Jökull


Jökull - 01.01.2010, Page 206

Jökull - 01.01.2010, Page 206
Magnús Hallgrímsson Miðvikudagur 6. apríl Mætt var á verkstæðinu hjá Stefáni klukkan hálf átta og unnið að lokapökkun, en við skiptum farangri þar daginn áður. Binni kom laust fyrir kl. átta og hlóðum við bílinn. Ekið var af stað úr Hæðargarði korter yfir átta eftir að hafa sótt dráttarbeltið mitt heim og skil- ið jeppann hans Helga eftir heima hjá Stefáni. Ekið var áleiðis til Þingvalla og þaðan á Gjábakkaheiði og aðeins út af veginum við Dímon. Ekki komst bíllinn lengra. Losuðum við bílinn og smurðum skíði. Leif- ur var með í för og myndaði undirbúninginn ákaft á videóvél. Veður var mjög gott, nær heiðskírt, andvari á NA og þriggja stiga frost. Stigum við á skíðin og kvödd- um þá Leif og Binna kl. tíu og paufuðumst af stað. Færið var nokkuð gott, snjór frekar þéttur en nýfallið lag yfir. Stefnt í NA milli Kálfstinda og Hrafnabjarga. Ekki nutum við sólar lengi, snerist vindátt til SA og fór að snjóa. Létti snjókomunni fljótt en varð yfir- skýjað og ský á öllum fjöllum. Frost var 2–3 gráður allan daginn. Áðum við og drukkum te í Þjófahrauni með Þjófahnúk í bakið. Færið var nú misjafnt, stund- um sökk í en á köflum þunn hula á hjarni. Haldið var yfir Þjófahraun og Tindaskagaheiði. Þegar fór að halla til norðurs létti aftur til og var haldið undan í góðu veðri að Kerlingu. Við komumst að skála við Kerlingu kl. sex eftir átta stunda ferð. Skálinn var nýviðgerður og ástand hið besta. Ekki vorum við fyrr komnir í hús er fór að hvessa og snjóa. Gengið var snemma til náða. Við eldamennskuna skeði það undur að prímusinn hans Leifs stóð skyndilega í ljósum loga og varð að kasta honum á dyr. Kom í ljós að hann lak við lóðn- ingu á bol og hálsi og var dæmdur úr leik. Var þetta í annað sinn á ferðum okkar að svipað kemur fyrir. Var það líka í Kerlingu, árið 1983. Reyndar í hinum skálanum en þá lak aðeins með öryggi og prímusinn áfram nothæfur. Fimmtudagur 7. apríl Risið úr rekkju um sexleitið, yfirskýjað og 11 stiga frost. Létti brátt til með sólskini. Spáð var góðu veðri en lægð daginn eftir og að snjóa mundi eða rigna af SA. Við héldum frá Kerlingu í skála Landsvirkjunar við Þórólfsfell. Léttskýjað var við brottför en brátt dró ský á himin og fjöll og frostið lækkaði í um fjórar gráður. Fylgdum við jaðri Skjaldbreiðar og stefndum vest- an Vestara Mófells. Er þangað kom gerði þétta hríð og áðum við þar undir kletti og drukkum te og átum brauð. Ekki stóð hríðin lengi. Er við beygðum austur úr skarðinu milli Mófella birti aftur upp og var mestu bjart yfir það sem eftir var leiðar. Við norðvesturhorn Hlöðufells er stórt bjarg og mikið. Var áð þar við myndatökur. Stefáni þótti bjarg- ið svo myndarlegt að hann nefndi það Magnús. Við komumst að Þórólfsfellsskála kl. 15:15 og var gott að koma þangað, en þar áttum við tvær nætur í skíðaferð 1983. Á leiðinni var vindur mest af SA en oft logn og áttleysa. Kl. sjö var spáð kyrru og björtu þá nótt en snerist til SA áttar. Skömmu eftir að við komum í skálann fór að hvessa og skafa af vestri. Í skálanum var hinn ágætasti geislaofn. Dóri og Stebbi þurrkuðu skóna sína en þeir voru svo blaut- ir að draup af þeim við kreistur. Skórnir hans Dóra vældu þegar hann kreisti þá fyrst en hættu að væla þegar hann fór um þá mjúkum höndum og smurði með Biwell feiti. Föstudagur 8. apríl Risið úr rekkju við veðurfregnir korter í sjö. Frost 16 gráður. Veðurspá sagði hæðardrag yfir NA Græn- landi, lægðardrag við SV land og lægð að myndast við Grænland. Spáð í fyrstu NA síðan SA með úrkomu og hvassri NA átt næstu nótt. Ákveðið var að halda af stað, tjalda og bíða af sér veðrið, en halda síðan áfram í Kirkjuból er upp stytti. Lagt var af stað kl. hálf tíu, var þá frost átta gráð- ur, færi sæmilegt en ∼20 cm lausasnjór sem sakaði ekki mikið. Háskýjahula var yfir og grillti sól í gegn, vindur hægur af NA. Við tókum veður kl. 10.10 og var spá batnandi. Lægðin hafði hægt á sér og hvassviðr- ið horfið úr spánni. Við komum að jökuljaðrinum kl. ellefu og öndruðum (settum selskinn undir skíðin), í fjögurra gráðu frosti. Heiðmyrkur var til jökulsins en sá til Hlöðufells og Þórólfsfells. Haldið var í 56 gráð- ur misvísandi. Skyggni til suðurs hélst til kl. eitt. Klukkan 12.45 var tekið veður og reynt að ná sam- bandi við Gylfa á Hellu um Eyjafjallajökul kl. eitt, án árangurs. Nú byrjaði að snjóa, nær logn var á, en ef eitthvað var þá var andvari af NV. Kl. korter yfir 206 JÖKULL No. 60
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.