Gerðir kirkjuþings - 01.01.2017, Qupperneq 20
20 21
fólks sem er af ólíkum menningarsvæðum og af mismunandi trúarbrögðum. Það sem
sameinar áhuga þeirra á málefninu er sú skoðun að þetta sé besta leiðin til að gera heiminn
betri. Að hvetja fólk til að temja sér samúð og umburðarlyndi sé einföld en áhrifarík leið
til að breyta heiminum.
Væri þetta ekki ágæt hugmynd inn í íslenskt samfélag? Hvort sem við myndum vilja
tengjast þessu tiltekna verkefni eða ekki þá finnst mér hugmyndin spennandi og af þessu
fólki má læra. Getur verið að búið sé að draga svo mikið úr kennslu í kristinfræði og
áhugi á trúarbrögðum það mikið á undanhaldi að fólk muni ekki sérstaklega eftir gullnu
reglunni? Sumir segja að ein elsta ritaða heimildin um gullnu regluna sé að finna í skrifum
Konfúsíusar fimm öldum fyrir Krist. Aðrir vísa til heimilda um að reglan hafi verið þekkt
hjá forn Egyptum. Við vitum að Gyðingar þekktu gullnu regluna og við lærðum sennilega
flest um hana í kristinfræðitímum og í sunnudagaskóla í barnæsku. M.ö.o. gullna reglan
hefur verið þekkt mjög lengi, hjá mörgum þjóðum. En eitt er að þekkja og vita, annað er
að gera. Trúarbrögð, þar með talin okkar, eru meira og meira að verða hugmyndafræðilegt
samtal frekar en skuldbinding um tiltekna breytni. Gott að kunna betra að gera.
Ég held að flest okkar séum þeirrar skoðunar að við höfum gott af því að vera minnt
á þá góðu leiðsögn sem við fáum í messu, þegar við lesum biblíuna, eða eigum samfélag
við gott fólk. Væri okkur ekki öllum holt að vera oftar minnt á gullnu regluna og það að
samúð og umburðarlyndi eru lykill að góðu samfélagi, hornsteinn góðra samskipta. Það
þarf æfingu og ástundun til að temja sér nýja siði eða bæta breytni sína.
Getum við bætt örlítið íslenskt samfélag með því að fara í átak um að minna fólk á að,
Allt sem þér viljið að aðrir menn geri yður, það skuluð þér og þeim gera. Væri það verðugt
verkefni fyrir hina íslensku þjóðkirkju að hafa forgöngu um? Fá fleiri til að vera með.
Leggja upp í leiðangur til að tryggja að fólk þekki regluna, væri minnt á hana reglulega og
fengi tækifæri til að vera liðsmenn í slíkri vegferð. Væri áhugavert að innleiða “Charter for
compassion” á íslandi! Einhverskonar samkomulag um samúð og umburðarlyndi. Hafa
þetta einfalt og setja hugmyndina fram af auðmýkt.
Það eru 18 mál á dagskrá þessa kirkjuþings. Sum þeirra jafnvel gamlir kunningjar.
Fjórða mál kirkjuþings er tillaga að frumvarpi um ný þjóðkirkjulög. Það hefur t.d. verið á
dagskrá kirkjuþings frá því áður en mörg okkar vorum fyrst kosin á kirkjuþing.
Að lokum vil ég þakka öllu því frábæra fólki sem hefur undirbúið þetta þing. Sérstaklega
starfsfólki biskupsstofu og kirkjuráðs, starfsfólki garðasóknar og svo auðvitað öllum
kirkjuþingsfulltrúum sem hafa komið að undirbúningnum.
Ég vona að við eigum gott og uppbyggilegt samtal á þessu þingi. Komumst að niðurstöðu
sem er góð sátt um, kirkju og kristni til heilla.
Takk fyrir.
.