Gerðir kirkjuþings - 01.01.2017, Síða 7
7
áður en tilnefning hefst, sbr. 3. mgr. 10. gr. Kjörstjórn skal þegar taka til meðferðar athuga-
semdir sem henni berast vegna kjörskrár og gera viðeigandi leiðréttingar á henni. Kjörstjórn
skal í síðasta lagi gera leiðréttingar á kjörskrá tveimur sólarhringum áður en tilnefning
hefst. Ef kjörstjórn verður þess áskynja að villa hafi átt sér stað við kjörskrárgerðina skal
hún leiðrétt. Óheimilt er að breyta kjörskrá ef skilyrði 5. gr. hafa ekki verið uppfyllt fyrir
þann tíma sem þar greinir.
□Berist kjörstjórn athugasemd þess efnis að nafn skuli tekið af eða sett á kjörskrá skal
það þegar, sannanlega, tilkynnt hlutaðeigandi nema athugasemdin stafi frá honum
sjálfum. Skal hlutaðeigandi veittur frestur, eftir því sem tími og atvik leyfa, til að koma
að athugasemdum. Kjörstjórn skal þegar í stað tilkynna hlutaðeigandi um niðurstöðu
málsins með sannanlegum hætti.
□Kjörstjórn skal fram að þeim degi er tilnefning hefst leiðrétta kjörskrá ef henni berst
vitneskja um andlát manns sem er á skránni.
□Ákvörðun kjörstjórnar um leiðréttingu á kjörskrá má skjóta til yfirkjörstjórnar
þjóðkirkjunnar. Skal niðurstaða yfirkjörstjórnar liggja fyrir ekki síðar en einum sólarhring
áður en tilnefning hefst.
10. gr.
Tilnefning til biskups Íslands og vígslubiskups.
■Hver vígður maður sem kosningarréttar nýtur skv. 3. gr. hefur rétt á að tilnefna allt að
þrjá einstaklinga sem uppfylla skilyrði 1. gr. til kjörs biskups Íslands.
□Hver vígður maður sem kosningarréttar nýtur skv. 4. gr. hefur rétt á að tilnefna allt að
þrjá einstaklinga sem uppfylla skilyrði 1. gr. til kjörs vígslubiskups.
□Tilnefning skv. 1. og 2. mgr. skal hefjast a.m.k. fimm vikum áður en kjör til biskups
Íslands eða vígslubiskups hefst.
11. gr.
Framkvæmd og fyrirkomulag tilnefninga.
■Tilnefningin skal vera rafræn og standa í fimm sólarhringa samfellt. Skal henni lokið
a.m.k. fjórum vikum áður en kosning biskups Íslands eða vígslubiskups hefst.
□Kjörstjórn sér um undirbúning og ákveður nánari framkvæmd tilnefningarinnar, en
biskupsstofa skal sjá til þess að aðgangur sé tryggur að öruggu kosningakerfi til að nota
við tilnefninguna. Tryggt skal að kerfi það sem notað er sé þannig úr garði gert að ekki
sé hægt að breyta tilnefningu án þess að það sé greinanlegt. Óheimilt er að kanna hvern
viðkomandi tilnefndi í kerfinu.
□Við tilnefninguna skal viðkomandi nota almenna innskráningarþjónustu sem kjörstjórn
ákveður, s.s. rafræn skilríki eða Íslykil Þjóðskrár Íslands og skal hann auðkenna sig á
fullnægjandi hátt áður en hann getur nýtt rétt sinn til að tilnefna.
□Kjörstjórn auglýsir í prentuðum dagblöðum og á vefsvæði þjóðkirkjunnar hvenær til-
nefning hefst og hvenær henni lýkur. Auglýsing skal birt a.m.k. viku áður en tilnefning hefst.
□Allar upplýsingar um undirbúning og framkvæmd kosninga skulu vera aðgengilegar á
vefsíðu þjóðkirkjunnar, á biskupsstofu og hjá próföstum.