Morgunblaðið - 21.07.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2018
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150
Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju
Fyrir passann, ökuskírteinið,
ferilskrána o.fl.
Skjót og hröð
þjónusta
Engar tímapantanir
Góð passamynd
skiptir máli
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Nýjar meðalhraðamyndavélar á
Grindavíkurvegi og í Norðfjarðar-
göngum verða teknar í notkun í
haust. Þetta staðfestir Guðrún
Hauksdóttir, lögreglufulltrúi í
hraðamyndavéla- og sektadeild lög-
reglunnar á Vesturlandi, í samtali
við Morgunblaðið.
Þetta verður í fyrsta sinn sem
notast verður við meðalhraða-
myndavélar hér á landi, en tæknin
hefur mikið verið notuð í Kanada og
á Ítalíu.
Guðrún segir að vonir séu bundn-
ar við að meðalhraðamyndavélar
muni með tímanum leysa punkt-
mælingamyndavélar af hólmi.
„Ég held að það sé von manna að
næst þegar vélar verða endurnýj-
aðar verði þær með þessum hætti,“
segir Guðrún og bætir við að með-
alhraðamyndavélar séu talsvert ná-
kvæmari en sú tækni sem notuð er í
dag.
„Meðalhraðamyndavélar virka
þannig að tveir staurar með mynda-
vélum eru settir upp á ákveðnum
vegarkafla, í þessu tilfelli á Grinda-
víkurvegi og í Norðfjarðargöngum.
Báðar myndavélarnar eru með
skynjara sem nemur það þegar bílar
keyra framhjá og geta með því móti
reiknað hversu langan tíma það tek-
ur bíla að komast á milli stauranna.
Þannig er hægt að finna meðalhraða
ökumanns á vegarkaflanum auk
þess sem þetta kemur í veg fyrir að
fólk geti hægt á sér rétt áður en það
kemur að myndavél og sloppið
þannig með sekt,“ segir Guðrún.
Hefur gefið góða raun á Ítalíu
Meðalhraðamyndavélarnar sem
notast verður við hér á landi eru frá
ítalska fyrirtækinu Kria, sem varð
hlutskarpast í útboði Vegagerðar-
innar. Guðrún segir að myndavél-
arnar hafi gefið góða raun á Ítalíu.
„Svona meðalhraðaeftirlit hefur
mikið verið notað á Ítalíu og öðrum
löndum Evrópu. Þetta hefur virkað
vel erlendis og þess vegna hefur
verið vilji fyrir því að taka þetta upp
hér heima,“ segir Guðrún.
Spurð hvenær megi ráðgera að
myndavélarnar verði teknar í notk-
un vill Guðrún ekki gefa upp ná-
kvæma dagsetningu en býst við því
að tæknin verði komin í gagnið á
næstu mánuðum.
Mæla meðal-
hraða bifreiða
Nýjar hraðamyndavélar væntanlegar
Hraðamyndavél Nýjar myndavélar
verða teknar í notkun í haust.
Forn kirkjugarður fannst á Utan-
verðunesi í Skagafirði við forn-
leifauppgröft í sumar. Gröfturinn er
hluti Skagfirsku kirkju- og byggða-
sögurannsóknanna í Hegranesi, sem
fara nú fram fjórða árið í röð.
Tilgangur rannsóknanna er að
skoða aldur og dreifingu elstu
byggðar í Hegranesi og tengsl
byggðaþróunar við kirkjusögu
svæðisins. Hefur rannsóknin að
mestu leyti snúið að uppgreftri
kirkjugarðs í Keflavík í Hegranesi.
Fundu kistu með beinagrind
„Þetta er hápunkturinn á rann-
sókn okkar. Þarna erum við að stað-
festa annan kirkjugarð sem getið er
í fornbréfi frá 14. öld. Það voru sögu-
sagnir um hvar hann væri, en við
fundum hann með jarðsjármæl-
ingum síðasta sumar,“ segir Guðný
Zoëga, deildarstjóri fornleifadeildar
Byggðasafns Skagfirðinga.
Könnunarskurður var tekinn og í
ljós kom kista með beinagrind.
„Þetta er 11. aldar heimiliskirkju-
garður með kirkju, sem virðist hafa
verið á hverjum bæ á þessu svæði.
Það eru sex bæir þarna í röð sem
voru með kirkju,“ segir Guðný. Ekki
verður grafið meira á Utanverðu-
nesi, en könnunarskurðurinn var að-
eins til staðfestingar á tilvist kirkju-
garðsins.
Rannsókninni lýkur í ár og verður
restin af árinu notuð til að fara yfir
sýni og greina gögn síðustu fjögurra
ára. jbe@mbl.is
Kirkjugarður fannst á
Utanverðunesi í Skagafirði
Ljósmynd/Byggðasafn Skagfirðinga
Gröf Á myndinni sjást útlínur
leggjabeina og kistu í gröf.
