Gerðir kirkjuþings - 01.01.2017, Síða 47
47
Kristnisjóður
Í drögum að rekstraráætlun Kristnisjóðs er gert ráð fyrir að framlag ríkissjóðs verði 131,2
m.kr. sem skiptist þannig að framlag fjárlaga verði 75 m.kr. en það er samkvæmt frumvarpi
til fjárlaga ársins 2018. Því til viðbótar komi framlag að fjárhæð 56,2 m.kr. sem gerð hefur
verið tillaga um í drögum að frumvarpi til fjáraukalaga yfirstandandi árs en sú fjárheimild
verður færð til næsta árs. Þá er gerð tillaga um ráðstöfun á 117,9 m.kr. af fjárheimildum
sjóðsins til reksturs og styrkja. Því er gert ráð fyrir að óráðstafað af tekjum sjóðsins verði
13,3 m.kr.
Jöfnunarsjóður sókna
Í drögum að rekstraráætlun Jöfnunarsjóðs er gert ráð fyrir að framlag ríkissjóðs verði 399,8
m.kr. en það er samkvæmt frumvarpi til fjárlaga ársins 2018. Gerð er tillaga um ráðstöfun
á 288,2 m.kr. af fjárheimildum sjóðsins sem skiptist þannig: Styrkveitingar til höfuðkirkna
50,5 m.kr. Styrkir til annarra sókna prófastsdæmanna 204,6 m.kr. og styrkir til annarrar
kirkjulegrar starfsemi 14 m.kr. Þar er um að ræða styrki til kirkjumiðstöðva, 7,5 m.kr., til
safnaða erlendis 5 m.kr. til kirkna í mannlausum sóknum 1 m.kr. og til Minningarkapellu
Jóns Steingrímssonar 0,5 m.kr. Því er gert ráð fyrir að óráðstafað af tekjum sjóðsins verði
111,6 m.kr.