Gerðir kirkjuþings - 01.01.2017, Síða 36

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2017, Síða 36
36 37 Verkefni kirkjuráðs á sviði fjármála Verkefni kirkjuráðs á sviði fjármála voru til umfjöllunar á alls ellefu fundum á starfsárinu. Á (2)58. fundi voru lagðar fram fjárhagsáætlanir biskupsstofu og sjóða og stofnana kirkjunnar. Kirkjuráð samþykkti þær með fyrirvara um framlög á fjárlögum. Áætlanirnar voru birtar sem fylgiskjöl með fundargerð fundarins. Á (2)59. fundi var tekin fyrir fundargerð fjármálahóps kirkjuráðs frá 12.01.2017. Tekinn var fyrir 3. liður dagskrár fundarins, styrkbeiðni frá Hinu íslenska biblíufélagi. Fjármálahópur kirkjuráðs lagði til við kirkjuráð að Hinu íslenska biblíufélagi yrði veittur styrkur að fjárhæð 1,5 m.kr. til að styðja við rekstur félagsins. Styrknum fylgdu einlægar óskir um að félaginu megi takast að hámarka árangur sinn af hinu mikilvæga starfi félagsins. Styrknum fylgdu jafnframt óskir um að félagið leggi allan kraft sinn í að ná til þeirra sem erfa munu land, með því að huga að skipulagi sínu og starfsaðferðum í því skyni að virkja þá krafta atvinnulífsins sem eru hliðhollir og vinveittir kirkjunni og þeim kjarna hennar sem biblían geymir og geta hugsað sér að koma til liðs við félagið. Styrkveitingin var samþykkt með þessari ályktun. Tekinn var fyrir 4. liður, framlög til Hólastaðar. Framlag til Guðbrandsstofnunar að fjárhæð 1,5 millj. kr. virtist hafa fallið niður í fjárhagsáætlun Kristnisjóðs fyrir árið 2017. Samþykkt var að leiðrétta úthlutunina og veita 1,5 m.kr. framlag til Guðbrandsstofnunar. Tekinn var fyrir 5. liður, fjármálahópur vakti athygli á að niðurfelling á eftirstöðvum skuldar Skálholts við Kirkjumálasjóð sem samþykkt var árið 2014 að fjárhæð um 8,7 millj. kr. hafi fallið niður í fjárhagsáætlun Kirkjumálasjóðs fyrir árið 2017. Samþykkt var að bæta framlaginu inn í áætlun sjóðsins. Tekinn var fyrir 7. liður, framlag til skírnarfræðslunefndar. Kirkjuráð samþykkti framlag að fjárhæð 200.000 kr. Fundargerð fjármálahóps þannig samþykkt. Þá voru teknar fyrir fjárhagsáætlanir biskupsstofu, stofnana og sjóða 2017, endurskoðun í ljósi afgreiðslu fjárlaga 2017 og fjáraukalaga II 2016. Lagt var fram yfirlit sem sýndi uppgjör gagnvart fjárheimildum, bráðabirgðastaða 2016, áhrif á áætlanir 2017. Kirkjuráð ályktaði að ekki væri ástæða til að endurskoða fjárhagsáætlanir þær sem samþykktar voru á desemberfundi í ljósi stöðunnar en vísaði til tillögu fjármálahóps um aukaúthlutun úr Jöfnunarsjóði sókna. Á (2)62. fundi var tekin fyrir fundargerð fjármálahóps 10.03.2017. Fyrir var tekið 1. mál, endurgreiðsla á framlagi Jöfnunarsjóðs til biskupsstofu. Kirkjuráð ályktaði endurgreiðslan eigi sér stað enda standi allar forsendur til þess með því að ríkissjóður hefur endurgreitt biskupsstofu það framlag sem var forsenda framlags Jöfnunarsjóðs sókna til biskupsstofu. Á (2)63. fundi var tekin fyrir málshöfðun Halldórs Gunnarssonar og Stórólfshvolssóknar á hendur biskupi Íslands og áfrýjunarnefndar þjóðkirkjunnar til ógildingar á úrskurði áfrýjunarnefndarinnar í máli sóknarinnar vegna úthlutunar styrkja úr Jöfnunarsjóði sókna. Kirkjuráð samþykkti að fela Gesti Jónssyni hrl. að annast málsvörnina. Á (2)64. fundi var lögð fram kostnaðaráætlun vegna gerðar starfsreglna. Gert er ráð fyrir að kostnaðurinn muni nema 1,5 m.kr. Kirkjuráð samþykkti áætlunina og ályktaði að gætt yrði ýtrasta aðhalds og fastráðið starfslið kirkjuráðs nýtt svo sem kostur er til að halda niðri kostnaði. Þá var tekin fyrir breyting á fjárhagsáætlun Kirkjumálasjóðs vegna aukakirkjuþings, verkefna löggjafarnefndar og vígslubiskupskosningar. Lagt var fram yfirlit
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Gerðir kirkjuþings

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.