Kirkju- og byggðasögurannsókninni lýkur á árinu
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Áhrif kjarabaráttu ljósmæðra má
nú sjá og finna á fæðingardeildum
um land allt og segjast ljósmæður á
öllum hornum landsins finna fyrir
auknu álagi. Yfirvinnubann hefur
nú staðið yfir í rúma þrjá sólar-
hringa og hefur meðgöngu- og
sængurlegudeild Landspítalans í
Reykjavík verið lokað.
Var kölluð inn
„Það hefur bara gengið vel. Við
reynum bara að taka á þessu eins og
við getum,“ sagði Anna Björnsdótt-
ir, deildarstjóri á kvennadeild Heil-
brigðisstofnunar Vesturlands á
Akranesi, í samtali við Morgunblað-
ið í gær. Anna byrjaði í sumarfríi á
fimmtudag en var kölluð inn á vakt í
gær sökum anna. „Það var bara ein
ljósmóðir á vakt. Hún þurfti að fara
í keisara þannig að einhver þurfti að
vera hjá konunni sem var í fæð-
ingu,“ sagði Anna.
Nína Hrönn Gunnarsdóttir,
framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá
Heilbrigðisstofnun Austurlands,
hefur svipaða sögu að segja. „Það er
aukið álag. Konur sem myndu ann-
ars fara suður eða norður eru síður
að gera það.“ Hún segir þó starf-
semina hingað til hafa gengið stór-
slysalaust fyrir sig, en síðasta fæð-
ing fór þar fram í gærmorgun og er
von á fleiri verðandi mæðrum á
næstu dögum.
Ekki komist hjá yfirvinnu
Spurð hvort áhrifin hafi náð til
fæðingardeildarinnar á Ísafirði seg-
ir Erla Rún Sigurjónsdóttir, ljós-
móðir hjá Heilbrigðisstofnun Vest-
fjarða: „Já, að einhverju leyti gera
þau það. Meðan ég er í burtu er
bara önnur fyrir mig.“
Hún bætir einnig við:
„Undanþágunefnd
gefur að svo miklu
leyti undanþágur
fyrir okkur. Það er
ekki hægt að öllu
jöfnu að reka deild-
ina án yfirvinnu. Það
er yfirvinna þar alla
daga. Á meðan
það er fæðing þá
er hún kláruð.“
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Nýbökuð Fríða Rún Guðjónsdóttir og Árni Gunnlaugsson með dóttur sína sem fæddist í gærmorgun á Akureyri.
Hún var 15 merkur og 47 sentímetrar, tekin með keisaraskurði á fæðingardeildinni. Þau eru búsett á Akureyri.
Ljósmæður á hlaup-
um um allt land
Einn dag í sumarfrí Bannið stöðvar ekki fæðingar
„Breytingar á þjónustu við
þungaðar og fæðandi konur frá
1. júlí eru víðtækar. Þjónustan
er minni, konur eru sendar
heim strax og öruggt er eftir
fæðingu og í sumum tilvikum
hafa konur verið fluttar lands-
hluta á milli til fæðinga eða
annarra meðferða sem Land-
spítali veitir,“ segir Páll Matt-
híasson, forstjóri Landspítal-
ans, m.a. í pistli til starfsfólk
spítalans í gær.
Þar lýsir hann því hvernig
kjaradeilan hafi færst á nýtt og
alvarlegra stig aðfaranótt mið-
vikudags þegar yfirvinnuverk-
fall bættist við uppsagnir. Lífs-
nauðsynlegt sé að leysa
deiluna sem fyrst.
Forstjórinn
áhyggjufullur
LANDSPÍTALINN
Páll Matthíasson
Elísabet Ronaldsdóttir kvikmynda-
gerðarkona hyggst skila heiðurs-
merki hinnar íslensku fálkaorðu
sem hún fékk árið 2016. Ástæðan er
sú að Pia Kjærsgaard, forseti
danska þjóðþingsins, var sæmd
stórriddarakrossi hinnar íslensku
fálkaorðu. Í bréfi til orðunefndar-
innar ritar hún að Pia sé „trúlega
hættulegasti og mest sjarmerandi
kynþáttahatari norrænna stjórn-
mála“.
„Það er nú einu sinni þannig að
kynþáttahatur er á uppleið um alla
Evrópu og Norður-Ameríku. Það
eru augljós merki um þetta og það
er hræðileg tilhugsun að við séum
að normalísera slíkar hugmyndir.
Undir merkjum formlegheita og
hugsunarleysis
erum við að efla
þessar hug-
myndir og gera
þær gildandi,“
segir Elísabet við
Morgunblaðið.
„Ef fólki finnst
ég sýna Piu, orð-
unni, dönsku eða
íslensku þjóðinni
vanvirðingu, þá
spyr ég hvaða virðingu við séum að
sýna Íslendingum sem eru af öðru
bergi brotnir, með annan húðlit en
hvítan, samkynhneigðir o.s.frv.,
með því að heiðra einhvern með
hugmyndir á borð við þær sem Pia
Kjærsgaard hefur?“
Elísabet skilar fálkaorðunni vegna Piu
Elísabet
Ronaldsdóttir