Morgunblaðið - 21.07.2018, Blaðsíða 45
DÆGRADVÖL 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Hreinsaðu út úr skápum, raðaðu í
hillur og losaðu þig við það sem þú ert
hætt/ur að nota. Einhver leysir frá skjóð-
unni varðandi gamalt leyndarmál.
20. apríl - 20. maí
Naut Hafðu ekki of miklar áhyggjur af
öðru fólki því þú þarft að hafa tíma fyrir
sjálfa/n þig. Viðgerðir dragast á langinn og
best væri að forða sér að heiman á með-
an.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Leitaðu réttar þíns og farðu fram
á það sem þú átt skilið. Ef þú skrifar
markmið þín niður þá rætast þau frekar.
Þú hrósar sigri í deilumáli.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það þarf ekki alltaf einhver ósköp
til þess að lífga upp á tilveruna. Blómvönd-
ur eða gott súkkulaði getur bjargað deg-
inum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú hefur ákveðnar skoðanir á málum
í dag en kemur þér ekki að því að láta þær
í ljós. Vandaðir hlutir eldast vel.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er engin skoðun svo skotheld
að hún geti ekki breyst vegna nýrrar vitn-
eskju. Það gengur hvorki né rekur í ásta-
málunum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Að hanga í einni hugmynd um hvernig
þú eigir að upplifa ást og hamingju mun
einungis færa þér vanlíðan og hræðslu. Líf-
ið er núna, lifðu því.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Dagurinn í dag er kjörinn til
að takast á við gamalt vandamál sem þér
hefur ekki tekist að leysa. Sjaldan veldur
einn þá tveir deila og þú skalt ganga fram
fyrir skjöldu með sáttaboð.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Útbúðu skjal með öllum
draumunum þínum og kíktu oft á það
næstu þrjá daga. Sýndu þinn innri mann
og láttu verkin tala.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Vertu ekki móðgaður yfir tilboði
sem þér var gert í fullri einlægni. Láttu
það ekki fæla þig frá því að fá betra tilboð.
Reynsla þín og innsæi á eftir að fleyta þér
langt í atvinnuleitinni.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Yfirstandandi ágreiningur gæti
komið róti á heimilislífið. Stuttar ferðir,
samræður við ættingja, lestur og skriftir,
verslun og viðskipti taka tíma þinn.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þér myndi leiðast ef allt væri auð-
velt. Einbeittu þér að því að tala hreint út
um hlutina frekar en byrgja þá inni.
Stundum er snúið að gæta samræm-is í skoðunum sínum. Mynd mann-
sins af heiminum tekur til ótal aðskilj-
anlegra þátta og er vandrötuð slóð að
vera ávallt samkvæmur sjálfum sér í
öllu. Þetta veldur því að menn standa í
langvinnum innherjadeilum við sjálfa
sig. Víkverji er sjálfur sjaldnast sam-
mála samferðamönnunum og enn
sjaldnar sammála sjálfum sér.
x x x
Víkverji var í vikunni á rabbi við vin.Víkverji sagðist vera farinn að fara
svolítið í golf. Það hnussaði fyrirlitlega í
viðmælanda, sem sagði golf sport fyrir
snobbara og flottræfla. Víkverji varð
hugsi yfir þessu, því þessi sami maður
veiðir lax og skýtur hreindýr. Þegar
maður prédikar með einn fingur á lofti,
snúa enn þrír að manni sjálfum.
x x x
Víkverji fór líka í klemmu um daginnþegar hann sá auglýsingaskilti á
förnum vegi. Það var nærmynd af hvít-
fyssandi öli og á stóð eitthvað um að
ódýr bjór væri mannréttindi. Nema
hvað að bjórinn var ekki nefndur ber-
um orðum heldur beinlínis sett „það
sem má ekki tala um“ þar sem átti að
standa bjór. Þetta var svo klaufalegt að
Víkverji vissi ekki hvorum hann átti að
vorkenna, auglýsendum eða neyt-
endum. Svo ekki sé talað um túrista og
alkóhólista.
