Gerðir kirkjuþings - 01.01.2017, Page 34
34 35
Sterkari staða á Kirkjuþingi
Góð reynsla er komin á starf kirkjuþings unga fólksins en það kom saman í áttunda skiptið
í ár. Kirkjuþing unga fólksins ályktaði að fulltrúi KUF á kirkjuþingi hafi atkvæðisrétt í stað
þess að vera áheyrnafulltrúi. Forsetar KUF hafa hingað til haft málfrelsi og tekið virkan
þátt í störfum kirkjuþings. Þingið taldi eðlilegt að gefa þeim frekari tækifæri á að hafa
mótandi áhrif á störf þingsins og niðurstöður með því að þeir öðlist atkvæðisrétt á þinginu.
Kirkjuráð sendi kirkjuþingi unga fólksins þakkir fyrir ábendingar og góðar tillögur.
Lýkur hér umfjöllun um kirkjuþing unga fólksins og ályktanir þess.
Verkefni kirkjuráðs
Fyrsti fundur kirkjuráðs eftir 54. kirkjuþing var 257. fundur og var haldinn hinn 29.
nóvember á síðasta ári. Alls urðu fundir kirkjuráðs 15 á kirkjuþingsárinu eins og áður hefur
komið fram og var síðasti fundur fyrir núverandi kirkjuþing sá (2)71. í röðinni. Í skýrslu
þessari verður vísað til fundanna um gjörðir kirkjuráðs í númeraröð og til hægðarauka
verður einungis vísað til þess tugar sem þeir tilheyra. Þannig verður 257. fundur nefndur
57. fundur, 258. fundur verður nefndur 58. fundur o.s.frv. Einungis verður fjallað um
mál sem tekin voru á dagskrá og hlutu þar afgreiðslu af hálfu ráðsins eða skuldbindandi
ákvörðun var tekin um.
Verkefni kirkjuráðs á fasteignasviði
Verkefni fasteignasviðsins voru til umfjöllunar á þrettán fundum kirkjuráðs á starfsárinu.
Á (2)57. fundi var lögð fram stefnumörkun vígslubiskups og stjórnar vegna vinnu við
deiliskipulag fyrir Skálholtsstað og Skálholtsjörðina. Kirkjuráð ályktaði að gerð verði
áætlun í tengslum við uppbyggingu Skálholtsstaðar sem ferðamannastaðar þar sem fram
kæmu markmið um fjölda ferðamanna, þær tekjur sem hafa mætti af slíkri starfsemi og
þær endurbætur sem gera þarf til að þeim markmiðum yrði náð. Kirkjuráð samþykkti
að deiliskipulagsvinnu verði fram haldið. Kirkjuráð samþykkti jafnframt að unnar verði
tillögur að breyttri nýtingu á húsakosti staðarins skv. tillögum þar um. Hallveigartröð 4,
Reykholti, forkaupsréttur Kirkjumálasjóðs. Eignin er í sölumeðferð en Kirkjumálasjóður
á forkaupsrétt á henni skv. lóðaleigusamningi. Samþykkt var að fallið verði frá
forkaupsréttinum.
Á (2)58. fundi var samþykkt að veita eiganda Löngumýrarskóla í Skagafirði leyfi til að
reisa sólskála við húsið.
Á (2)59. fundi var lögð fram uppsögn ábúðar á jörð Kirkjumálasjóðs að Hraungerði í
Flóahreppi. Kirkjuráð fól framkvæmdastjóra og fasteignasviði ásamt kirkjustarfshópi að
kanna möguleika á nýtingu jarðarinnar. Þá var samþykkt að fasteignin Laugavegur 31 yrði
sett á söluskrá.
Á (2)61. fundi var ákveðið að hafna öllum tilboðum sem bárust í fasteign Kirkjumálasjóðs
að Laugavegi 31.