Jökull


Jökull - 01.01.2016, Page 136

Jökull - 01.01.2016, Page 136
Magnús Tumi Guðmundsson FÉLAGATAL Skáðir félagsmenn um síðustu áramót voru alls 633. Þar af eru heiðursfélagar 16, almennir félagar 501, fjölskyldufélagar 21, námsfólk 55 og fyrirtæki, stofn- anir og fréttastofur 40. Erlendir áskrifendur Jökuls eru rúmlega 50. RANNSÓKNIR Þær rannsóknir sem Jöklarannsóknafélagið kom að með beinum hætti á árinu voru á Vatnajökli og Mýr- dalsjökli auk sporðamælinga sem unnar eru víða um land af sjálfboðaliðum. 1. Afkomumælingar á Mýrdalsjökli. Mælt var í maí og teknar þrjár afkomuholur og var vetrarákoma í meira lagi. Jafnframt var sett upp veðurstöð á söðlinum milli Sólheima- og Kötlujökla. Stöðin var sótt í nóvember og var þá við að snjóa í kaf. 2. Vorferð 29. maí–13. júní. Ferðin stóð í tvær vikur en aðalverkefnin snéru að umbrotunum í Bárðarbungu haustið og veturinn áður. Unnar voru margvísleg- ar mælingar, m.a. íssjármælingar, afkomumælingar, kortlagning yfirborðs, þyngdarmælingar og mæling- ar á gasútstreymi. Unnið var að hefðbundnum verk- efnum í Grímsvötnum og víðar og í báðum Skaftár- kötlum var borað niður í vatnið undir og mælingar gerðar á hita, þrýstingi og sýni tekin. Vitjað var um jarðskjálfta- og GPS mæla á Vatnajökli og ýmis fleiri verkefni unnin. 3. Sporðamælingar. Sporðamælingar félagsins eru svipaðar að umfangi og síðustu ár. Umsjón með þeim hefur Oddur Sigurðsson en Bergur Einarsson er nú að taka við því starfi. Mikil gróska er í jöklarannsóknum hér á landi og öflugir hópar vinna að þeim bæði við Jarðvísinda- stofnun Háskólans og á Veðurstofunni auk þess sem Landsvirkjun kemur að mörgum verkefnum. Verkefni þessara og fleiri aðila, einkum erlendra, verða ekki tí- unduð hér, nema þegar JÖRFÍ á hlut að máli. FUNDIR Fundahald var með venjulegu sniði. Aðalfundur var 24. febrúar og þar fjallaði Alexander Jarosch jökla- fræðingur um notkun mannlausra flugvéla í mæling- um. Á vorfundinum 28. apríl flutti Snorri Baldursson erindi um landnám og þróun lífs á nýju landi, einkum á jökulskerjum og svæðum sem komið hafa undan jökli. Eftir hlé sýndi Ragnar Th. Sigurðsson myndir úr Holuhrauni. Haustfundurinn var 27. október. Ágúst Þór Gunnlaugsson sagði þar frá niðurstöðum meist- araverkefnis síns við Háskóla Íslands, um afkomu Tungnafellsjökuls 1960–2013. Einnig sögðu Oddur Sigurðsson og Tómas Jóhannesson frá Skaftárhlaup- inu í byrjun október. Fundirnir fóru allir fram í sal 132 í Öskju og aðsókn var á bilinu 30–40 manns. ÚTGÁFA JÖKULS Jökull 64 kom út í febrúar. Ritið var að þessu sinni 160 blaðsíður. Það skiptist nánast til helminga í ritrýnt efni, sem í voru fimm ritrýndar vísindagreinar og margvíslegt fræðslu- og félagsefni. Ritstjórnin, undir forystu Bryndísar aðalritstjóra, vinnur mikið starf til að koma ritinu út, einkum Bryndís, sem brýtur um allt efnið, félaginu að kostnaðarlausu. Gengið var frá því við Bóksölu Stúdenta að hún tæki að sér að dreifa Jökli erlendis framvegis. Er von- ast til þess að þetta létti sjálboðaliðum JÖRFÍ störfin og að meiri festa verði í umsýslu og dreifingu. FRÉTTABRÉF OG VEFSÍÐA Fréttabréfið var sem fyrr í umsjá Hálfdáns. Hann sá einnig um vefsíðuna ásamt Jóhönnu Katrínu Þórhalls- dóttur. SKEMMTIFERÐIR Fyrstu helgina í júlí var áformuð þriðja tilraun JÖRFÍ til að ganga á Okið og komast þar á jökulinn, sem sumir segja reyndar að sé horfinn. Nú brá reyndar svo við að veður var ágætt en vegna snjóþungs vetr- ar og kalds vors varð ekki komist á bílum nærri fjall- inu. Úr varð ánægjuleg dvöl í Húsafelli með göngu- ferðum um nágrennið. Ekki hefur verið ákveðið hvort reynt verður eitt skiptið enn næsta sumar. Dagana 7.– 9. ágúst var aftur efnt til ferðar, í þetta sinn í Ódáða- hraun og inn á Dyngjusand að skoða hið nýja Holu- hraun. Ferðin tókst hið besta, þátttakendur voru um 30 og gerðu góða ferð með heitu baði við jaðar hrauns- ins og gönguferð að Öskjuvatni. Kvöldvaka var í Þor- steinsskála í Herðubreiðarlindum á föstudagskvöldinu og síðan haldið daginn eftir til Mývatns þar sem form- legri ferð var slitið. 136 JÖKULL No. 66, 2016
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.