x x x
Enn var Víkverji á báðum áttum í vik-unni, önnur snýr í austur, á Þing-
velli, hin vestur á Austurvöll. Tvö sjón-
armið togast á og það er aldagamalt
reiptog. Annað er hefðin og hitt
hentugleikinn. Það hefði alveg mátt
halda upp á fullveldisafmælið í Reykja-
vík. Víkverji efast allavega ekki um að
fleiri hefðu lagt leið sína þangað, enda
hún Snorrabúð hvort eð er hálfgerður
stekkur.
x x x
Víkverji á sem sagt völina og kvölina.Það er sennilega hollast að taka
síður afstöðu til dægurmála. Það er
allavega ekki sönnum golfara sæmandi
að vera sífellt að mynda sér skoðanir á
pólitískum hitamálum. Hann unir bara
vel við sinn hlut, á golfvellinum, ævin-
lega við sama heygarðshornið.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Því að hvar sem tveir eða þrír eru
saman komnir í mínu nafni þar er ég
mitt á meðal þeirra.
(Matteusarguðspjall 18.20)
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Oft hann til úr bréfi bjó.
Betri þó úr tré á sjó.
Hann er dáta höfuðfat.
Á höfði flugfreyjunnar sat.
Sigmar Ingason svarar:
Bréfbátarigningin – bók eftir Gyrði.
Bátur í óskabyr siglir á firði.
Freyjurnar í háloftunum festa á sig báta
finna má þá líka oft á hausum dáta.
Rétt ég tel að ráðin sé nú gáta.
Guðrún Bjarnadóttir á þessa
lausn:
Úr pappír bát ég bjó.
Um borð í Húna spjó.
Með dátabát faldi fló
flugþjónn með bát og hló.
Helgi Seljan leysir gátuna þann-
ig:
Úr bréfi gjörði bátinn sinn,
en betri í þetta reyndist eik.
Dáta berandi báta finn,
brosmildar freyjur eiga leik.
Helgi R. Einarsson á þessa lausn:
Forðum til úr bréfi bjó,
nú bruna á honum kátur.
Held ég gruflað hafi nóg.
Hér er lausnin bátur.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Úr bréfi oft varð bátur til.
Bát úr tré þó frekar vil.
Dátar báru bát með sann.
Bera flugfreyjurnar hann.
Þá er limra:
Benóný bátasmiður
er búinn að vera, því miður.
Lagður var’ann
á Landspítalann,
og læknar skáru hann upp og niður.
Síðan kemur Guðmundur með
nýja gátu:
Úr sér regni skýin skvetta,
skerpir það mitt hugarflug
er á kollinn dropar detta.
Dettur mér nú gáta í hug:
Fjarðarmynni má sá vera.
Maður varla nokkur hér.
Í þeim rándýr börn sín bera.
Á byssuhlaupi jafnan er.
Jón S. Bergmann orti:
Auður dramb og falleg föt
fyrst af öllu þérist
og menn sem hafa mör og kjöt
meir en almennt gerist.
Hjálmar Árnason kvað:
Auðvaldskúgun, ill og hörð,
orðin nú að vana.
Auðnurúin er vor jörð,
ef menn trúa á hana.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Hvað skulu börn í bát hjá mér?
Í klípu
BACHELORETTE-ÞÁTTURINN Í
HEIMAHÚSI.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞETTA ER FYRRVERANDI KÆRASTINN
MINN.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... hverful, ef hún er
ekki hin eina sanna.
ÉG GEF HONUM
TVÖ ROP
ÉG VONA AÐ ÞÉR HAFI
LÍKAÐ MATURINN
EKKI
SLÆMT
BARNIÐ MITT,
JÖRÐIN SNÝST!!
(KANNSKI ÆTTIRÐU AÐ FELA
FLÖSKUGJÖFINA OKKAR…)
GOTT –
ÞÚ KOMST.