Gerðir kirkjuþings - 01.01.2017, Side 37
37
um kostnað vegna verkefna sem ekki var gert ráð fyrir á fjárhagsáætlun Kirkjumálasjóðs
en fallið hafa til eða munu falla til vegna ákvarðana sem teknar hafa verið. Kirkjuráð
ályktar að gert verði ráð fyrir 14 m.kr. hækkun útgjalda Kirkjumálasjóðs vegna þessa auk
kostnaðar vegna gerðar starfsreglna við endurskoðun fjárhagsáætlunar sjóðsins.
Á (2)65. fundi var tekin fyrir fundargerð fjármálahóps frá 8. maí 2017. Tekið var fyrir 3.
mál, kirkjuráð ákvað að veita 2,5 m.kr. styrk vegna reksturs og sumarbúðastarfs á vegum
Kirkjumiðstöðvar Austurlands og vísar málinu til endurskoðunar rekstraráætlunar
Kirkjumálasjóðs. Tekið var fyrir 5. mál. Kirkjuráð bendir á að sóknir hafa verið sameinaðar
og reynsla af því hefur verið mjög góð. Kirkjuráð samþykkir eftirfarandi tillögu
fjármálahóps: Kirkjuþing 2016 hvatti til þess að gert yrði átak sem miðaði að því að hvetja
sóknir til samstarfs og sameiningar. Kirkjuráð telur að með tilliti til stöðu Jöfnunarsjóðs
sé tímabært að beita Jöfnunarsjóði í þessu skyni ef þörf krefur. Hlutverk Jöfnunarsjóðs
er með þeim hætti að stuðningur við sameiningar rúmast innan þess, enda er sjóðnum
meðal annars ætlað að leitast við að jafna aðstöðu og styrkja sóknir þar sem sóknargjöld
nægja ekki fyrir nauðsynlegum útgjöldum. Kirkjuráð vekur athygli forráðamanna sókna
þjóðkirkjunnar á eftirfarandi: Sóknir sem hyggja á sameiningu geta óskað eftir stuðningi
Jöfnunarsjóðs með það að markmiði að jafna aðstöðu sóknanna til sameiningar. Úthlutun
til sameiningar sé rökstudd og afgreidd til eins árs í senn eins og reglur sjóðsins standa
til, að því gefnu að ákvörðun sókna hafi verið tekin með réttum hætti. Jafnframt er
Jöfnunarsjóði heimilt samkvæmt reglugerð um sjóðinn að veita vilyrði um áframhaldandi
stuðning til allt að fjögurra ára. Fundargerðin samþykkt með þessari ályktun.
Á (2)66. fundi var tekin fyrir fjármálaáætlun ríkisins 2018-2022, afgreiðsla Alþingis og
næstu skref. Lagður var fram útdráttur úr nefndaráliti meirihluta fjárlaganefndar Alþingis
þar sem fram kemur að nefndin leggur áherslu á að samningar náist um fjárhagsleg
samskipti ríkis og kirkju fyrir gerð fjárlaga fyrir árið 2018. Kirkjuráð ályktaði að taka undir
þessa ályktun Alþingis og lýsir yfir vilja sínum til að leggja samninganefnd kirkjunnar sem
kjörin var af kirkjuþingi allt það lið sem það hefur yfir að ráða til að þetta megi takast.
Á (2)67. fundi var tekið fyrir málefni Ástjarnarkirkju, erindi varðandi lúkningu á
fjármögnun byggingarframkvæmda við safnaðarheimili. Erindið var áður á dagskrá
kirkjuráðs á (2)66. fundi. Það var endurflutt þar eð taka þurfti ákvörðun um lokagreiðslu
á styrk til sóknarinnar vegna byggingar safnaðarheimilis sem jafnframt verður nýtt til
allra kirkjulegra athafna í sókninni. Fram var lagt erindi sóknarnefndarinnar dags. 22.
maí 2017. Jafnframt var lagt fram minnisblað framkvæmdastjóra dags. 14. júlí þar sem
fram kom að þann dag var lokaúttekt framkvæmdarinnar þar sem mannvirkið var afhent
sóknarnefndinni fullbúið af hendi verktakans. Fram kom að framkvæmdastjóri kirkjuráðs
og verkefnisstjóri fasteignasviðs hefðu verið viðstaddir úttektina. Ekkert hafi þar komið
fram sem gaf til kynna að verkkaupi hefði athugasemdir við að taka við mannvirkinu sem
fullbúnu. Kirkjuráð samþykkti að lokagreiðsla styrks Jöfnunarsjóðs sókna til sóknarinnar
vegna framkvæmdarinnar, 30 m.kr. yrði innt af hendi.
Á (2)68. fundi var tekin fyrir áætlun um kostnað við nýjan vef kirkjunnar, stofn kostnaðar-
áætlun og ritstjórnarstefna. Málið hafði áður verið til umfjöllunar á (2)66. fundi þar sem