Gerðir kirkjuþings - 01.01.2017, Page 80
80 81
17. mál kirkjuþings 2017
Flutt af þjóðmálanefnd
Skýrslur nefnda
Skýrsla þjóðmálanefndar til kirkjuþings 2017
Þjóðmálanefnd skipa sr. Magnús Erlingsson , Aðalbjörg Helgadóttir, Óskar Magnússon
formaður, sr. Gunnlaugur Stefánsson og Ásbjörn Jónsson.
Svo sem fram kom í skýrslu þjóðmálanefndar til kirkjuþings 2016 lítur nefndi svo á að
brýnt sé að innan þjóðkirkjunnar sé farvegur til þess að fást við umræður um þjóðkirkjuna
á opinberum vettvangi. Nauðsynlegt er að þjóðkirkjan eigi frumkvæði að því að kynna hið
mikla starf sem fram fer innan hennar vébanda og einnig er mikilvægt að til staðar sé
þekking og reynsla til að bregðast við þegar á kirkjuna er hallað. Hefur þjóðmálanefnd
lýst þeim vilja sínum að vera leiðandi í þessum efnum, einkum við að koma þessum þætti
starfsins fyrir á skilvirkan og traustan hátt innan þjóðkirkjunnar og tryggja að öflug forystu
verði um framagang þessar mála.
Nefndin hefur ekki fengið formleg viðbrögð við þessum tillögum sínum en ítrekar nú,
vilja sinn til að leiða slíkt starf.
Mikilvægt er að snúa vörn í sókn innan kirkjunnar og koma því mikla og óeigingjarna
starfi sem þar fer fram á framfæri með kerfisbundnum hætti.
Í því sambandi vill þjóðmálanefnd leggja til að nú þegar verði gerð úttekt á framlagi og
hlutverki kirkjunnar til velferðarþjónustu í þjóðfélaginu. Velferðarmál hafa verið mjög í
brennidepli undanfarin ár en lítil vitneskja á meðal almennings um allt það starf sem fram
fer á því sviði á vegum kirkjunnar um land allt. Víst má telja að niðurstöður athugunar
af þessu tagi muni vekja mikla athygli og verða kirkjunni mjög til framdráttar. Nefndin
er reiðubúin til að bera ábyrgð á athugun þessari en rétt kann að vera að fela óháðri
rannsóknarstofnun að annast framkvæmdina og kynna niðurstöður síðan vandlega innan
stofnana kirkjunnar og hvarvetna sem hljómgrunn má finna.