Jökull - 01.01.2010, Blaðsíða 207
Langjökulsferð 1988
þrjú vorum við í 900 metra hæð og skyggni ekkert.
Héldum við þessari stefnu upp í ∼1000 metra hæð
en beygðum þá í 61 gráðu misvísandi og stefndum á
Þursaborg. Hiti var þá við frostmark. Kl. fjögur sýndi
mælir 1005 m, var þá áð og drukkið te, síðan haldið í
61 gráður misvísandi og gengið í rúman klukkutíma.
Kl. hálf sex fór að hvessa af ASA og var því tjaldað.
Frostið var þá komið í sjö gráður. Haft var samband
við Gylfa kl. sjö og komið til hans boðum um stöðuna.
Laugardagur 9. apríl
Frost hafði orðið mest 20 gráður um nóttina en var 16
gráður er við litum út. Hafin var morgeldun á vana-
legum tíma. Um nóttina snjóaði mikið með rokum
og vindbelgingi. Bæst hafði við um 30 sm af snjó
og náði lausamjöll í hné. Vorum við tilbúnir að fella
tjaldið um kl. níu. Gerði þá um sex vindstiga gusu af
norðvestri og var því beðið. Mugga hafði verið yfir og
ekkert skyggni. Um hálf tíu hægði heldur og birti til
suðurs. Var þá pakkað og haldið af stað kl. tíu. Færi
var mjög slæmt, púlkurnar grófu um 30 sm djúpa slóð
og skíði sukku í til kálfa.
Hélst þetta færi allan daginn en lagaðist lítið eitt
síðasta klukkutímann. Upp úr kl. hálf ellefu fór að
snjóa, allt skyggni hvarf og var svo í nokkurn tíma.
Síðar létti nokkuð og sást í heiðan himin en skýja-
bakkar allt um kring jökulinn og ýrði snjó af NV. Hiti
hækkaði í fimm gráðu frost.
Tjaldað var kl. hálf sjö í átta stiga frosti og hafði þá
verið nær skyggnislaust síðasta klukkutímann. Einu
sinni rofaði aðeins og við sáum Tröllhettu og Bláfell
í mósku. Talsamband var reynt við Gylfa án árangurs
en Stebbi talaði við Flug 65 og sendi boð til Ingvars
um stöðuna. Brátt fór að hvessa og vorum við ánægðir
með að vera komnir í tjald.
Sunnudagur 10. apríl
Er við vöknuðum var skafbylur, um níu vindstig.
Samkvæmt veðurfregnum voru sjö vindstig á Hvera-
völlum. Frost hafði verið 21 gráða um nóttina og var
16 gráður þegar þeir fyrstu fóru út að kasta af sér
vatni. Hvassviðrið hélst til hádegis og var þá farið að
undirbúa ferð. Við fyrsta útkikk eftir að lægði sást
Þursaborg út um lofttúðuna og reyndist í 61 gráðu
misvísandi svo við höfðum haldið stefnu. Lagt var úr
tjaldstað kl. 14.40 og hafði færð batnað verulega við
blásturinn en þó dregið nokkuð í rifskafla. Við vorum
um sex km sunnan Þursaborgar. Ekki leið á löngu að
hvessa tók að NV og kl. fjögur sneri hann sér beint í
fangið með um sex vindstig og frostið um 15 gráður.
Við vorum rúma tvo tíma að Þursaborg og sást hún
mest alla leiðina.
Héldum við síðan upp brekkuna milli Þursaborgar
og Péturshorns. Jók þá vindinn og skafrenningskófið
hækkaði svo að allt skyggni hvarf. Gengum við þar
til við töldum okkur vel ofan Péturshorns og tókum
stefnuna 101 gráðu misvísandi á Fjallkirkju. Vindinn
jók enn og var farið að bollaleggja að tjalda þegar við
höfðum haldið á annan km frá Þursaborg, kl. orðin sjö
og frost 19 gráður.
Við ákváðum að halda enn áfram í þeirri von að
sjá kirkjuna. Í um eins km fjarlægð grillti í topp efst
í kófinu og brátt kom í ljós að þetta var Fjallkirkjan
sjálf. Lægði aðeins vind í skjólinu og flökti frá N til
NV. Var nú farið greitt og lagt í brekkuna og komið
að Kirkjubóli kl. níu. Þá var svo hvasst að draga varð
pulkur í skjól til losunar. Kveikt var á prímus, eldað,
etið og drukkið allt til kl. eitt e.m. Meðal vinsælustu
rétta var púðursykurs-ristaður, sneiddur svínaskanki.
Gengum hressir til náða í svo ágætu húsi.
Mánudagur 11. apríl
Sofið var frameftir. Hvasst var úti og skafrenningur en
bjart til himins, ský yfir Skriðufelli og kóf í átt til jök-
uls og niður á Kjöl. Frost 17 gráður. Haft var hægt um
sig en er lægði aðeins eftir hádegið var farið í göngu
og myndaferð um nágrennið og klifnir nokkrir topp-
ar. Fegurðin ægileg, gerði nú bjartar yfir og rennings-
kófið lækkaði. Sást allt sem séð verður, allt austur að
Bárðarbungu.
Áætlað var að halda til Hagavatns daginn eftir og
þaðan að Haukadal. Allar spár fram til kl. sjö lágu
þessu til grundvallar en kl. sjö var spáð SA snjókomu
vegna lægðardrags sunnan við landið, svo við ákváð-
um að sjá til í fyrramálið. Búið var að bræða vatn og
smyrja til fararinnar. Frost var 18 gráður. Sól lækkaði
á lofti og útsýni sem best má vera. Talsamband við
Gylfa tókst ekki en við heyrðum í honum.
Við þvott og rakstur þennan morgun komu í ljós
móleitir blettir framan í nokkrum okkar. Kenndum við
um sólbruna og minni háttar kali. Þótt við skýldum
andliti með gleraugum og lambhúshettum í gær urðu
JÖKULL No. 60 207