Morgunblaðið - 21.07.2018, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 21.07.2018, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2018 ////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////// /////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////// TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Tónlist ferðast, það hefur húnalltaf gert, en á örari ogauðveldari hátt nú en áður fyrr. Frá örófi alda hafa straumar og stefnur ferðast milli Atlantsála og heilu heimsálfanna, tekið sér bólfestu í hafnarbæjum og útnár- um og lúrt þar, lengi lengi, og erf- itt að rýna í nákvæmlega hvaðan þetta kom og hvers vegna. Í dag er þetta hins vegar allt frem- ur auðrekjan- legt, á tímum of- urupplýsinga og stafrænna fót- spora. Salsa- tónlistin, hér í meðförum Íslendinga, er reyndar sjálf dæmi um þetta, er samsláttur tónlistarbrota sem koma víðsvegar vegar að. Stefnan varð reyndar til norður í New York á sjöunda ára- tugnum, fyrir tilstilli aðfluttra Kúbverja og Púertó Ríkó-búa, og blandast þar saman kúbverskt „son“ (sem er hristingur hins spænska canción og afrískrar ásláttalistar), „latín“-djass og fleiri stefnur sem væri ógjörningur að telja upp í ekki lengri grein. Salsa dreifðist síðan um báðar Amerík- urnar – og um heim allan á end- anum. Þrátt fyrir nafnið skilgreinir Salsakommúnan sig breitt, tekur í raun inn alls kyns stefnur frá Rómönsku Ameríku. Kommúnan er skipuð ungu tónlistarfólki, vin- um og félögum úr tónlistarskólum m.a. og hefur nú verið starfandi í tæp tvö ár (og fetar í fótspor sam- landa eins og Bubba, Tómasar R., Samúels J. Samúelssonar, Egils Ólafssonar og Milljónamæringana svo fáeinir séu nefndir sem hafa látið sig þennan víða geira varða). Rok í Reykjavík heitir fyrsta breiðskífa hennar og innihaldið níu frumsamin lög eftir meðlimi, öll í þessum rómanska stíl. Um leið eru textasmíðarnar undir áhrifum töfraraunsæisins sem ein- kennir bókmenntir Suður-Ameríku og er því hrært saman við grá- móskulegan, skandinavískan veru- leika og þessum tveimur ólíku menningarheimum þannig att saman. Það er á vissan hátt kími- legt þegar fólk í norðangarra reynir sig við sólbakaða takta en útkoman er oftast forvitnileg – og á stundum stórskemmtileg (sjá t.d. Hjálma). Geislaplatan sjálf er þá hin vandaðasta hvað hönnun varð- ar og meðlimir skilja það greini- lega gjörla að smáatriðin skipta öllu máli. Litir og teikningar und- irstrika þar súrrealískt texta- þemað og á útgáfutónleikum var t.d. boðið upp á kennslu í salsa- dansi. Auk þess fengu 60 fyrstu kaupendur plötunnar sérstaka Salsakommúnu-salsasósu, fram- leidda af Ó. Johnson & Kaaber. Snilld! Platan var tekin upp af Kommúnumeðliminum Baldvini Snæ Hlynssyni og Kjartani Kjart- anssyni og fóru upptökur fram í Hljóðrita að mestu leyti, og tóku tvo daga. Platan fæst í Eymunds- son, Smekkleysu, 12 tónum og Lucky Records, er einnig á Spotify og svo er sveitin með fínustu við- vist á Fésbókinni þar sem hægt er að nálgast frekari upplýsingar. Dansinn dunar Ljósmynd/Hans Vera » Þrátt fyrir nafniðskilgreinir Salsa- kommúnan sig breitt, tekur í raun inn alls kyns stefnur frá Róm- önsku Ameríku Rok í Reykjavík er ný plata með Salsakommúnunni, innihaldið lög undir ríkum áhrifum frá suðrænni sveiflu eins og nafnið gefur til kynna Sjóðheit Salsakommúnan ber nafn með rentu og er hér í miklu stuði. Verkfærakistan góða „Ég vel mér þann miðil sem mér finnst henta hugmyndinni best hverju sinni og get ómögulega gert upp á milli hvaða listform er mér kærast. Þetta er svolítið eins og að vera smiður, eiginlega þúsundþjala- smiður. Afi minn var þannig karl, hann smíðaði jafnt úr tré og járni og gat búið til allt úr öllu og engu. Mamma er líka sniðug týpa sem getur lagað allt og saumað allt mögulegt. Uppeldið og það að horfa á fólk búa til og laga hluti hafði mikil áhrif. Ég lít bara svo á að ég eigi góða verkfærakistu sem ég bæti reglulega í og nota úr henni það sem ég þarf,“ segir hún. Þótt Bjargey búi og starfi í Reykjavík, dvelur hún oft í útlönd- um og vinnur að list sinni. Núna er hún nýkomin af fjöllum, en hún starfar sem landvörður í Kverk- fjöllum og Hvannalindum í sumar. „Áður var ég í Kaupmannahöfn að undirbúa ljósmyndasýninguna og einnig að vinna hljóðverk,“ segir hún og fer nokkrum orðum um til- urð þess. Hún kynntist nefnilega hundi, Wookie, sem bjó í sama húsi og hún. Listrænar hundshrotur „Hugmyndin kom raunar þegar ég sat á kaffihúsi og las viðtal við dönsku ofurfyrirsætuna Helenu Christensen í gljásíðutímariti. Þar talaði hún um hundinn sinn, Kuma, sem er með augu eins og David Bo- wie, annað brúnt og hitt blátt. Í viðtalinu sagðist hún sakna hans svo mikið þegar hún væri á ferða- lögum að hún tæki alltaf með sér upptökur af hrotunum í honum og spilaði þær þegar hún færi að sofa á kvöldin til að róa sig. Mér fannst þetta afbragðs pæling, tók í kjölfar- ið upp hrotur Wookie og nefndi verkið „Ef það róar Helenu Chris- tensen þá getur það róað þig.““ Bjargeyju finnst mikilvægt að fram komi að hundar sleiki stund- um á sér nefið í svefni og þá mynd- ist furðulegt hljóð sem sofandi mannvera myndar ekki. En til að gera langa sögu stutta þá keypti listamaðurinn Goodiepal, vinur Bjargeyjar, hljóðverkið og skellti inn í viðvarandi innsetningu sína í danska Þjóðlistasafninu. Og þar hafa hrotur Wookie hljómað síðan. Næst liggur leið fjöllistakon- unnar til Lófóten í Noregi, þar sem hún verður í fjórar vikur með frítt spil í listinni, síðan fer hún til Riga í Lettlandi til að vinna að ljós- myndaverkefni, en áætlar að vera komin heim fyrir jól. Hvert leiðin liggur síðan er enn óráðið, en næsta víst að hún verður á vegum listarinnar. Svipur Myndin Svipur úr ljósmyndaseríunni Vasaljós er í Þjóðarlistasafni Danmerkur (Statens Museum for Kunst). Töfralæknir Draumkennd ljósmynd, sem nefnist Töfralæknir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.