hannes Sigfússon á Gunnarsstöðum
tók sama mál upp á aðalfundi
Landsambands veiðifélaga 13. júní
sl. „Þetta er þróun sem er mjög al-
varleg. Vatnsréttindin eru til fram-
tíðar séð gríðarlega verðmæt, ekki
síður en laxveiðirétturinn. Svo ekki
sé talað um náttúruna. ... Við verð-
um að koma einhverjum böndum á
þetta. Við erum að missa landið úr
höndum okkar“ (Bændablaðið 21.
júní sl.). Í Mýrdalshreppi, þar sem
svissneskur auðmaður keypti jarðir
og veiðiréttindi þegar árið 2003,
hefur fasteignafélag með höf-
uðstöðvar í Alaska nú keypt Hótel
Kötlu á Höfðabrekku austan við
Vík ásamt með 4.700 hekturum
lands og veiðirétt-
indum. Fleiri jarðir
eru til sölu á þessum
slóðum, t.d. Hjörleifs-
höfði um 12.000 hekt-
ara að stærð, og út-
lendingar taldir
líklegir kaupendur.
(Mbl. 10. júlí 2018) Í
Fljótum í Skagafirði
hefur bandaríska
ferðaþjónustufyr-
irtækið Eleven Ex-
perience keypt margar
bújarðir og fasteignir
og því tengt er félagið Fljótabakki
sem rekur þar stórt lúxushótel.
Bændur á svæðinu og formaður
Byggðaráðs Skagafjarðar lýsa
áhyggjum yfir þessari þróun fyrir
samfélagið sem fyrir er og telja að
ríkið þurfi að grípa til aðgerða þar
og á landsvísu. (Mbl. 14. júlí 2018).
EES-samningurinn og
vettlingatök stjórnvalda
Það ferli sem hér er komið á fullt
skrið víða um land á rætur í EES-
samningnum og háskalegum vett-
lingatökum íslenskra stjórnvalda
við gerð hans. Í opnu bréfi til Stein-
gríms Hermannssonar forsætisráð-
herra sem birtist í Tímanum 1.
febrúar 1991 vakti ég athygli á
hvert stefndi þvert á yfirlýsingar
hans við upphaf málsins 1989. Í
svargrein hans í sama blaði viku
síðar vísaði Steingrímur í forkaups-
rétt sveitarfélaga og bætti við: „Allt
slíkt er gert ráð fyrir að herða.
Eignarhald erlendra aðila á landi,
sem ekki er nauðsynlegt vegna at-
vinnureksturs, verður ekki leyft.“
Eftir stjórnarskiptin 1991 var fallið
frá flestum fyrirvörum við samn-
inginn af Íslands hálfu og vísað til
væntanlegra ákvæða í fjárfestinga-,
fasteigna-, jarða- og ábúðarlögum,
sem sett voru síðar á árabilinu
1996-2004. Þegar til kastanna kom
reyndust þau haldlítil eða haldlaus,
enda þar að margra mati gengið
lengra í að opna fyrir fjárfestingar
útlendinga en EES-rétturinn krafð-
ist. – Á 140. löggjafarþingi 2011-
2012 flutti Guðfríður Lilja Grét-
arsdóttir þingmaður Vinstri
grænna tillögu til þingsályktunar
um endurskoðun á lagaumhverfi er
varðar uppkaup á landi (329. mál). Í
ítarlegri greinargerð rakti hún lið
fyrir lið undanhald og hyskni
stjórnvalda, meirihluta Alþingis og
ríkisstjórna, við að gæta íslenskra
hagsmuna á þessu sviði um langt
skeið. Vinstri grænir endurfluttu
tillöguna þrívegis óbreytta, síðast
Svandís Svavarsdóttir ásamt fleir-
um vorið 2017, en sem fyrr án telj-
andi viðbragða frá öðrum þing-
flokkum. Það er loks nú að ýmsum
öðrum á Alþingi og í sveit-
arstjórnum virðist orðin ljós alvara
málsins.
Fótfesta í stjórnarsáttmála
Í stjórnarsáttmála núverandi rík-
isstjórnar segir undir liðnum
byggðamál eftirfarandi: „Kannaðar
verða leiðir til að setja skilyrði við
kaup á landi sem taka mið af stefnu
stjórnvalda um þróun byggðar,
landnýtingu og umgengni um auð-
lindir.“ Þótt hér sé ekki fast að orði
kveðið vekur þetta ákvæði vonir um
að loks verði brugðist við þeirri
háskalegu þróun sem við blasir. Þar
duga augljóslega engin vett-
lingatök. Katrín Jakobsdóttir for-
sætisráðherra gaf til kynna um síð-
ustu helgi að unnið væri að málinu
á vegum ríkisstjórnarinnar og
fregna væri að vænta í næsta mán-
uði um undirbúning að fyrirhug-
uðum aðgerðum. Hér er um afar
stórt og margþætt mál að ræða,
sem reynt getur á túlkun og þanþol
EES-samningsins. Miklu skiptir að
ríki og sveitarstjórnir nái saman
um leiðir að marki, þar sem túlkun
skipulagsákvæða, náttúruvernd,
vatnsvernd og margir fleiri þættir
geta komið við sögu.
Auðlindir, sameign eða séreign
Afdrifaríkt skref var stigið fyrir
tveimur áratugum þegar sett voru
lög nr. 57/1998 um rannsóknir og
nýtingu á auðlindum í jörðu. Í 3.
grein þeirra segir: „Eignarlandi
fylgir eignarréttur að auðlindum í
jörðu, en í þjóðlendum eru auðlind-
ir í jörðu eign íslenska ríkisins,
„nema aðrir geti sannað eignarrétt
sinn til þeirra.“ Um sama leyti voru
sett lögin um þjóðlendur og ákvörð-
un marka eignarlanda og afrétta
(nr. 58/1988) sem mjög hafa komið
við sögu síðan. Með fyrrnefndu
lögunum var eigendum jarða í
einkaeign afhentur eignarréttur
auðlinda sem þeim tengjast svo
langt niður sem komist verður.
Hérlendis snertir þetta ekki síst
réttinn til jarðhita. Með þessum
lögum var hafnað lagafrumvarpi
sem ég ásamt fleiri þingmönnum
Alþýðubandalagsins hafði flutt
margsinnis um að lögfesta sem
þjóðareign allan jarðhita undir 100
metra dýpi, líkt og kveðið er á um
víða erlendis, m.a. í Bandaríkjunum
og Nýja-Sjálandi. Lærdómsríkt er
að skoða afleiðingar þessa við nú-
verandi aðstæður þegar útlend-
ingar eru að eignast æ fleiri jarðir
hérlendis. – Betur tókst til þegar
Alþingi setti fyrstu lögin um eign-
arrétt íslenska ríkisins að auðlind-
um hafsbotnsins innan íslenskrar
efnahagslögsögu (nr. 73/1990).
Samkvæmt þeim er íslenska ríkið
eigandi allra auðlinda – á, í eða
undir hafsbotninum utan netlaga.
Nú á afmælisári fullveldis er þess
óskandi að stjórnvöld leggist saman
á árar til að treysta undirstöðuna
sem felst í íslenskum umráðarétti
og sjálfbærri nýtingu gæða lands
og hafs.
Eftir Hjörleif
Guttormsson » Það ferli sem hér er
komið á fullt skrið
víða um land á rætur í
EES-samningnum og
háskalegum vettlinga-
tökum íslenskra stjórn-
valda við gerð hans.
Hjörleifur Guttormsson
Höfundur er náttúrufræðingur.
Jarðakaup útlendinga eftir aldarfjórðung í EES