Jökull - 01.01.2005, Page 174
Magnús T. Guðmundsson
Borun eftir köldu vatni við nýja skála í Jökulheimum 17. ágúst 2004. – Drilling for cold water at Jökulheimar
August 17. 2004. Ljósm./Photo. Magnús Hallgrímsson.
SKÁLAMÁL
Verkefni skálanefndar voru einkum á Grímsfjalli og í
Jökulheimum. Á Grímsfjall var farið í maí og unnið
að margvíslegum endurbótum: Í gamla skála komu
nýjar dýnur, matarborð og búsáhöld. Í nýja skála
(Grímsfjall 2) var settur nýr dúkur á öll gólf. Í skála
3 var gufubaðið endurnýjað, veggir viðarklæddir upp
á nýtt og settur nýr dúkur á gólf. Sturtan var endur-
nýjuð og settur stærri vatnstankur fyrir hana. Síðast
en ekki síst var smíðaður nýr forláta sleði með 600
lítra saurtanki og settur undir Valdabotna. Þeir sem
orðið hafa þeirrar gæfu aðnjótandi að tæma tankinn
góða hafa allir lokið miklu lofsorði á búnaðinn. Rétt
er að geta þess að þessar endurbætur í hreinlætismál-
um voru styrktar af Þjóðgarðinum í Skaftafelli með
200.000 kr. framlagi.
Í Jökulheimum voru mestu framkvæmdirnar. Þar
var borað eftir köldu neysluvatni dagana 16.–18. ág-
úst. Ræktunarsamband Flóa og Skeiða sá um borun-
ina og teknar voru tvær 20 m djúpar holur, ein við
hvort hús. Um haustið voru farnar tvær vinnuferðir
þar sem dælum var komið fyrir, sett upp vindrafstöð
og gengið frá verkinu að öllu leyti. Dælurnar ganga
fyrir rafmagni og er nú hægt að fá gott vatn með því
einu að ýta á takka. Þessar endurbætur voru styrktar
af Ferðamálaráði auk þess sem Ræktunarsambandið
studdi verkiðmeð mjög hóglegri gjaldtöku.
Í Fjallkirkju var málað en aðrir skálar bíða næsta
sumars.
BÍLAMÁL
Bíll félagsins, Ford F-350, var notaður í nokkur verk-
efni á árinu. Í upphafi ársins voru breytingar á fjörðun
kláraðar og þykir þar vel hafa tekist til. Fyrsta ferð-
in var vinnuferð á Grímsfjall í maí. Næst var farið
í vorferð í júní. Þar bilaði stýri en því var kippt í
lag þegar varahlutir höfðu borist úr bænum. Í ágúst
fór bíllinn í örlagaríka ferð til landmælinga á Gríms-
fjalli. Þegar fara átti til byggða vildi Rauður ekki
halda áfram og var hann að lokum dreginn með brasi
niður á Skálafellsjökul. Þangað var hann síðan sótt-
ur nokkru síðar og kom í ljós að skítug olía var orsök
bilunarinnar. Hefur stjórnin ákveðið að kanna endur-
bætur á geymslu eldsneytis á fjallinu til að reyna að
minnka líkur á að menguð olía lendi á bíla með af-
drifaríkum afleiðingum. Auk ofangreindra ferða fór
bíllinn með dælur og fleira í Jökulheima í október og
með olíu á Grímsfjall í samamánuði. Bílanefndin hef-
ur aðstöðu í húsnæði sem leigt er í Hafnarfirði.
ÁRSHÁTÍÐ
Árshátíð félagsins var 13. nóvember. Fordrykkur var í
hinu nýja náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, Öskju, í
174 JÖKULL No. 55, 2005