Gerðir kirkjuþings - 01.01.2017, Side 7

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2017, Side 7
7 áður en tilnefning hefst, sbr. 3. mgr. 10. gr. Kjörstjórn skal þegar taka til meðferðar athuga- semdir sem henni berast vegna kjörskrár og gera viðeigandi leiðréttingar á henni. Kjörstjórn skal í síðasta lagi gera leiðréttingar á kjörskrá tveimur sólarhringum áður en tilnefning hefst. Ef kjörstjórn verður þess áskynja að villa hafi átt sér stað við kjörskrárgerðina skal hún leiðrétt. Óheimilt er að breyta kjörskrá ef skilyrði 5. gr. hafa ekki verið uppfyllt fyrir þann tíma sem þar greinir. □Berist kjörstjórn athugasemd þess efnis að nafn skuli tekið af eða sett á kjörskrá skal það þegar, sannanlega, tilkynnt hlutaðeigandi nema athugasemdin stafi frá honum sjálfum. Skal hlutaðeigandi veittur frestur, eftir því sem tími og atvik leyfa, til að koma að athugasemdum. Kjörstjórn skal þegar í stað tilkynna hlutaðeigandi um niðurstöðu málsins með sannanlegum hætti. □Kjörstjórn skal fram að þeim degi er tilnefning hefst leiðrétta kjörskrá ef henni berst vitneskja um andlát manns sem er á skránni. □Ákvörðun kjörstjórnar um leiðréttingu á kjörskrá má skjóta til yfirkjörstjórnar þjóðkirkjunnar. Skal niðurstaða yfirkjörstjórnar liggja fyrir ekki síðar en einum sólarhring áður en tilnefning hefst. 10. gr. Tilnefning til biskups Íslands og vígslubiskups. ■Hver vígður maður sem kosningarréttar nýtur skv. 3. gr. hefur rétt á að tilnefna allt að þrjá einstaklinga sem uppfylla skilyrði 1. gr. til kjörs biskups Íslands. □Hver vígður maður sem kosningarréttar nýtur skv. 4. gr. hefur rétt á að tilnefna allt að þrjá einstaklinga sem uppfylla skilyrði 1. gr. til kjörs vígslubiskups. □Tilnefning skv. 1. og 2. mgr. skal hefjast a.m.k. fimm vikum áður en kjör til biskups Íslands eða vígslubiskups hefst. 11. gr. Framkvæmd og fyrirkomulag tilnefninga. ■Tilnefningin skal vera rafræn og standa í fimm sólarhringa samfellt. Skal henni lokið a.m.k. fjórum vikum áður en kosning biskups Íslands eða vígslubiskups hefst. □Kjörstjórn sér um undirbúning og ákveður nánari framkvæmd tilnefningarinnar, en biskupsstofa skal sjá til þess að aðgangur sé tryggur að öruggu kosningakerfi til að nota við tilnefninguna. Tryggt skal að kerfi það sem notað er sé þannig úr garði gert að ekki sé hægt að breyta tilnefningu án þess að það sé greinanlegt. Óheimilt er að kanna hvern viðkomandi tilnefndi í kerfinu. □Við tilnefninguna skal viðkomandi nota almenna innskráningarþjónustu sem kjörstjórn ákveður, s.s. rafræn skilríki eða Íslykil Þjóðskrár Íslands og skal hann auðkenna sig á fullnægjandi hátt áður en hann getur nýtt rétt sinn til að tilnefna. □Kjörstjórn auglýsir í prentuðum dagblöðum og á vefsvæði þjóðkirkjunnar hvenær til- nefning hefst og hvenær henni lýkur. Auglýsing skal birt a.m.k. viku áður en tilnefning hefst. □Allar upplýsingar um undirbúning og framkvæmd kosninga skulu vera aðgengilegar á vefsíðu þjóðkirkjunnar, á biskupsstofu og hjá próföstum.

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.