Jökull - 01.01.2016, Qupperneq 136
Magnús Tumi Guðmundsson
FÉLAGATAL
Skáðir félagsmenn um síðustu áramót voru alls 633.
Þar af eru heiðursfélagar 16, almennir félagar 501,
fjölskyldufélagar 21, námsfólk 55 og fyrirtæki, stofn-
anir og fréttastofur 40. Erlendir áskrifendur Jökuls eru
rúmlega 50.
RANNSÓKNIR
Þær rannsóknir sem Jöklarannsóknafélagið kom að
með beinum hætti á árinu voru á Vatnajökli og Mýr-
dalsjökli auk sporðamælinga sem unnar eru víða um
land af sjálfboðaliðum.
1. Afkomumælingar á Mýrdalsjökli. Mælt var í maí og
teknar þrjár afkomuholur og var vetrarákoma í meira
lagi. Jafnframt var sett upp veðurstöð á söðlinum milli
Sólheima- og Kötlujökla. Stöðin var sótt í nóvember
og var þá við að snjóa í kaf.
2. Vorferð 29. maí–13. júní. Ferðin stóð í tvær vikur
en aðalverkefnin snéru að umbrotunum í Bárðarbungu
haustið og veturinn áður. Unnar voru margvísleg-
ar mælingar, m.a. íssjármælingar, afkomumælingar,
kortlagning yfirborðs, þyngdarmælingar og mæling-
ar á gasútstreymi. Unnið var að hefðbundnum verk-
efnum í Grímsvötnum og víðar og í báðum Skaftár-
kötlum var borað niður í vatnið undir og mælingar
gerðar á hita, þrýstingi og sýni tekin. Vitjað var um
jarðskjálfta- og GPS mæla á Vatnajökli og ýmis fleiri
verkefni unnin.
3. Sporðamælingar. Sporðamælingar félagsins eru
svipaðar að umfangi og síðustu ár. Umsjón með þeim
hefur Oddur Sigurðsson en Bergur Einarsson er nú að
taka við því starfi.
Mikil gróska er í jöklarannsóknum hér á landi og
öflugir hópar vinna að þeim bæði við Jarðvísinda-
stofnun Háskólans og á Veðurstofunni auk þess sem
Landsvirkjun kemur að mörgum verkefnum. Verkefni
þessara og fleiri aðila, einkum erlendra, verða ekki tí-
unduð hér, nema þegar JÖRFÍ á hlut að máli.
FUNDIR
Fundahald var með venjulegu sniði. Aðalfundur var
24. febrúar og þar fjallaði Alexander Jarosch jökla-
fræðingur um notkun mannlausra flugvéla í mæling-
um. Á vorfundinum 28. apríl flutti Snorri Baldursson
erindi um landnám og þróun lífs á nýju landi, einkum
á jökulskerjum og svæðum sem komið hafa undan
jökli. Eftir hlé sýndi Ragnar Th. Sigurðsson myndir úr
Holuhrauni. Haustfundurinn var 27. október. Ágúst
Þór Gunnlaugsson sagði þar frá niðurstöðum meist-
araverkefnis síns við Háskóla Íslands, um afkomu
Tungnafellsjökuls 1960–2013. Einnig sögðu Oddur
Sigurðsson og Tómas Jóhannesson frá Skaftárhlaup-
inu í byrjun október. Fundirnir fóru allir fram í sal
132 í Öskju og aðsókn var á bilinu 30–40 manns.
ÚTGÁFA JÖKULS
Jökull 64 kom út í febrúar. Ritið var að þessu sinni
160 blaðsíður. Það skiptist nánast til helminga í ritrýnt
efni, sem í voru fimm ritrýndar vísindagreinar og
margvíslegt fræðslu- og félagsefni. Ritstjórnin, undir
forystu Bryndísar aðalritstjóra, vinnur mikið starf til
að koma ritinu út, einkum Bryndís, sem brýtur um allt
efnið, félaginu að kostnaðarlausu.
Gengið var frá því við Bóksölu Stúdenta að hún
tæki að sér að dreifa Jökli erlendis framvegis. Er von-
ast til þess að þetta létti sjálboðaliðum JÖRFÍ störfin
og að meiri festa verði í umsýslu og dreifingu.
FRÉTTABRÉF OG VEFSÍÐA
Fréttabréfið var sem fyrr í umsjá Hálfdáns. Hann sá
einnig um vefsíðuna ásamt Jóhönnu Katrínu Þórhalls-
dóttur.
SKEMMTIFERÐIR
Fyrstu helgina í júlí var áformuð þriðja tilraun JÖRFÍ
til að ganga á Okið og komast þar á jökulinn, sem
sumir segja reyndar að sé horfinn. Nú brá reyndar
svo við að veður var ágætt en vegna snjóþungs vetr-
ar og kalds vors varð ekki komist á bílum nærri fjall-
inu. Úr varð ánægjuleg dvöl í Húsafelli með göngu-
ferðum um nágrennið. Ekki hefur verið ákveðið hvort
reynt verður eitt skiptið enn næsta sumar. Dagana 7.–
9. ágúst var aftur efnt til ferðar, í þetta sinn í Ódáða-
hraun og inn á Dyngjusand að skoða hið nýja Holu-
hraun. Ferðin tókst hið besta, þátttakendur voru um 30
og gerðu góða ferð með heitu baði við jaðar hrauns-
ins og gönguferð að Öskjuvatni. Kvöldvaka var í Þor-
steinsskála í Herðubreiðarlindum á föstudagskvöldinu
og síðan haldið daginn eftir til Mývatns þar sem form-
legri ferð var slitið.
136 JÖKULL No. 66, 2016